Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 39
UMRÆÐAN
Náttúruvernd
í orði og á borði
UM þessar mundir
ber talsvert á frásögn-
um kunnugra af því að
nú séu fjölfarnir ferða-
mannastaðir í náttúru
Islands að drabbast
niður. Viðhaldi sé ekki
sinnt og nauðsynlegar
endurbætur á aðstöðu
ferðamanna hafi verið
trassaðar í áraraðir. A
sama tíma hefur er-
lendum ferðamönnum
fjölgað verulega og
tekjur af þeim vaxa ár
frá ári. Náttúruvernd
virðist í reynd með-
höndluð eins og hálf-
gerður niðursetningur
af hálfu stjórnvalda, sem hafa tæp-
ast sinnt lagaskyldum sínum á
þessu sviði sómasamlega, hvað þá
staðið myndarlega að framkvæmd-
um.
Markmiðin eru skýr
Helstu lög, sem við Islendingar
eigum til að tryggja vernd um-
hverfis og náttúru, eru lög um nátt-
úruvernd samþykkt á Alþingi 11.
mars á síðasta ári. Markmiðssetn-
ing þerira er afar skýr og kemur
fram í 1. greininni:
Tilgangur þessara laga er að
stuðla að samskiptum manns og
umhverfis þannig að hvorki spillist
líf eða land né mengist sjór, vatn
eða andrúmsloft.
Lögin eiga að tryggja eftir föng-
um þróun íslenskrar náttúru eftir
eigin lögmálum, en verndun þess
sem þar er sérstætt eða sögulegt.
Lögin eiga að auðvelda um-
gengni og kynni þjóðarinnar af
náttúru landsins og menningar-
minjum og stuðla að vernd og nýt-
ingu auðlinda á grundvelli sjálf-
bærrar þróunar.
En lögin ein sér gera engin
kraftaverk, árangur verður einung-
is tryggður með skýrri stefnumörk-
un stjórnvalda og framkvæmd í
samræmi við hana. Slík stefnum-
örkun er sögð í undirbúningi. Því
lýstu bæði samgöngu- og umhverf-
isráðherra yfir á Alþingi síðastlið-
inn vetur. Gott og vel, en eftir
hvaða stefnu höfum við stýrt þess-
um málafiokki hingað til?
Stefnan birtist í fjárlögunum
Besti mælikvarðinn í reynd á
framgöngu stjórnvalda í náttúru-
verndarmálum birtist í fjárlögum
íslenska rikisins. Samkvæmt þeim
á Náttúruvernd ríkisins að inn-
heimta í ár 15 milljónir króna í að-
gangseyri að friðlýstum svæðum og
þeim tekjum ber að verja til upp-
byggingar á viðkomandi svæðum.
Þessu mótmæltu þingmenn Vin-
strihreyfingarinanr - græns fram-
boðs á síðasta þingi og gerðu ítrek-
aðar tilraunir til að fá einfaldlega
hækkað framlagið til Náttúru-
verndar ríkisins á fjárlögum. Rökin
fyrir því eru í sjálfu sér einföld og
komu í hugann í vikunni þegar
fréttir bárust af fjölgun erlendra
ferðamanna í ár og tekjuaukningu
af þeim sökum. Erlendum ferða-
mönnum virðist ætla að fjölga um
18% og tekjuaukningin er langt til í
hlutfalli við það. Að mati okkar sem
þetta ritum ætti sú aukning að skila
sér í ríkum mæli til náttúruverndar
gegnum ríkissjóð. En þess í stað er
Náttúruvernd ríkisins haldið í fjár-
hagslegri spennitreyju og gert að
rukka aðgangseyri að þjóðgörðum
og friðlýstum svæðum. Sparnaður í
landvörslu er áberandi og fjármagn
það sem Náttúruvernd ríkisins hef-
■ MYND-MÁL myndlistaskóli
Málun, teiknun. Undirstöðuatriði og tækni.
Byrjendur og framhaldsfólk.
Upplýsingar og innritun kl. 15—21 alla
daga. Símar 561 1525 og 898 3536.
Rúna Gísladóttir, listmálari.
Steingrímur J.
Sigfússon
Kolbrún
Halldórsdóttir
ur úr að spila nægir ekki einu sinni
fyrir því að halda í horfinu. Ef ekki
kæmi til starf ýmissa sjálfboðaliða,
áhugamanna og félagasamtaka
væri ástandið raunar enn verra.
Náttúruvernd ríkisins er niðurs-
etningur á framfæri stjórnvalda og
fær ekki einu sinni notið sann-
gjarns hluta þeirra vaxandi tekna
sem koma í ríkiskassann af þjón-
ustu við ferðamenn.
Mikilvægi landvörslu
Það er alkunna að aukinn ferða-
Náttúruvernd
Það er mál til komið að
þessi þáttur náttúru-
verndarmála, segja
Kolbrún Hallddrsddttir
og Steingrímur J. Sig--
fússon, verði tekinn
öðrum og fastari
tökum en hingað til.
mannastraumur kallar á aukna
landvörslu, enda kemur í kjölfar
fjölgunarinnar aukinn íjöldi óhappa
og slysa. Þetta höfum við fengið að
reyna í sumar. í alvarlegum óhöpp-
um á borð við það sem varð þegar
rúta með 14 manns festist í Jökulsá
á Fjöllum kom sannarlega í ljós
hversu nauðsynlegt er að manna
allt hálendið hæfum landvörðum.
Landverðir gegna lykilhlutverki í
þjónustu við ferðafólk á óbyggðum
svæðum og afar brýnt er að efla
þeirra þátt í náttúruverndinni. Það
verður einungis gert með því að
fjölga þeim og nýta krafta þeirra
betur. Það ber t.d. vott um
skammsýni að ekki skuli vera starf-
andi landvörður í Mývatnssveit
nema yfir hásumarið. Slæleg
frammistaða stjórnvalda í þessum
efnum býður heim aukinni hættu á
stórslysum, og brýnt er að aðstaða
verði bætt og öryggisviðbúnaður
og landvarsla verði stórefld.
0)
"5
o
HELLUSTEYPA JVJ
Vagnhöfða 17
112 Reykjavík
Sími: 587 2222
Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
Tölvupústur: sala@hellusteypa.is
Það er vitað að 80 - 90% erlendra
ferðamanna sem hingað koma gefa
upp sem helstu ástæðu komu sinn-
ar hina stórfenglegu náttúru sem
Island hefur uppá að bjóða. Tekjur
af erlendum ferðamönnum voru á
síðasta ári tæpir 28 milljarðar
króna og nú stefnir í u.þ.b. 13%
hækkun á þessu ári eða tekjur í
kring um 32 milljarða. En stefna
stjórnvalda til þessa hefur gengið
út á það að fá allt fyrir ekkert.
Náttúruvernd ríkisins er með í
undirbúningi náttúruverndaráætl-
un, sem samkvæmt lögunum á að
leggja fyrir Alþingi árið 2002.
Fyrstu áætlanir um kostnað við
gerð hennar hljóða uppá 430 millj-
ónir króna, enn hefur ekki verið
lögð fram nein áætlun um hvernig
fjármagna beri það starf. Ekki
heldur um það hvernig fjármagna
beri brýnustu úrbætur á fjölförn-
ustu ferðamannastöðunum.
Nú er meira að segja svo komið
að þjóðgarðarnir okkar eru að
verða dragbítar á aðra ferðaþjón-
ustu, þar sem þeir hafa ekki einu
sinni fengið nauðsynlegt fjármagn
til viðhalds á aðstöðu. I þjóðgarðin-
um í Skaftafelli hefur t.d. ekki verið
gerð nein bragarbót á tjaldstæðum,
salernisaðstöðu eða aðstöðu starfs-
fólks síðan 1982. Ef dæmi er tekið
af fjárþörf nokkurra brýnna verk-
efna, sem Náttúruvernd ríkisins
hefur á sínu borði þá munu endur-
bætur á neðri pallinum við Gullfoss
kosta um 14 millj.kr. Lagfæring á
þeim skemmdum sem orðið hafa
undanfarið á Geysissvæðinu kosta
a.m.k. 20 millj. og er þá einungis
miðað við að koma í veg fyrir bráða
slysahættu á svæðinu. Þá má geta
um ömurlega salernisaðstöðu í
þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum,
en til að gera aðstöðuna boðlega þá
skortir Náttúruvernd um 10 mil-
ljónir króna. Hér höfum við einung-
is talið upp nokkur brýn verkefni
en erum þegar komin upp í 44 mil-
ljónir króna. Það er ekki ýkja stór
upphæð þegar heildartekjur af er-
lendum ferðamönnum eru skoðaðar
en það er óyfirstíganleg fjárhæð
fyrir Náttúruvernd ríkisins miðað
við það fjársvelti sem stofnuninni
er haldið í. Þetta er að okkar mati
óviðunandi ástand og í engu sam-
ræmi við lögbundnar skyldur
stjórnvalda skv. náttúruverndar-
lögum. Það er mál til komið að
þessi þáttur náttúruverndarmála,
sem ætti að geta verið tiltölulega
óumdeildur og hafin yfir pólitískar
deilur, verði tekin öðrum og fastari
tökum en hingað til. Það er skýlaus
krafa að stjórnvöld taki nú á þess-
um málum af myndarskap og sýni
meintan vilja sinn í verki í fjárlög-
um fyrir komandi ár í stað þess að
láta orðagjálfrið nægja eins og
hingað til.
Höfundar eru alþingismenn
fyrir Vinstrihreyfinguna -
grænt framboð.
•..
Peysur
luiCMN/i
5T iLL
Neðst á Skólavörðustíg
....■WHI
PALLALVFTUR
ÞÓR HF
Reykjavík - Akurayri
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
PHYTO SOYA
JURTA ÖSTROGEN
Arkopharma
Fæst í apótekum Dmmi um gjoðí B
Öryggismiðstöövar íslands
Nú býðst korthöfum VISA heimagæsla á sérstöku tilboðsverði.
Einungis er greitt fyrir 10 mánuði á ári.
Bjóðum einníg þráðlausan búnað.
o
FRÍÐINDAKLÚBBURINN
Mýkingarefni sálarinnar
4 Gaman að gefa
Nautn að njota
KELSOimiSSELL
AROMATHERAPY
ILMKJARNAOLÍUR
NUDDOLÍUGRUNNUR
NUDDOLÍUR
FREYÐIBÖÐ
STURTUSÁPUR
AUGNMASKI
ANDLITSÚÐI
Apctekið
Léttur og meðfærileaur
GSM posi
með iimbyggðum prentara
Les allar tegundir greiðslukorta
°point sem notuð eru á íslandi.
Hiíðasmára 10 [ Er með lesara fyrir
sími 544 5060 [ snjallkort og segulrandarkort.
Fax 5061 ■■■■■■■■■■■■■■■II^^H
Hraðvirkur hljóðlátur prentari.