Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 1
214. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Perú
Njósna-
foringinn
í haldi
hersins
Lima. Reuters, AFP.
ÓSTAÐFESTAR fréttir hermdu í
gærkvöld að her Perú hefði handtek-
ið Vladimiro Montesinos, yfirmann
leyniþjónustu
landsins og gaml-
an bandamann
Albertos Fuji-
moris forseta.
Forsetinn til-
kynnti óvænt á
laugardag að
hann hygðist
boða til kosninga
sem fyrst og gefa
ekki kost á sér til
endurkjörs eftir að sjónvarpsstöðvar
sýndu myndbandsupptöku sem virt-
ist sanna að Montesinos hefði mútað
þingmönnum.
Lögfræðingur systur Montesinos
sagði að hún hefði þegar farið þess á
leit við dómstóla að leyniþjónustufor-
inginn yrði leystur úr haldi ef frétt-
imar um handtöku hans væru réttar.
Embættismaður í dómskerfinu
sagði að hermenn héldu Montesinos í
höfuðstöðvum leyniþjónustunnar en
engin formleg handtökuskipun hefði
verið gefin út.
Montesinos hefur verið mjög
áhrifamikill í hemum og órðrómur
hefur verið á kreiki um að stuðnings-
menn hans í yfirstjórn hersins kunni
að reyna að taka völdin í sínar hend-
ur.
■ Stjórnarandstaðan/ 28
Kína
Ráðagóðir
lögreglu-
menn
LÖGREGLUYFIRVÖLD Lis-
hui-héraðins í Kína fundu upp
á óvenjulegri lausn til að leysa
fjárhagsvanda sinn - þau opn-
uðu vændishús og sektuðu síð-
an viðskiptavinina.
Það var aðstoðarlögreglu-
stjóri héraðsins, Gao Mingli-
ang, sem átti hugmyndina að
vændishúsinu sem opnað var í
maí í fyrra. Vændishúsið var
dulbúið sem veitingastaður og
sáu gleðikonur um að lokka
viðskiptavini inn í bakherbergi
„veitingastaðarins.“ Lögreglan
gerði síðan skyndiárásir í bak-
herbergin með reglulegu milli-
bili, handtók viðskiptavinina
og flutti þá niður á lögreglu-
stöð þar sem þeir vom sektað-
ir. Gleðikonunum var síðan
greiddur bónus í samræmi við
hve margir vora sektaðir.
Það var síðan ekki fyrr en
lögregluyfirvöld í nærliggjandi
héraði handtóku eiganda „veit-
ingastaðarins“ og dæmdu
hann til árs vistar í vinnubúð-
um að upp komst um fjár-
öflunarstarfsemina.
Vladimiro
Montesinos
Aðgerðir bílstjóra gegn háu eldsneytisverði
Mótmælin breiðast
út til Norðurlanda
Stokkhólmi, Ósld. Reuters, AP.
FLUTNINGABÍLSTJÓRAR í Sví-
þjóð, Noregi og Finnlandi hindmðu
vöruflutninga um nokkrar hafnir
og akstur tankbíla frá olíubirgða-
stöðvum í gær til að mótmæla háu
eldsneytisverði.
Líkt og í Frakklandi, Bretlandi
og víðar í Evrópu síðasta hálfa
mánuðinn vilja bílstjórarnir knýja
fram lægri álögur á dísilolíu og
bensín eftir veralegar verðhækkan-
ir í ár vegna hæma heimsmark-
aðsverðs og hás gengis dollarans.
Aðgerðunum hætt í Noregi
Bílstjórarnir hindraðu olíudreif-
ingu frá ellefu birgðastöðvum í suð-
ur- og vesturhluta Noregs í nokkr-
ar klukkustundir þar til ríkis-
olíufyrirtækið Statoil kærði
aðgerðirnar til lögreglu. Bílstjór-
arnir ákváðu þá að láta alveg af að-
gerðunum fremur en að hætta á
átök við lögregluna. „Þar sem Stat-
oil lagði fram kæru vegna þriggja
birgðastöðva sinna ákváðum við að
hætta öllum aðgerðunum þar sem
þær myndu ekki vera sanngjarnar
gagnvart öðrum olíufyrirtækjum,"
sagði Knut Enger, talsmaður
norsku flutningabílstjóranna.
Sænskir flutningabílstjórar
hindruðu vöraflutninga um hafnir
þriggja stærstu borga Svíþjóðar,
Stokkhólms, Gautaborgar og
Malmö. Um 400 bílstjórar tóku þátt
í aðgerðunum og þeir sögðust ætla
að halda þeim áfram þar til stjórnin
yrði við kröfu þeirra um að hætta
við áform um að hækka verð dísil-
olíu um 10%. Bændur lögðu einnig
um 120 dráttarvélum á torgi í mið-
borg Linköping til að mótmæla háu
eldsneytisverði. Um 625 dráttarvél-
ar voru notaðar í svipuðum aðgerð-
um í fleiri sænskum borgum.
Um 20 flutningabílar hindraðu
umferð um þjóðveg nálægt olíu-
hreinsunarstöð í suðurhluta Finn-
lands. Umferðin komst þó fljótt í
eðlilegt horf og mótmælin höfðu
ekki áhrif á starfsemi stöðvarinnar.
Sjómenn á fiskibátum lokuðu
einnig höfninni í Barcelona í gær-
morgun og stöðvuðu á annan tug
flutningaskipa til að mótmæla háu
eldsneytisverði og lágu fiskverði.
Finnskir flutningabflstjórar stöðva umferð austan við Helsinki til að mótmæla háu eldsneytisverði.
ESB hvetur Serbatil að kjosa stjórnarandstöðuna
Lofa að afnema við-
skiptaþvinganir
Brussel, Belgrad. AFP, AP, Reuters.
EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB)
samþykkti í gær að afnema við-
skiptaþvinganir sínar gegn Serbíu
fari stjómarandstaðan með sigur af
hólmi í kosningunum sem fram fara í
Júgóslavíu á sunnudag. I yfirlýsingu
sinni hvöttu utanríkisráðherrar allra
ESB-ríkjanna Serba til að greiða
ekki stjórn Slobodans Milosevics,
forseta Júgóslavíu, atkvæði sitt og
era kjósendur hvattir til „að hafna á
skýran og friðsamlegan hátt stefnu
Milosevics“.
Kosningamar era prófsteinn á
vinsældir Milosevics, en auk þing- og
sveitarstjómarkosninga verður einn-
ig kosið til forseta. Þetta er í fyrsta
skipti sem Milosevic á á hættu að
tapa, en óháðar skoðanakannanir
benda til að mótframbjóðandi hans
og stjómarandstæðingurinn Vojislav
Kostunica sé sigurstranglegur.
Óvist þykir þó að kosningarnar
muni fara heiðarlega fram og hefur
stjórnarandstaða Serbíu varað við að
Milosevic kunni að grípa til sinna
ráða. Stjómmálaskýrendur era
margir á sama máli og alþjóðastofn-
anir, sem eftirlit hafa með réttmæti
kosninga, hafa neitað að fylgjast með
kosningunum á sunnudag þar sem
ekki sé hægt að tryggja réttmæti
þeirra. Það var þó mat utanríkisráð-
herra ESB-ríkjanna að kosningarn-
ar veittu Serbum tækifæri á að koma
á lýðræðislegum breytingum og
sagði Hubert Vedrine, utanríkisráð-
hema Frakka og fundarstjóri, ESB
hafa hug á að senda eftirlitsmenn til
til að fylgjast með kosningunum.
Milosevic tU Svartfjallalands
Stjóm Svartfjallalands, sem ásamt
Serbíu myndar sambandsríkið Júgó-
slavíu, er mótfallin stjórn Milosevics
og hefur hvatt íbúa til að taka ekki
þátt í kosningunum á sunnudag þar
sem þær séu ólöglegar.
Milosevic sækir þó Svartfjallaland
heim nú á miðvikudag, en héraðin við
landamæri Serbíu era stjórn hans
hliðholl. Er heimsóknin talin geta
aukið spennu í Svartfjallalandi og
hafa heyrst getgátur um að Milosev-
ic muni reyna að hvetja til óeirða, en
slíkt gæti reynst honum næg ástæða
til að fresta kosningum.
Danir
deila um
evruna
Morgunblaðið, Kaupmannahöfn.
DANSKA ríkisstjórnin ætlar að
koma í veg fyrir að teknar verði
upp meirihlutaákvarðanir í félags-
og skattamálum innan Evrópu-
sambandsins (ESB). Fundað verð-
ur um breytingar á ákvörðunar-
ferli ESB í Nice í Frakkland í
desember, og hafa Frakkar lagt
fram tillögu um að meirihluti verði
látinn duga við ákvarðanatöku
ákveðinna þátta skattamála, en
skv. núgildandi reglum verða öll
aðildarríki að samþykkja breyting-
ar. Að sögn Niels Helveg Peter-
sen, utanríkisráðherra Danmerk-
ur, ætla Danir sér hins vegar að
koma í veg fyrir allar tillögur í
þessa átt.
Andstæðingar aðildar Dana að
evrópska myntbandalaginu segja
danska velferðarkerfið í hættu
verði aðildin samþykkt, því fyrr
eða síðar verði farið að samræma
lög og reglur, m.a. um félags- og
skattamál, á evrusvæðinu. Danska
félagsmálakerfið er að mestu fjár-
magnað með skatttekjum, ólíkt
öðrum ESB-ríkjum þar sem fram-
lög atvinnurekenda og sparnaður
einstaklinga gegna mikilvægu
hlutverki.
Skoðanakannanir benda til þess
að andstæðingar aðildar muni hafa
betur í þjóðaratkvæðagreiðslunni
um evruna sem fram fer í Dan-
mörku 28. september nk. Hefur
forysta þeirra farið hratt vaxandi
undanfarna daga og Poul Nyrup
Rasmussen forsætisráðherra því
boðað aukna hörku í áróðursbar-
áttunni fyrir atkvæðagreiðsluna.
■ Rasmussen boðar/ 29
---------------
Bretland
Dauðsfall
rakið til
salmonellu-
sýkingar
í BRETLANDI hefur salmonellu-
sýking, svipuð þeirri sem upp hefur
komið hér á landi, valdið miklum
usla. Að því er fram kemur á frétta-
vef Sky-sjónvarpsstöðvarinnar hef-
ur salmonellan, sem er ónæm fyrir
mörgum algengum sýklalyfjum, nú
þegar dregið einn til dauða, en 249
hafa veikst af völdum hennar.
Sá látni var á táningsaldri og lést
hann af völdum blóðeitrunar er upp
kom í kjölfar salmonellusýkingar-
innar. Líkt og hér heima hefur salm-
onellan í flestum tilfellum sýkt ungt
fólk og er því kennd við skyndibita-
staði þótt upptök hennar séu enn
ókunn.
MORGUNBLAÐIÐ 19. SEPTEMBER 2000