Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 76
76 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HASKOLABIO
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi
www.haskolabio.is
sími 530 1919
BÍdHÖLLkl
rrnm
m PUNKTA
rmw i bíó
NYTT OG BETRA^»m ^
SAiBA-
Alfabakka 8, simi 587 8900 og 587 8905
ATH! Fríkort gilda ekki.
jf 6ku
Leyfðölium aldurshópum en atriði í myncf-
inni gætu vakið óhug yngstu bama.
j, Sýnd kl. 4 og 6. Isl. tal.Vit nt 126.
Sýnd kl. 4,6,8 og 10. Vit nr. 119. | Sýnd kl. 6,8 og 10. Vit nr. 117. | Sýnd kl. 8 og 10.20. b. í. 12. vi
Kaupið miða í gegnum VITÍð. Nánari upplýsingar á vit.is
Gamanmynd með rómantisku ivafi um tilvistar-
kreppu karlmanna á þritugsaldri sem óttast
skuldbindingar. John Cusack (Grosse Pointe Blank,
Con Air) Catharine Zeta Jones (Zorro) og Tim
Robbins (Nothing to lose) i gestahlutverkum.
PERFECT STORM
Blaðamenn á Toronto-kvikmyndahátíðinni hrifust af 101 Reykjavík
Valin besta
mynd í sín-
um flokki
f
Velgengni Engla alheimsins og sérstaklega
101 Reykjavíkur á nýafstaðinni kvikmynda-
hátíð í Toronto-borg hefur vakið mikla at-
hygli. Jón E. Gústafsson fylgdist með ferð-
um íslenska kvikmyndagerðarfólksins og
varð vitni að áhuga sem vart á sér fordæmi.
ALÞJÓÐLEGA kvik-
myndahátíðin í Toronto
er ein mest sótta kvik-
myndahátíð í heimi. Yfir
250 þúsund áhorfendur flykktust á
þær 329 kvikmyndir sem sýndar
voru þá tíu daga sem hátíðin stóð yf-
ir. Tvær íslenskar kvikmyndir voru
sýndar á hátíðinni að þessu sinni,
101 Reykjavík og Englar alheimsins.
Báðar myndirnar vöktu athygli og
fljótlega spurðist út meðal hátíðar-
gesta að þær íslensku væru myndir
sem enginn ætti að missa af.
Handalögmál
Þessi orðrómur spurðist það fljótt
út að til handalögmála kom fyrir
sýningu á 101 Reykjavík á Alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni í Toronto.
Þessi sýning var sérstaklega ætl-
uð þeim sem kaupa og selja kvik-
myndir og dreifa þeim og einnig
blaðamönnum. Vísa þurfti sextíu
manns frá og ekki voru allir ánægðir
með þau hlutskipti, „það var ótrú-
legt að sjá fólkið hreinlega slást um
síðustu sætin. Það eru greinilega
Veldu fjóra!
Regnbogaskírteini Sinfóníunnar er máliö.
Fernir tónleikar að eigin valí með fínum afslætti.
Fáðu þér Regnbogaskírteini og sætið er tryggt.
Munið námsmannaafsláttinn Hástóiabióv/Hagatorg
- miðar á hálfvirði samdægurs Slmi 545 2500
www.sinfonia.is
r
Ljósmynd/Jón Gústafsson
Haldinn var blaðamannafundur með tíu efnilegustu leikstjórum Evrópu og var Baltasar þeirra á meðal.
Victoria og Baltasar voru umvafin athygli í Toronto.
merkilegir hlutir að gerast í kvik-
myndasögu íslands," sagði Stephen
Holt, sjónvarpsmaður frá New York
sem gert hefur sjónvarpsþætti um
listir og menningu á íslandi. „Ég er
sannfærður um að þessar myndir
munu ná mjög langt og Baltasar
mun verða stórt nafn í þessum
bransa.“ „Þetta er í þriðja skiptið
sem ég kem á þessa hátíð en við höf-
um aldrei fengið jafn sterkar mót-
tökur og nú,“ sagði Þorfinnur Óm-
arsson, framkvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs íslands.
Baltasar Kormákur, leikstjóri 101
Reykjavík, sagðist hafa farið á hátíð-
ina til þess að selja sýningarréttinn í
sem flestum löndum og honum hefur
orðið vel ágengt. „Við erum búnir að
selja sýningaiTéttinn fyrir alla Suð-
ur-Ameríku, Þýskaland og Frakk-
land hér á hátíðinni og það lítur út
fyrir að sýningarrétturinn í Kanada
seljist hér líka og sjálfsagt einhver
önnur svæði,“ sagði Baltasar.
Búið er að ganga frá samningum
um að myndin verði sýnd í kvik-
myndahúsum í nálægt þrjátíu lönd-
um og er Bretland á meðal þeirra.
Erlendar kvikmyndir hafa löng-
um átt á brattann að sækja á Banda-
ríkjamarkaði því áhorfendur þar í
landi eru ekki vanir að hoi'fa á text-
aðar kvikmyndir. Neil Friedman
sem fer með sölu á báðum þessum
kvikmyndum í Bandaríkjunum telur
samt að 101 Reykjavík eigi góða
möguleika á að seljast þar á næst-
unni. „Þessar myndir eru ólíkar og
því munum við nota ólíkar aðferðir
við að ^ markaðssetja þær,“ sagði
Neil. „Ég tel áttatíu prósent líkur á
því að 101 Reykjavík muni seljast í
kvikmyndahúsadreifingu á næst-
unni. Það getur tekið lengri tíma að
selja Engla alheimsins því hún er
þyngri mynd.“ „Ég geri ráð fyrir því
að Englar alheimsins verði sýnd á
öðrum stórum kvikmyndahátíðum í
Norður-Ameríku" sagði Neil. „Við
þurfum að koma henni hægt og síg-
andi áfram og fá umfjöllun um hana í
blöðum. Þá mun hún ná sér á gott
strik á Bandaríkjamarkaði," sagði
Neil.