Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gæsaskytta
fékk högl í
báða fætur
GÆSASKYTTA varð fyrir slysa-
skoti veiðifélaga síns í Kaldárholti í
Holta- og Landsveit í Rangárvalla-
sýslu í gærkvöldi. Veiðifélagarnir
höfðu legið eftir bráð fram í myrkur
og þegar sá er varð fyrir skotinu
hreyfði sig taldi veiðifélaginn að þar
væri gæs á ferð.
Maðurinn, sem var með tveimur
félögum sínum við veiðar, fékk
haglaskot í báða fætur af stuttu
færi og var fluttur á slysadeild
Landspítalans í Reykjavík eftir að
félagar hans höfðu komið honum
undir læknishendur á Selfossi.
Hann var fluttur með sjúkrabíl til
Reykjavíkur þar sem höglin voru
fjarlægð úr fótum hans. Ekki er tal-
ið að meiðsl mannsins séu varanleg.
Hafði 28
milljónir af
sex körlum
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um að hálfsjötug kona sæti gæslu-
varðhaldi til 25. september vegna
fjársvika en hún hefur viðurkennt
að hafa tekið við rúmlega 28 millj-
ónum króna úr hendi sex roskinna
karlmanna sem hún hefur lítil önn-
ur tengsl við.
Embætti ríkislögreglustjóra
krafðist þess að konan sætti gæslu-
varðhaldi til 28. september. í úr-
skurði Héraðsdóms Reykjavíkur
segir að Ijóst þyki að nauðsynlegt
sé að yfirheyra umrædda karlmenn
nánar um meint brot, kanna tengsl
barna kærðu við sakarefnið og hvað
varð af umræddum fjármunum.
Rannsóknargögn bendi sterklega til
að kærða kunni að hafa áhrif á vitni
og mögulega samseka haldi hún
frelsi sínu meðan rannsókn málsins
sé á þessu stigi. Ekki séu þó efni til
að marka gæsluvarðhaldskröfunni
jafn langan tíma og krafist sé.
Baugur ræðst í breytingar á nokkrum matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Iljörleifur Jónsson byggingameistari á hlaðinu að Árbakka þar sem húsin eru smíðuð.
Fyrstu fimm húsin
tilbúin á tíu dögum
Selfossi. Morgunblaðið.
FYRSTU fimm húsin sem reisa á á
Hellu vegna jarðskjálftanna í sum-
ar verða tilbúin til flutnings á und-
irstöður eftir tvo daga. Byrjað var
á húsunum 11. september og er
unnið á vöktum allan sólarhring-
inn við að smíða húsin og ganga
frá þeim.
Það er Hjörleifur Jónsson, bygg-
ingameistari á Akranesi, sem
smíðar húsin og er hann í sam-
starfi við norskt fyrirtæki um
framleiðslu húsanna. AUs mun
Hjörleifur smíða og ganga frá
tuttugu húsum sem öllum er skilað
fullfrágengnum með öllum inn-
réttingum.
36 menn starfa að byggingu
húsanna, þar af eru sextán frá
norska samstarfsfyrirtækinu.
Byrjaði undirbúning strax
Hjörleifur sagðist hafa byrjað
að undirbúa það að bjóða fram hús
vegna jarðskjálftanna strax eftir
að þeir riðu yfir, þar sem honum
fannst það liggja í augum uppi að
bregðast þyrfti við vanda vegna
skemmda á húsum. „Ég er hér með
hörkumannskap og á því byggist
það að þetta gangi. Þetta er ögr-
andi verkefni og gaman þegar það
gengur upp,“ sagði Hjörleifur.
Skiladagur verksins er 1. nóv-
ember og þá segist hann verða
klár með tuttugu hús sem samið
var við hann um að smíða.
Fullfrágengin með
innréttingum
Hvert hús er 80 fermetrar að
stærð, með þremur herbergjum,
Unnið við að einangra eitt hús-
anna.
þvottahúsi, baði, eldhúsi og stofu.
Þeim er skilað fullfrágengnum
með öllum innréttingum þannig að
fólk getur flutt inn. Hjörleifur
sagði að samstarfíð við norska að-
ilann skilaði sér í lægri efnis-
kostnaði og þar af leiðandi hag-
stæðara verði á húsunum.
Fyrstu fimm húsin fara strax í
þessari viku á undirstöður á Hellu
og þá verða tekin fyrir sex hús á
byggingabækistöðinni á Árbakka
þar sem unnið er að smíði hús-
anna.
Þjónusta numer eitt!
Til sölu Suzuki GSX-
R750W árg. 1995,
ekinn 4.000 km, svartur-
fjólublár. Ásett verð
650.000 ath. skipti.
Nánari upplýsingar hjá
Bílaþingi Heklu 569 5500
Opnunartlmar: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 10-14
BÍLAÞING HEKLU
Nvme-r e-íH' í turtvPvm bílvml
Laugavegi 174,105 Reykjavfk, simi 569-5500
’jVvy’jy.bílHíbí/icjj£; - ’jí/w’jV.bjjai/JÍ/jýJ;;j yvyvyy.L»ÍJ'jí/jj/jcjJ/í
STJÓRNENDUR Baugs hf. hafa
ákveðið að ráðast í umfangsmiklar
breytingar á Nýkaupsverslunum
fjórum á höfuðborgarsvæðinu.
Verður verslun Nýkaups í Mosfells-
bæ breytt í Bónusverslun um næstu
mánaðamót og verslunum Nýkaups
í Garðabæ og á Eiðistorgi á Sel-
tjarnarnesi verður breytt í Hag-
kaup ferskvörumarkað.
Schumacher
hafði dvöl
á Islandi
sm
Verslun Nýkaups í Kringlunni
verður hins vegar áfram rekin undir
nafni Nýkaups en þar verður þjón-
usta aukin, m.a. með opnun sér-
staks fiskborðs og áhersla verður
lögð á að hafa fagmenntað fólk við
afgreiðslustörf og til ráðgjafar fyrir
viðskiptavini. Þá verður vöruval í
versluninni aukið um 15%.
Lægra vöruverð vegna breyt-
ingar í Hagkaupsverslanir
Að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, forstjóra Baugs, er markmið-
ið með þessum breytingum að auka
hlut verslana sem bjóða hagstætt
vöruverð og stuðla þar með að
auknum hlut verslana sem bjóða
lágt matvöruverð á Islandi.
Jón segir að breyting verslana
Nýkaups á Seltjarnarnesi og I
Garðabæ í Hagkaupsverslanir muni
hafa í för með sér lækkun vöru-
verðs, sem taki mið af verðlagi í
verslunum Hagkaups eins og það er
í dag. Eftir breytinguna muni verð-
lag í þessum verslunum því lækka
um 6 til 8%.
„Við höfum fylgst mjög náið með
markaðinum í gegnum viðamiklar
kannanir sem Baugur hefur fram-
kvæmt í viðleitni okkar til að þjóna
neytendum sem best í þessum
hverfum. Við höfum fundið fyrir því
að neytendur leggja mikla áherslu á
lágt verðlag á matvöru og jafnframt
hefur komið í ljós að það er markað-
ur fyrir verslun með enn hærra
þjónustustig en við höfum verið
með í Nýkaupsverslununum fram
að þessu. Þar sjáum við tækifæri
Morgunblaðið/Golli
Verslunin Nýkaup í Kringlunni verður áfram rekin undir nafni Nýkaups
en auka á þjónustu innanbúðar og vöruval í versluninni.
fyrir glæsilega verslun í Kringlunni.
Verslun Nýkaups í Mosfellsbæ
verður breytt í Bónusverslun. Þar
hefur vantað lágvöruverðsverslun
og við höfum fundið fyrir miklum
þrýstingi frá íbúum Mosfellsbæjar
um að begðast við þessu. Við teljum
því að sú breyting muni falla vel að
óskum þeirra," sagði Jón Ásgeir.
Hagræðingaraðgerðir
innan fyrirtækisins
Er reiknað með að breytingarnar
verði að fullu komnar til fram-
kvæmda um miðjan október næst-
komandi.
Að sögn Jóns Ásgeirs verður
samhliða þessum breytingum unnið
að aukinni hagræðingu innan fyrir-
tækisins, til að fylgja eftir þessari
lækkun vöruverðs.
Breytingarnar munu ekki hafa
áhrif á fjölda starfsmanna Baugs,
þar sem öllu starfsfólki þessara
verslana verður tryggð áframhald-
andi vinna. Hins vegar verður gerð
sú breyting á yfirstjórn verslan-
anna að Árni Ingvarsson, sem hefur
verið innkaupastjóri Nýkaups, tek-
ur við rekstri Nýkaups í Kringlunni
og Finnur Árnason, framkvæmda-
stjóri Nýkaups, fer til starfa á aðal-
skrifstofu Baugs, skv. upplýsingum
Jóns Ásgeirs.
MICHAEL Schumacher, ökuþór hjá
Ferrari í Formúlu-1, hafði næturdvöl
á íslandi á leið sinni til Bandaríkj-
anna, en þai- fer næsti kappakstur
fram um komandi helgi.
Schumacher kom til Keflavíkur-
flugvallar upp úr miðnætti á sunnu-
dagskvöld ásamt eiginkonu sinni,
Corinne, með áætlunarílugi Flugleiða
frá Dusseldorf og dvaldist í Keílavík
fram yfir hádegi í gær er hann hélt
aftur upp á flugvöll til áframhaldandi
flugs til Bandaríkjanna.
Þremur Nýkaupsverslunum
breytt í Hagkaup og Bónus