Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Mikil óvissa í stjórnmálum Perú eftir að Fujimori boðar afsögn
Stjórnarandstaðan óttast
að herinn ræni völdunum
Lima. Reuters, AFP, AP.
LEIÐTOGAR stjórnarandstöðunn-
ar í Perú segjast hafa áhyggjur af
því að herinn kunni að reyna að
taka völdin í sínar hendur eftir að
Alberto Fujimori forseti tilkynnti
óvænt um helgina að hann hygðist
láta af embætti vegna mútumáls
helsta bandamanns hans.
Fujimori skýrði frá því í
sjónvarpsávarpi á laugardag að
hann hygðist boða til forsetakosn-
inga sem fyrst og ekki gefa kost á
sér til endurkjörs. Stjórnarandstöð-
unni hafði þá borist myndbands-
upptaka þar sem helsti bandamað-
ur forsetans, Vladimiro Montes-
inos, yfirmaður leyniþjónustu
landsins, sást afhenda einum af
þingmönnum stjórnarandstöðunnar
peninga, að því er virðist fyrir að
ganga til liðs við flokk Fujimoris á
þinginu.
Louis Solare, framkvæmdastjóri
stærsta stjórnarandstöðuflokksins,
hvatti til þess að Montesinos yrði
handtekinn og sagði að vegna ná-
inna tengsla hans við yfirmenn
hersins kynni hann að verða mjög
áhrifamikill í landinu þegar Fujim-
ori segði af sér. „Hætta er á að her-
inn fremji valdarán," sagði Solare
og kvaðst vona að samið yrði við
herinn um að komið yrði á fullu lýð-
ræði í landinu.
Montesinos áhrifamikill
í hernum
Orðrómur er á kreiki í Lima um
að Fujimori hafi ákveðið að boða til
forsetakosninga vegna andstöðu yf-
irmanna hersins við áfoiTn hans um
að leysa leyniþjónustuna upp.
Leyniþjónustan er illræmdasta
stofnun landsins og Montesinos
hefur tryggt sér mikinn stuðning
innan hersins með því að koma vin-
um sínum til æðstu metorða í hern-
um. Margir Perúmenn telja að
Montesinos sé í raun áhrifameiri en
Fujimori og óttast að hann reyni
allt sem hann geti til að halda völd-
um sínum. Stjórn landsins lagði þó
áherslu á að Fujimori nyti fulls
AP
Alberto Fujimori
stuðnings hersins þrátt fyrir óstað-
festar fregnir um að nokkrir af yfir-
mönnum hans hygðust leggjast
gegn því að Montesinos yrði vikið
frá.
Hermálasérfræðingar sögðu lík-
legt að ákvörðun Fujimoris nyti
stuðnings margra herforingja sem
hefðu fengið sig fullsadda af af-
skiptum Montesinos af hernum.
Daniel Mora, fyrrverandi hershöfð-
ingi, kvaðst efast um að Montesinos
nyti nógu mikils stuðnings í hernum
til að geta hafið uppreisn en bætti
við að það væri þó hugsanlegt.
Lagasérfræðingar segja að mikil
óvissa hafi skapast í stjórnmálum
landsins. Fujimori hefur ekki skýrt
frá því hvenær hann hyggist láta af
embætti eða hvernig undirbúningi
kosninganna verði háttað.
Alejandro Toledo, helsti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, kvaðst vera
tilbúinn að taka við stjórn landsins
og gefa kost á sér í forsetaem-
bættið. Hann kvaðst ætla að ræða
við aðra leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar um að þeir tækju höndum
saman í kosningabaráttunni en lét
þó í ljós efasemdir um að Fujimori
stæði við orð sín þegar á reyndi.
Toledo var helsti keppinautur
Fujimoris í síðustu kosningum en
ákvað að sniðganga síðari umferð
kosninganna í maí og sakaði for-
setann og stuðningsmenn hans um
að hafa undirbúið viðamikil kosn-
ingasvik. Fujimori var endurkjör-
inn með 52% atkvæða.
Alejandro Aguinaga heilbrigðis-
ráðherra sagði að forsetakosning-
arnar yrðu að öllum líkindum
haldnar eftir sex til sjö mánuði.
Federico Salas forsætisráðherra
sagði að Fujimori yrði við völd þar
til kosningarnar færu fram. Nokkr-
ir leiðtogar stjórnarandstöðunnar
vilja hins vegar að Fujimori láti
strax af embætti og mynduð verði
bráðabirgðastjórn.
Martin Belaunde, formaður sam-
taka lögmanna í Perú, sagði að áður
en forsetakosningarnar gætu farið
fram þyrfti að mynda bráða-
birgðastjórn, stofna sérstakt þing
til að semja nýja stjórnarskrá og
breyta kosningalöggjöf landsins.
Francisco Tudela varaforseti sagði
að efna þyrfti til þjóðaratkvæða-
greiðslu um nýja stjórnarskrá og
breytingar á kosningalöggjöfinni
fyrir kosningarnar til að tryggja að
þær yrðu lýðræðislegar. Hugsan-
legt er að Tudela taki við forseta-
embættinu verði mynduð bráða-
birgðastjórn fyrii' kosningarnar.
Ákvörðun Fujimoris fagnað
Fujimori hefur verið gagnrýndur
fyrir einræðistilburði og mannrétt-
indabrot á tíu ára valdatíma sínum.
Þúsundir manna streymdu út á göt-
ur Lima til að fagna ákvörðun for-
setans.
Leiðtogar margra Ameríkuríkja
fögnuðu einnig ákvörðuninni. Jake
Siewert, talsmaður Bandaríkjafor-
seta, sagði að bandaríska stjórnin
hefði hvatt til lýðræðislegra umbóta
í Perú frá kosningunum í maí og
vonaði að ákvörðun Fujimoris yrði
til þess að fullt lýðræði kæmist á.
Sakaður um að múta
þingmönnum
Fujimori sagði í sjónvarpsávarp-
inu að mútumálið hefði grafið und-
an stjórninni og stöðugleika í land-
inu. Ríkissaksóknari Perú hefur
hafið rannsókn á málinu en Mont-
esinos hefur ekki verið handtekinn.
Montesionos varð helsti banda-
maður forsetans eftir að Fujimori
komst til valda árið 1990. Stjórnar-
andstæðingar segja að helsta hlut-
verk Montesinos hafi verið að grafa
undan lýðræði og tryggja forsetan-
um stuðning þingsins, hersins og
fjölmiðlanna.
Flokkur Fujimoris fékk aðeins 53
þingsæti af 120 í þingkosningunum
í apríl en þingmönnum hans hafði
fjölgað í um 70 þegar þriðja kjör-
tímabil forsetans hófst 28. júlí þar
sem nokkrir stjómarandstæðingar
gengu til liðs við stjórnarflokkinn.
Stjórnarandstaðan segir að þing-
mönnunum hafi verið mútað.
Myndbandsupptakan, sem leiddi
til ákvörðunar Fujimoris, virðist
staðfesta þetta því Montesinos sést
þar afhenda fyrrverandi stjórnar-
andstæðingi, þingmanni sem gekk
til liðs við stjórnarflokkinn nýlega,
15.000 dali, andvirði rúmra 1,2
milljóna króna.
Fernando Olivera, leiðtogi
stjórnarandstöðuflokks sem fékk
myndbandið, sagði að það hefði
komið frá manni sem tengdist and-
stæðingum Montesinos í hernum.
Olivera kvaðst hafa fengið fleiri
myndbandsupptökur þar sem
Montesinos sæist múta fjármála-
mönnum, blaðamönnum, þingmönn-
um og jafnvel nokkrum herforingj-
um til að styðja Fujimori.
Hermt er að leyniþjónustan hafi
reynt að handtaka hermann, sem er
sagður hafa afhent flokknum
myndbandsupptökuna, en herinn
hafi komið í veg fyrir það.
The Washington Post segir að
nokkrir af yfirmönnum hersins hafi
neitað að mæta á fund sem Fujim-
ori boðaði á laugardagsmorgun til
að kanna hversu mikils stuðnings
hann nyti í hernum. Blaðið segir að
ekki sé vitað hvort yfirmennirnir
hafi snúið baki við Fujimori af holl-
ustu við Montesinos eða í því skyni
að reyna að flýta fyrir afsögn for-
setans.
Bandaríska dagblaðið Miami
Herald hefur eftir heimildarmönn-
um sínum í Perú að Fujimori hafi
ákveðið að segja af sér til að reyna
að koma í veg fyrir að fjölmiðlarnir
fengju fleiri myndbandsupptökur
leyniþjónustumanna sem gætu
skaðað stjórnina. Erfitt verði fyrir
Fujimori að reka Montesinos þar
sem leyniþjónustuforinginn geti
hefnt sín með því láta fjölmiðlunum
í té upplýsingar um forsetann sem
gætu komið honum í mikinn vanda.
Heimsókn Wu Yi, meðlims í rflrisráði Kína, til fslands
Sóknarfæri á
sviði orkumála
WU Yi, sem á sæti í kínverska ríkis-
ráðinu, æðsta handhafa fram-
kvæmdavaldsins í Kína, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
viðskipti milli Islendinga og Kín-
veija ættu án efa eftir að aukast
mjög á komandi árum.
Wu Yi var utanríkisviðskipta-
ráðherra Kína á árunum 1993 til
1996 og sinnir nú sérstaklega við-
skiptamálum í ríkisráðinu. Hún var í
opinberri heimsókn hér á landi í boði
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðheira og sat í gær ráðstefnu á
vegum viðskiptaþjónustu utanríkis-
ráðuneytisins og Útflutningsráðs
um viðskiptatækifæri íslenskra fyr-
irtækja í Kína.
Wu Yi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að heimsóknin hingað til
lands hefði verið árangursrík og að
hún og Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra hefðu átt gagnlegar við-
ræður um hvemig auka mætti við-
skipti milli Islands og Kína. „Eg tel
að frjáls verslun komi ávallt báðum
aðilum til góða, sérstaklega á þess-
um tímum hnattvæðingar," sagði
Wu Yi. „Kínverjar eru reiðubúnir að
auka efnahagssamvinnu og viðskipti
við íslendinga í framtíðinni, á
grundvelli jafnræðis og gagnkvæms
ávinnings, og ég tel að það þjóni
hagsmunum bæði íslendinga og
Kínverja."
Samstarf um lagningu og
rekstur hitaveitu í Peking
Wu Yi kvaðst sjá fyrir sér að ís-
lendingar og Kínverjar gætu átt
mikið samstarf á sviði orkumála í
framtíðinni, en einn megintilgangur
heimsóknarinnai' var að kynnast
nýtingu jarðhita á Islandi. Talið er
að jarðvarma sé að finna á um þrjú
þúsund svæðum í Kína, en miklu
máli skiptir fyrir kínversk stjóm-
völd að auka nýtingu þessarar auð-
lindar, meðal annars til að draga úr
loftmengun í stærstu borgum lands-
ins. Islenska sendiráðið í Kína hefur
haft frumkvæði að því að koma á
tengslum milli kínverskra stjórn-
valda og íslenskra fyrirtækja sem
sérhæfa sig í nýtingu jarðvarma, og
í síðasta mánuði voru undirritaðir
tveir samningar milli Virkis hf„
Orkuveitu Reykjavíkur og borgar-
yfirvalda í Peking um samstarf um
lagningu og rekstur hitaveitu fyrir
hundruð þúsunda íbúa í tveimur
hverfum á Pekingsvæðinu.
Wu Yi nefndi einnig að Islending-
ar stæðu framarlega í hugbúnaðar-
iðnaði og að Kínverjar vildu gjaman
ganga til samstarfs á því sviði. Þá
benti hún á að íslendingar hefðu
nýlega gert samninga um smíði á 21
fiskiskipi í Kína og sagðist telja að
frekara samstarf gæti tekist um
skipasmíði í framtíðinni.
Sjávarafurðir em helsta útflutn-
ingsvara íslendinga til Kína. Wu Yi
benti á að með væntanlegri inn-
göngu Kínverja í Heimsviðskipta-
stofnunina myndu innflutningstollar
á sjávarafurðir verða lækkaðir enn
frekar, og því mætti búast við að enn
stærri markaðir opnuðust í Kína
fyrir íslenska fiskframleiðendur.
Hún sagði að í tengslum við beiðni
Kínverja um inngöngu í Heimsvið-
skiptastofnunina yrði Kína opnað
enn frekar fyrir umheiminum og að
umbótum á sviði stjórnmála og efna-
hagsmála yrði hraðað. „Við erum
sannfærð um að þróun efnahagslífs-
ins verði stöðug, hröð og örugg,“
sagði Wu Yi í samtali við Morgun-
blaðið.
Morgunblaðið/Golli
Wu Yi átti fund með Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra.