Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 75
MORQUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 75 „
Sjáið allt um HOLLOW MAN, SCARY MOVIE ofl. stórmyndir á skifan.is.
Tokið þátt í HOLLQW MAN lcik, sjáið flottan Hollow Man trailer og fleita um Hollow Mnn ó strik.is
Freddie gamli í
nýjum búningi
SKEMMTANIR
Ilroatlway á llótel íslandi
QUEEN
Tónlistarstjóri: Gunnar Þórðarson. Hljóm-
sveit Gunnars Þórðarsonar: Gunnar Þórðar-
son, Haraldur Þorsteinsson, Jóhann Ó. Ingva-
son, Sigfús Óttarsson og Þórir Úlfarsson.
Söngvarar: Bjartmar Þórðarson, Bjartur
Logi Finnsson og Eiríkur Hauksson. Dansa-
höfundur: Jóhann Örn Ólafsson. Dansarar:
Asta Bærings Bjamadóttir, Bjartmar Þórð-
arson, Bjartur Logi Finnsson, Brynjar Örn
Þorleifsson, Inga Maren Rúnarsdóttir,
Sandra Ómarsdóttir og Sigyn Blöndal. Svið-
setning: Egill Eðvarðsson. Hljóð: Gunnar
Smári Helgason. Ljós: Aðalsteinn Jónatans-
son. Búningar: Sigríður Guðlaugsdóttir.
Kynnir: Jóhann Öm Ólafsson. Laugardagur
16. september.
HLJÓMSVEITIN Queen náði þeim fá-
heyrða árangri að vera í efstu sætum vinsælda-
lista um allan heim í sautján ár. Aðalsöngvari
hljómsveitarinnar, Freddie Mercury, lést af
völdum alnæmis 24. nóvember 1991. Hann var
án tafar hafinn á þann stall sem ætlaður er
þeim stjörnum úr skemmtanabransanum sem
falla frá í blóma lífsins. Þó að síðan hafi komið
út efni með hljómsveitinni var Freddie svo
áberandi í framlínunni að lát hans hlaut í raun
að setja endapunktinn við feril hljómsveitar-
innar.
Sýning sú sem hér er til umræðu er ekki til-
raun til að vekja Freddie Mercury upp frá
dauðum. Aftur á móti er kröftugasti rokk-
söngvari okkar, Eiríkur Hauksson, fenginn til
að syngja lög sem urðu vinsæl með Queen og
sett er á svið sjónarspil í kringum flutning hans
1 anda tónlistarinnar sem er alltaf í fyrirrúmi.
Það væri ógjörningur að breyta Eiríki í Fredd-
ie, svo ólíkir sem þeir eru í útliti. Að óathuguðu
niáli mætti líka ætla að söngstíll þeirra væri
svo ólíkur að Eiríkur hentaði ekki í hlutverkið.
En það er öðru nær; hann fór létt með að
syngja öll þau lög sem voru valin og það sem
meira er, gera þau að sínum sem er einn helsti
kosturinn við flutninginn. Allt var á sama veg-
mn: sviðsframkoma, öryggi í söng og hreyfing-
um, persónuleikinn og athugasemdimar á borð
við: „Enn á ný á að færa Freddie gamla í nýjan
jakka,“ enda fór Eiríkur í gegnum töluvert
jakkasafn áður en yfir lauk. Eiríkur er bestur
sem hann sjálfur í einni og óbreytanlegri út-
gáfu. Þetta átti jafn-vel við þegar hann var
kominn í húsfreyjubúning með voldugt yfir-
varaskegg og dansaði af öryggi á háum hælum.
Búningar Sigríðar Guðlaugsdóttur tóku að
sjálfsögðu mið af einkennisklæðnaði Freddie
Mercury, adidasskór og æfingabuxur voru
grunnflíkur allra en m.a. skipt úr hvítu í svart
eða klæðst kuflum til að fá tilbreytingu. í raun
var einfaldleikinn í fyrirrúmi í kringum sí-
breytilega búninga aðalsöngvarans; dæmi sem
gekk mjög vel upp.
Eiríkur söng af tilfinningu og með tilþrifum
allar helstu perlur hljómsveitarinnar á milli
búningaskipta. Þó að rokkuðustu lögin ættu
best við hann, allt frá „Killer Queen“ til hins
kraftmikla flutnings á „We Will Rock You“,
verður að segjast eins og er að það kom undir-
rituðum algjörlega á óvart hve túlkun hans var
fjölbreytt og hve vel hann komst frá erfiðustu
lögum. Eiríkur geislaði af þvílíku öryggi að
hann átti salinn í hverju atriði sem hann kom
fram í.
Ókosturinn við sýningar þar sem flutt eru
lög sem hafa orðið fræg með öðrum flytjendum
er sá að spilamennskan verður á stundum nið-
urnjörvuð. Hæfileikaríkir tónlistarmenn eru
fengnir til að líkja eftir leik annarra í þekktum
útsetningum, jafnt samspili sem sólóum. Sú
staðreynd að hér voru bakraddirnar á stundum
leiknar af bandi auk einstaka annarra innskota
gerir flutninginn enn erfiðari því hraðinn verð-
ur alltaf að vera nákvæmlega sá sami. Hér má
skjóta inn í að Queen sjálf lét gjarnan spila erf-
iðasta hluta „Bohemian Rhapsody“ af bandi á
hljómleikum. í heild var undirleikurinn ein-
staklega vandaður enda ekki heiglum hent að
ná gítarsólóum Brians May eða trommum
Rogers Taylor en það var greinilegt að hljóm-
sveitarmeðlimir voru sem leystir úr viðjum í
hörðu rokklögunum þegar þeirra eigin sköpun-
arkraftur fékk útrás og Eiríkur náði hæstu
hæðum. Skemmtilegur samleikur Gunnars og
Vilhjálms á rafmagnsgítarana í „Another One
Bites the Dust“ og „Under Pressure" auk
kassagítara í „Love of My Life“ er eftirminni-
legastur af fjöldamörgum hápunktum í hljóð-
færaleiknum en umfram allt var samspilið
gegnheilt.
Tveir aðrir söngvarar fengu að spreyta sig á
einstaka lagi: Bjartmar Þórðarson sem er
margreyndur þrátt fyrir ungan aldur og Bjart-
w w w .
Sýnd kl. 6,
Sýnd kl. 6, 8 og 10. b. i. i2ára.
EY----------------
Kviktnyndir.is
***
SV Mtll
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.05.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leðurklæddur Eiríkur Hauksson kom í sífellu á óvart.
ur Logi Finnsson sem er nýgræðingur í brans-
anum. Fyrir hlé söng Bjartmar lagið „You
Don’t Fool Me“ sem er með hörðum danstakti
og Bjartur Logi „Radio Ga Ga“ og tókst vel
upp enda með mikla rödd. Sérstaklega var þó
ánægjulegt að heyra kraftmikinn flutning
þeirra beggja saman á laginu „Under Press-
ure“ sem Freddie Mercury söng með David
Bowie. Aftur á móti varð
reynsluleysi Bjarts Loga
honum að fótakefli í upp-
hafi lagsins „It’s a Kind of
Magic“ og flutningur þess
varð of kraftlítill.
Bjartmar og Bjartur
Logi voru líka hluti af
danshópnum, Bjartmar
þar fremstur í flokki,
kraftmikill og einbeittur
að vanda. Auk þeirra
dönsuðu fimm kornungir
dansarar (öll undir tvít-
ugu) undir stjóm Jó-
hanns Arnar Ólafssonar.
Dansamir vora oft
skemmtilega unnir og út-
færðir og ótrúlegt hve veL
fimmmenningarnir kom-*
ust frá sínu enda augljóst
að þau búa yfir talsverðri
reynslu þrátt fyrir ungan
aldur. Stundum skorti
nokkuð á samhæfingu en
gera má ráð fyrir að hún
komi eftir því sem sýning-
um fjölgar.
Egill Eðvarðsson átti
margar góðar hugmyndir
í uppsetningunni en út-
færslan á hlutverkum
dansaranna þyrfti að vera
markvissari og beittari,
t.d. í „Bicycle Race“ og „I
Want to Break Free“.
Hápunktur sýningar-
innar var að sjálfsögðif-
flutningurinn á „Bohemi-
an Rhapsody“ og þakið
ætlaði af húsinu. Undir-
spilið var betra en orð fá
lýst, Eiríkur Hauksson
kom enn einu sinni
skemmtilega á óvart og
fór langt fram úr öllum
væntingum.
Aðdáendur hljómsveit-
arinnar Queen geta ekki
annað en verið ánægðir
með að hljómsveitarinnar
sé minnst með þessum
hætti og ekki annað hægt en að hvetja þá til að
rifja upp lög hennar með Eiríki Haukssyni og
félögum. Ekki er úr vegi að minnast á matinn
sem borinn var fram fyrir sýninguna en Rúnatí?
Kristinsson og Sigurður Þorberg áttu veg og
vanda af honum. Hann var bæði mjög góður og
vel fram reiddur.
Sveinn Haraldsson
Simi 462 3500 • AKureyn • www.netl.is/borgaibio
Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is