Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 31
FRÉTTIR
Nýtt andlit hjá Finnair og fleiri ferðast á viðskiptafarrými
HAGNAÐUR finnska flugfélags-
ins, Finnair, varð nærri 50 milljón-
ir evra á fyrsta fjórðungi þessa
fjárhagsárs, apríl til júní. Er það
næstum jafnmikill hagnaður og allt
síðasta rekstrarár. Christer Hag-
lund, yfirmaður upplýsingamála
Finnair, segir áfram útlit fyrir
góða afkomu og stefnir fyrirtækið
að því að ná 100 milljóna evra
hagnaði árið 2002.
Fjárhagsár Finnair verður fram-
vegis almanaksárið en það hefur til
þessa verið apríl til mars. Fyrsta
júní í ár hófst vinna við að breyta
útliti og merkingum á þotum fé-
lagsins, bílum og tækjum, ein-
kennisbúningúm og allri framsetn-
ingu á efni og öðru sem frá félaginu
kemur.
Christer Haglund segir breýt-
ingarnar taka nokkra mánuði en
forystumenn Finnair töldu mikil-
vægt að breyta útliti um leið og
menntunarmál starfsmanna voru
endurskipulögð svo og ýmislegt
annað í starfsemi fyrirtækisins.
Hærra hlutfall farþega
á viðskiptafarrými
Á síðasta ári tókst að snúa
rekstrarafkomu Finnair við eftir
nokkur ár með taprekstur. Hlutfall
farþega á viðskiptafarrými hefur
aukist í um 25% sem upplýsinga-
fulltrúinn segir hraðari aukningu
en hjá mörgum öðrum evrópskum
flugfélögum. Meðal skýringa á
fleiri farþegum sem greiða hærra
fargjald segir hann vera betra
efnahagsástand í Finnlandi og
bætta þjónustu á viðskiptafarrým-
inu. Þá segir hann fraktflutninga
fyrirtækisins hafa aukist mjög.
Finnair rekur ekki sérstakar frakt-
vélar en notar farþegaþoturnar að
því marki sem unnt er og notar
Stefnt að 100 milljóna
evra hagnaði árið 2002
Finnair tók í sumar upp nýtt merki á allar flug-
vélar, tæki og allt efni fyrirtækisins.
einnig ýmsar aðrar leiðir við frakt-
flutningana, t.d. bíla. Hækkun elds-
neytisverðs er helsti útgjaldaauki
Finnair um þessar mundir og juk-
ust þau útgjöld um 50 milljónir
evra á síðustu mánuðum. Christer
Haglund segir ekki unnt að velta
nema hluta af þeirri hækkun út í
farmiðaverðið og því sé nú unnið
hörðum höndum að því að skera
niður kostnað á sem flestum svið-
um rekstrarins. Er hver rekstrar-
eining gerð sjálfstæðari og þannig
gert auðveldara um vik að fylgjast
náið með stöðu hennar hverju
sinni.
Um 9 þúsund starfsmenn
við flugreksturinn
Starfsfólki hefur verið fækkað
um nokkur hundruð, en það er nú
alls kringum 11.000 og starfa um
9.000 við flugreksturinn sjálfan.
Nokkrar rekstrareiningar hafa
verið seldar. Til dæmis seldi félagið
fyrir nokkru eina stærstu ferða-
skrifstofu sína en það rekur þó
áfram sölu- og ferðaskrifstofur.
Hann telur enda hlutverk ferða-
skrifstofa vera að breytast og
stefnir Finnair að því að auka mjög
hlut farmiðasölu sinnar á Netinu. I
dag segir hann umtalsverða sölu á
tilboðsmiðum á Netinu, síðustu
sætunum, sem seld eru með stutt-
um fyrirvara. Finnair var einna
fyrst flugfélaga til að bjóða far-
miðabókanir með WAP-símum og
stefnt er að því að
árið 2006 verði helm-
ingur farmiða seldur
gegnum Netið eða
um farsíma.
Flugfloti Finnam í
dag er nærri 60 vélar
en um þessar mundir
stendur yfir víðtæk
endurnýjun hans.
Hefur félagið nýlega
tekið við sex þotum
af gerðinni Áirbus
320 sem eiga að
leysa af MD-80-þot-
urnar. Sex þotur eru
í pöntun og félagið
hefur möguleika á 28
til viðbótar. Þessar
þotur eru einkum
notaðar á styttri
leiðunum og segir
Haglund þær rúm-
betri og mun spar-
neytnari. Er meðal
annars byggt á þessum aðgerðum
þegar reynt er að segja fyrir um
hagnað næstu árin. Á langleiðum
hefur Finnair notað MD 10- og MD
11-breiðþotur og félagið hefur
fimm B 757-þotur sem einkum eru
notaðar í leiguflug til sólarlanda.
í bandalagi með sjö
öðrum félögum
Fyrir ári gekk Finnair til móts
við flugfélagabandalagið One
World sem í eru félögin Aer Ling-
us, American Aii'lines, British
Airways, Cathay Pacific, Iberia,
LanChile og Quantas. Er að því
margvíslegt hagræði fyrir Finnair
sem upplýsingafulltrúinn segir að
sé verðlagt á kringum 20 milljónir
evra á ári. Meðal hagræðis er að fé-
lög innan bandalagsins skipta með
sér að fljúga á ákveðnum leiðum og
þannig næst að halda góðri ferða-
tíðni sem hann segir að sé grund-
vallaratriði í flugrekstri, ekki síst
þegar um farþega á viðskipta-
farrými er að ræða. Þá er greiðara
um samninga um þjónustu við af-
greiðslu flugvéla á jörðu niðri og
segir Haglund þar unnt að spara
stórar fjárhæðir einnig. Enn má
nefna þann ávinning sem felst í því
að félagið er sýnilegra á fleiri leið-
um í slíku samstarfi en það getur
orðið eitt og sér.
Finnair er gamalgróið flugfélag,
stofnað 1923, og er meirihluti
hlutafjár í eigu ríkisins. Auk milli-
landaflugs er víðtækt innanlands-
flug á hendi Finnair og nefnir
Haglund sem dæmi að mjög tíðar
ferðir séu orðið milli Helskini og
Oulu í norðurhluta landsins. Það er
mikil háskóla- og tækniborg þar
sem mörg hugbúnaðar- og há-
tæknifyrirtæki hafa aðsetur.
Fyrstir yfir
norðurpólinn
Haglund segir félagið jafnan
hafa verið framarlega í að feta nýj-
ar slóðir í rekstri sínum, m.a. í
ýmsu er lýtur að flugi á norðlægum
slóðum. Þannig hóf Finnair flug yf-
ir norðurpólinn milli Evrópu og Ás-
íu þegar önnur félög urðu að milli-
lenda í Anchorage í Alaska á þeim
árum sem ekki mátti fljúga yfir þá-
verandi Sovétríki. Voru DC 10-
breiðþoturnar búnar stærri elds-
neytistönkum sem gerði þetta
langa flug kleift.
Aðalkeppinautur Finnair í flugi
milli Norðurlanda er SAS en
Finnair er næststærsta flugfélagið
sem flýgur út frá Arlanda-flugvelli
við Stokkhólm. Haglund segir
lággjaldaflugfélögin, svo sem hið
breska Go og hollenska félagið
Buzz, ekki hafa ógnað Finnair eða
tekið frá þeim farþega heldur virð-
ist sem slík félög nái fyrst og
fremst nýjum farþegum.
LJONIÐ A VEGINUM
FIOTT OG FREISTANDI
Tákn nýrrar kynslóðar. Fallegt og kraftalegt útlit
endurspeglar fjörið sem einkennir Peugeot 206.
Mikið rými og flott hönnun gera Peugeot 206 að
fjörmiklum farkosti unga fólksins
Vatrtagörðúrri 24 • s. 620 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum sf|
Bllasaia Akureyrar s. 461 2533, Vestmannaeyjar: Bí
Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri
'érkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavik: Bílavik ehf. s. 421 7800.
n PEUGEOT ' ■ i /7 £-$.
í V: /1