Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
I
I
I
li
Safnaðarstarf
Betra líf
í Bústaða-
hverfi
NÚ breytist messutíminn í Bústaða-
kirkju. Barnamessur verða klukkan
11.00 og almennar guðsþjónustur kl.
14.00. Þannig breytir starf kirkjunn-
ar um takt þegar haustar og fleiri lið-
ir verða virkir í safnaðarstarfinu.
Þannig koma ungir sem aldnir saman
til ólíkra þátta starfsins. Þannig fær-
ist meira líf í kirkjuna okkar og marg-
víslegú- þættir starfsins vakna á ný
eftir sumardvalann. Það er hvetjandi
að vita að fólk bíður eftir starfinu og
spyi- gjarnan hvenær það hefjist.
Þessi áhugi og umhyggja fyrir starfi í
kirkjunni okkar er sannarlega hvetj-
andi. Löngunin til þess að koma og
taka þátt í safnaðarstarfinu og verða
þannig virk er til staðar og saman
ætlum við að syngja Guði til dýrðar.
Starfshópur hefur verið starfandi í
hverfinu að undanfömu sem hefur
unnið að úrbótum sem miða að betra
lífi í Bústaðahverfi. Þetta er sam-
starfshópur kirkjunnar, skólanna,
Rnattspymufélagsins Víkings,
Skátafélagsins Garðbúa, Bústaðaauk
lögreglu og félagsmálayfirvalda og
fleiri félaga. Þessi hópur mun starfa
áfram og vinna að settum markmið-
um og tekur starf Bústaðakirkju mið
af þessu markmiði starfshópsins.
Kirkjan er sameiningartákn hverfis-
ins og er opin öllum íbúum og em
sóknarbömin hvött til þess að taka
þátt í starfi hennar.
Nýr umsjónarmaður safnaðar-
starfs hefur komið til starfa hjá
kirkjunni en það er Linda Sjöfn Sig-
urðardóttir sem er kennari að mennt
auk langrar reynslu í kristilegu
starfi.
Hér á eftii’ er minnt á nokkra þætti
í starfi Bústaðakirkju.
Bamamessur era haldnar hvem
sunnudag kl.ll:00. Hér er gott tæki-
fseri fyrir alla fjölskylduna að eiga
innihaldsríkar stundir saman í hópi
með öðram fjölskyldum.
Léttir söngvar, biblíusögur, bænir,
umræður og leikir við hæfi bamanna.
I barnamessum annast organisti
ásamt hópi ungra hljóðfæraleikara
allan tónlistarflutning og söfnuðurinn
syngur. Foreldrar, afar og ömmur
eru sérstaklega hvött til þátttöku
með bömunum og er þakkarvert hve
margir fylgja bömunum til kirkjunn-
ar.
Hljómsveit ungmenna mun spila í
messunum og er stjómandi og organ-
isti í barnamessum Pálmi J. Sigur-
hjartarson sem margir þekkja úr
Sniglabandinu. Þá koma nokkrir nýir
leiðtogar að starfinu, Helena Stef-
ánsdóttir og Atli Bollason auk Báru
Elíasdóttur sem leitt hefur starfið
undanfarin ár ásamt sóknarpresti.
Almennar guðsþjónustur eru
hvem helgan dag kl,14:00. Kirkjukór
Bústaðakii’ku og organisti annast
tónlistarflutning og einsöngvarar
munu einnig syngja. Það ber mikinn
skugga á allt starf Bústaðakirkju
vegna sviplegs fráfalls Guðna Þ. Guð-
mundsonar sem hafði þjónað
kirkjunni í aldarfjórðung. Nú um
sinn mun Sigrún Steingrímsdóttir
organisti taka við starfinu og leiða
kirkjukórinn.
Guðsþjónustan er þungamiðja
safnaðai-ins. Þar kemur söfnuðurinn
saman til þess að lofsyngja Guði og
syngja saman. í umhverfi messunnar
má einnig finna þá þögn og kyrrðsem
þarf til að hejma, hugsa og biðja. í
messunum er flutt tónlist sem er
bæði ný og svo hinir hefðbundnu
sálmar og er hvatt til almennrar þátt-
töku kirkjugesta.
Foreldramorgnar era samverur
foreldra og barna alla fimmtudags-
morgna milli kl.l0:00 og 12:00. Á
þessum samveram er skipst á skoð-
unum og er þetta kærkomin samvera
þeim sem era heimavinnandi.
Boðið er upp á veitingar, te og kaff-
ispjall hjá foreldranum ásamt margs
konar fræðslu á meðan börnin dunda
sér við leiki og létt gaman. Þá er
helgistund með þátttöku allra auk
fræðsluerinda.
T.T.T. æskulýðsstarf fyrir tíu til
ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 63
KIRKJUSTARF
hjálpar til vlð að losa hitaeinlngar úr
forðabúrum líkamans og koma þeim
í orkuframleiðslu.
Minnkar sykurþörf og dregur úr
hungurtilfinningu
LYFJA
Lyf á lágmarksveröi
Lyfja Lágmúla® Lyfja Harwaborg • Lyfja Laugavegi
Lyfja Setbergi* Útibú Grindavík*
Bústaðakirkja
tólf ára er mildlvægur liður í safnað-
arstarfinu. Undir stjórn hæfra leið-
toga munu bömin vinna að margs-
konar verkefnum. Farið verður í
kynnisferðir í fyrirtæki og stofnanir
og börnunum kynntar ólíkar aðstæð-
ur fólks í lífinu. Mikilvægt er að for-
eldrar kynni sér þennan þátt starfs-
ins sem víða er nýlegur
vaxtarbroddur í kirlgulegu starfi.
Foreldrar era því velkomnir að koma
ogverameð.
Æskulýðsstarf er umhverfi og
vettvangur unglinganna. Markmið
þess er að efla jákvæða og heilbrigða
unglingamenningu undir merki Jesú
Krists. Hér er vettvangur fyrir unga
fólkið sem vill vera töff og taka þátt í
töff starfi með Guði. Mikil samskipti
era við önnur æskulýðsfélög, heim-
sóknir og sameiginleg verkefni. Þá
má ekki gleyma útilegum og æsku-
lýðsmótum sem njóta mikilla vin-
sælda. Fundir Æskulýðsfélagsins
verða í félagsmiðstöðinni Bústöðum.
Starf aldraðra er á hveijum mið-
vikudegi, koma aldraðir saman í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Þar bíður
þeiira hópur kvenna sem annast hina
öldraðu bæði hvað varðar veitingar,
hannyrðir og félagslíf. Við höfum
nefnt þennan hóp kærleikshópinn því
starf þeirra er sannarlega vel þegið
og metið. Nú er Sigrún Sturludóttir í
forsvari fyrir kærleikshópinn. Á
hverri samvera er helgistund og
einnig koma margir gestir á samver-
umar og flytja sinn boðskap í máli,
myndum og tónlist. Fyrsta samvera í
starfi aldraðra er miðvikudaginn 26.
september, þá verður farið í haust-
litaferð og sem fyrr er ákvörðunar-
staður ókunnur þar til lagt verður af
stað. Á leiðinni verður áð á góðum
stað og notið góðra veitinga. Skrán-
ing í ferðina er hjá kirkjuvörðum í
síma 553-8500 alla daga til þriðju-
dagsins 25. september.
Kvenfélag Bústaðasóknar Kven-
félag Bústaðasóknar er öflugt félag
sem hefur unnið kirkjunni betur og
meira én flestir aðrir. Fundir félags-
ins era annan mánudag í hverjum
mánuði og fyrsti fundur 9. október.
Dagskrá fundanna er fjölbreytt og
metnaðarfull.
Félagskonur taka vii’kan þátt í
safnaðarstarfi kirkjunnar og er það
einn af grandvallarþáttum í starfi
þeirra. Þær aðstoða meðal annars við
messur annan hvem mánuð, taka á
móti kirkjugestum og sjá um upp-
hafsbæn ogritningarlestra.
Formaður félagsins er Fjóla Krist-
jánsdóttir.
Kammerkór, stúlknakór, bama-
kór og Englakór verða starfandi í
Bústaðakirkju í vetur og hafa verið
að eflast á undanförnum áram. Öfl-
ugt foreldrafélag stendur að baki
starfinu og hefur verið mjög drífandi
í ýmsum þáttum starfsins. Kóramir
syngja í messum einu sinni í mánuði
auk þess að taka þátt í öðram þáttum
kirkjustarfsins. Þá era haldnir tón-
leikar og á síðasta starfsári var farið í
söngferðalag til Englands. Nú er
stefnan sett sunnar í Evrópu og ít-
alía, land söngsins, er ákvörðunar-
staður. Stjórnandi þessara kóra er
Jóhanna Þórhallsdóttir sem er kunn
fyrir frábær störf, meðal annars á
vettvangi Léttsveitarinnar.
Bjöllukór hefur verið starfandi í
Bústaðakirkju um árabil og hefur
hann haldið tónleika víða um land.
Unglingarnir spila einnig á önnur
hljóðfæri og syngja sem gefur starf-
inu aukið gildi og fjölbreyttari mögu-
leika.
Nú er fjórði aldurshópurinn að
taka við af hinum eldri. Stjómandi er
Jóhanna Þórhallsdóttir.
Kirkjukór Bústaðasóknar syngur
við guðsþjónustur og kirkjulegar at-
hafnir og æfir á þriðjudagskvöldum
kl.20:30. Kórfélagar era áhugasamir
og hafa lagt mikið af mörkum til þess
að söngur og tónlist verði virk og
sterk í helgihaldinu. Stjómandi og
organisti verður Sigrún Steingríms-
dóttír.
Einstaklingar, sem era áhugasam-
ir um þátttöku í starfi kórsins, eru
beðnir að snúa sér til organista
kirkjunnar.
Fermingarstarfið er nú að hefjast
og stendur skráning fermingarbama
yfir í kirkjunni. Böm úr Réttarholts-
skóla hafa þegar verið skráð en önn-
ur böm eru beðin að skrá sig í
kirkjunni.
Hjónakvöld era haldin í kirkjunni
og þar er starfandi hjónahópur sem
kemur saman nokkram sinnum á
vetri. Þá era flutt fræðsluerindi um
hjónabandið, heimilislífið eða sam-
skipti hjóna og barna. Einnig hefur
verið fjallað um lögfræði hjónabands-
ins og spurninguna hvað karlar viti
um konur.
Nú er þegar allstór hópur sem tek-
ur þátt í þessu starfi og fá þeir bréf-
lega féttir um starfið. Aðrir, sem hafa
áhuga á þátttöku í slíku starfi, geta
skráð sig hjá kirkjuvörðum.
Fræðslukvöld verða á starfsskrá
vetrarins og þar koma gestafyrirles-
arar til samstarfs. í vetur verður m.a.
fjallað um þá tilfmningu að missa og
finna sig einmana auk þess sem fjall-
að verður um listir og liti kii’kjunnar
auk þeirra tákna sem mæta fólki í
kirkjulegu starfi.
Það er von sóknamefndar og sókn-
arprests að sóknarböm standi saman
að öflugu starfi í Bústaðakirkju og
efli þannig betra mannlíf undir kjör-
orðinu „Betra líf í Bústaðahverfi."
Pálmi Matthiasson,
sóknarprestur.
Innritun ferm-
ingarbarna í
Hallgrímskirkju
Annað kvöld, miðvikudaginn 20.
september kl. 20.00, verður fundur í
Hallgn'mskirkju með fermingarböm-
um sem hyggjast fermast í Hall-
grímskirkju næsta vor og foreldram
þeirra. Á fundinum fer fram innritun
á fermingamámskeiðið og gefnar
verða upplýsingar um fyrirkomulag
fræðslunnar og væntanlega ferming-
ardaga. Mikilvægt er að fermingar-
bömin komi til fundarins með a.m.k.
öðru foreldra sinna eða forráða-
manni.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla al-
durshópa í safnaðarheimilinu kl. 10-
14. Léttur hádegisverður framreidd-
ur. Mömmu- og pabbastund í safnað-
arheimilinu kl. 14-16.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12.10. Orgelleikur, ritnmgar-
lestur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimil-
inu eftir stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin
til bænagjörðar í hádeginu.
Laugameskirkja. Kirkjuklúbbur
(8-9 ára) kl. 14.30. TTT (10-12 ára) kl.
16. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Mark-
viss kennsla um trá. Gengið er inn
um dyr á austurgafli kirkjunnar.
Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lof-
gjörðarstund þar sem Þorvaldur
Halldórsson leiðir söng við undirleik
Gunnars Gunnarssonar og sr. Bjami
Karlsson flytur Guðs orð og bæn.
Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í
kirkjuskipi í umsjá bænahóps
kirkjunnar.
Neskirkja. Foreldramorgunn mið-
vikudag kl. 10-12. Fræðsla: Svefn og
svefnvenjur bama. Hjúkranarfræð-
ingar af heilsugæslustöðinni á Sel-
tjamamesi. Litli kórinn, kór eldri
borgara, kl. 16.30-18. Stjómandi Inga
J. Backman.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn
í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM & K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr-
aðra. Leikfími IAK kl. 11.20. Sam-
vera, léttur málsverður, kaffi. Eldri
bamastarf KFUM & K og Digra-
neskirkju (10-12 ára) kl. 17.
Fella- og Hólakirlga. Foreldra-
stund kl. 10-12. Starf fyrir 11-12 ára
stúlkur kl. 17-18. Æskulýðsfélag fyrir
8. bekkkl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Seljakirkja. Foreldramorgnar.
Opið hús milli kl. 10-12. Kaffi og
spjall.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðar-
kirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í
Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl.17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT tíu til tólf
ára starf alla þriðjudaga kl. 17-18.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.15-19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
áþriðjudögum kl. 10-12.
Boðunarkirkjan. Á morgun, mið-
vikudag kl. 20, heldur áfram nám-
skeið í Boðunarkirkjunni þar sem dr.
Steinþór Þórðarson kennir þátttak-
endum að merkja biblíuna og hvemig
á að leita í henni. Eftir slíkt námskeið
verður biblían aðgengilegri og auð-
veldara að fletta upp í henni. Allir
hjai’tanlega velkomnir og aðgangur
kostar ekkert.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 16.30-17.30 KKK - Krakka-
klúbburinn kirkjuprakkarar hefur
göngu sína. Fyrsta samvera með
leikjum, föndri, söng, bæn og ýmsum
öðram uppátækjum.
Krossinn. Almenn samkoma
kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu-
skóli í kvöld kl. 20.