Morgunblaðið - 03.10.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 31
Kwasn-
iewski
tapar fylgi
STUÐNINGUR við Aleksand-
er Kwasniewski, forseta Póll-
ands, í skoðanakönnunum fyrir
forsetakosningar sem fram
fara í landinu á sunnudaginn,
hefur fallið úr yfir 60% niður í
um 50%, eftir að sýnd var í
pólska sjónvarpinu mynd-
bandsupptaka, þar sem hann
og aðstoðarmaður sjást skop-
stæla Jóhannes Pál II páfa.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem birtar voru í gær
segjast nú um 50% kjósenda
ætla að greiða forsetanum at-
kvæði sitt, sem þýðir að svo
kann að fara að hann nái ekki
hreinum meirihluta í fyrstu
umferð kosninganna og því
þurfi að halda aðra umferð hinn
22. október. Upptakan var sýnd
fyrst hinn 24. september, í
kosningaauglýsingu eins mót-
frambjóðanda forsetans, Mari-
an Krzaklewskis, sem fer fram
fyrir stjórnmálaflokk þann,
sem spratt upp úr verkalýðs-
hreyfingunni Samstöðu og er
andkommúnískur. Kwasn-
iewski er fyrrverandi kommún-
isti. Krzaklewski hefur mælzt
með innan við 12% fylgi í síð-
ustu könnunum.
Tilræði á
Sri Lanka
MÚSLÍMSKUR stjórnmála-
maður og 22 aðrir létu lífið í
sjálfsmorðssprengitilræði á
kosningafundi í bænum Muttur
á Sri Lanka í gær, að því er lög-
regla greindi frá. Er tilræðis-
maðurinn talinn hafa tilheyrt
skæruliðahreyfingu tamíla,
sem berjast fyrir eigin ríki á
eyjunni. Fjörutíu manns slös-
uðust í tilræðinu, til viðbótar
við þá sem létust. Stjórnmála-
maðurinn sem lézt, Baithullah,
er annar frambjóðandinn í
þingkosningunum sem fram
fara á Sri Lanka hinn 10. þessa
mánaðar, sem ráðinn hefur ver-
ið af dögum frá því þingið var
leyst upp hinn 18. ágúst sl.
Borgararétt-
indi lögtekin
Mannréttindasáttmáli Evrópu
er nú loks genginn í gildi sem
lög í öllu Bretlandi, en með þvi
hefur róttæk breyting verið
gerð á brezkri borgararéttinda-
löggjöf. Hún gerir brezkum
borgurum kleift að leita til
brezkra dómstóla, telji þeir yf-
irvöld hafa brotið á sér mann-
réttindi. Sáttmálinn hafði áður
verið lögtekinn af skozka þing-
inu. Brezkir íhaldsmenn hafa
harkalega gagnrýnt lögtöku
mannréttindasáttmálans; hún
muni „stífla dómstólana" með
alls kyns lítils verðum málaferl-
um, eins og Ann Widdecombe,
skuggaráðherra dómsmála tók
til orða.
Keith veldur flóð-
um í Mið-Ameríku
Chetumal. AP.
FELLIBYLURINN Keith olli
miklu úrfelli í Beiize og á Kariba-
hafsströnd Suður-Mexíkús í gær
en lægðarmiðjan hafði þá enn
ekki farið inn yfir landið. Hafa
margir flúið heimili srn, jafnt
vegna flóða og af ótta við óveðrið.
Hér ganga íbúar bæjarins
Sacrosanto í Níkaragva yfir pana-
meriska þjóðveginn, sem flóðvatn
af völdum fellibylsins setti á kaf.
Tveir menn að minnsta kosti
hafa drukknað af völdum bylsins
og á Júkatanskaga í Mexíkó og í
N-Belize flýðu margir burt af ótta
við, að bylurinn Iegðist yfir landið
af fullum þunga. Lék veðrið mjög
illa byggðir á nokkrum eyjum
undan Belize-strönd og í höfuð-
borg landsins, Belize-borg, var 30
sm djúpt vatn á flestum götum og
rafmagnslaust.
Áður hafði Keith neytt um
4.000 manns til að flýja heimili sín
í Chetumal, mexíkóskri borg við
landamærin að Belize, en sagt er,
að sjávarborð í Chetumal-flóa hafi
lækkað mjög vegna stormsins.
Getur það verið mjög hættulegt
vegna þess, að á eftir getur fylgt
flóðbylgja og mikil flóð á lág-
lendi.
Baidrian B„ fæst nú i apotekum án lyfseöils
efnerfiðleikum?
Innihald: Hver tafla inniheldur extrakt af rót
Garóabrúöu (Valeríana Officinalis) 75 mg,
samsvarandi 112-225 mg af dróga.
Notkun: Náttúrulyf við óróa og svefnerfið-
leikum.
Skammtar: Fullorðnir: Við óróa 2 töflur 3-4
sinnum á dag. Við svefnerfiðleikum 3-4
töflur fyrir svefn. Takist J4 -1 klst. fyrir svefn.
Takist með glasi af vatni. Töflumar á að
gleypa heilar.
Varnaðarorð: Ekki ætlað börnum yngri en
12 ára nema í samráði viö lækni. Ekki ætlaö
þunguðum konum og konum með barn á
brjósti.
Varað er við langtlmanotkun náttúrulyfsins.
Aukaverkanir: Engar þekktar. Þekking á
þvl hvort Drogen s Baldrian B+ geti aukið
eða dregið úr virkni annara lyfja liggur ekki
fyrir. Hugsanlegt er að það geti haft milli-
verkanir við róandi lyf.
Telja má náttúrulyfið hættulaust en ekki
liggur fyrir reynsla af ofskömmtunum.
Akstur: Þó að Drogen's Baldrian B+ sé
ekki merkt með rauðum varúðarþrlhyrningi
eins og lyf sem geta skert hæfni til aksturs
bifreiða og notkun véla er ekki hægt að
útiloka sllk áhrif.
Varúð - Geymið þar sem böm ná ekki til.
Lesiö leiðbeiningar á umbúðum.
Framleiðandi og markaðsleyfishafi:
Dansk Droge A/S, Danmark.
Umboð á islandi: Pharmaco
Fjölbreyttur matseðill alla daga!
Hollt og huggulegt í hádeginu!
kr. 890.-
Súpa og salat
kr. L190,-
Hádegishlaðborð
+ súpa og salatbar
alla virka daga
----- S I N C E 1 9 6 6 -
SUÐURLANDSBRAUT 4
Simi: 553 9700