Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 63
Vilja bæta
kjör leik-
skóla-
kennara
FRAMKVÆMDASTJÓRN Kven-
réttindafélags íslands hefur sent
frá sér eftirfarandi ályktun:
„Kvenréttindafélag íslands lýsir
yfir áhyggjum af því ástandi sem
nú ríkir á leikskólum landsins.
Leikskólar sinna mikilvægu upp-
eldis- og menntunarhlutverki fyrir
yngstu börnin og því er brýnt að
huga vel að þessu skólastigi.
Launakjör leikskólakennara og
annars starfsfólks á leikskólum
eru hins vegar með þeim hætti að
illa gengur að ráða fólk til starfa.
Af þeim sökum hefur ekki verið
hægt að standa við gefin loforð um
leikskólapláss.
I lögum og í aðalnámskrá er
lögð áhersla á mikilvægi þess
starfs sem fram fer á leikskólum
og að börnin njóti leiðsagnar leik-
skólakennara, enda leikskólinn
skilgreindur sem fyrsta skólastig-
ið. Það ætti því að vera sveitar-
félögum kappsmál að fá fagaðila til
starfa. Hins vegar er ljóst að með-
an launakjör starfsfólks leikskóla
eru með þeim hætti að ekki tekst
að manna aliar stöður er lögum
um leikskóla og þeim markmiðum
sem sett eru í aðalnámskrá þeirra,
ekki framfylgt.
Framkvæmdastjórn skorar á
hlutaðeigandi yfirvöld að bæta
kjör leikskólakennara og annars
starfsfólks á leikskólum."
Kynning á sjálf-
boðaliðastarfi
Rauða krossins
KYNNING verður haldin þriðju-
daginn 3. október kl. 20 í Sjálf-
boðamiðstöð Rauða krossins,
Hverfisgötu 105 á verkefnum sem
sjálfboðaliðar Rauða krossins inna
af hendi.
Megintilgangur kynningarinnar
er að afla sjálfboðaliða á öllum
aldri í 4-10 tíma á mánuði til
þeirra fjölbreyttu verkefna sem
unnin eru í þágu mannúðar, enda
er sjálfboðastarf undirstaða
Rauðakrosshreyfíngarinnar hér á
landi sem um heim allan, segir í
fréttatilkynningu. Dæmi um verk-
efni í höndum sjálfboðaliða eru:
Heimsóknir til fanga og til las-
burða fólks, sölubúðir, skyndi-
hjálp, fataflokkun, handverk, síma-
þjónusta, unglingastarf,
átaksverkefni o.fl.
Námskeið um
betri samhæf-
ingu í heil-
brigðisþj ónustu
Endurmenntunarstofnun Háskóla
Islands heldur 6. október nám-
skeiðið Samhæfð heilbrigðisþjón-
usta fyrir stjórnendur í heilbrigðis-
og félagskerfinu. Samhæfð heil-
brigðisþjónusta er sú hugmynda-
fræði sem stuðst hefur verið við til
að mæta aukinni þröf fyrir meðferð
og umönnun, samhliða niðurskurði
í heilbrigðiskerfinu. Kennari á
námskeiðinu er Ingvar Karlberg,
prófessor í lýðheilbrigði við Nor-
ræna heilbrigðisháskólann í Gauta-
borg.
Karlberg mun fjalla sérstaklega
um reynslu Svía af umbótum í öldr-
unarþjónustu og bera hana saman
við þá sem veitt er hér á landi.
Skipulagsbreytingar þær sem Svíar
gerðu á öldi'unarþjónustunni 1992
þykja hafa heppnast vel. Þær voru
gerðar með samhæfða þjónustu að
leiðarljósi og vai- sérstök áhersla
lögð á notkun upplýsingatækni og
svokallað sjúklingaflæði sem mið-
ast við þarfir sjúklings hverju
sinni, segir í fréttatilkynningu.
Umsjón með námskeiðinu hefur
Á myndinni má sjá dæmi um afrakstur átaksins Bilinn allan hciin.
Bílinn allan heim - enga
varahluti á hálendinu
„BILINN allan heim - enga vara-
hluti á hálendinu" var yfirskrift á
hreinsunarátaki sem Ferðamálaráð
gekkst fyrir nú í haust. Átakið hófst
við Húsafell og því lauk þremur
vikum síðar við Mývatn cn þá höfðu
verið hreinsaðir um 1.400 km eða
allir helstu hálendisvegir landsins.
I fréttatilkynningu frá
Ferðamálaráði íslands segir m.a.:
„I vetur og vor var síðan unnið í að
fá samstarfsaðila en verkefni sem
þetta er töluvert kostnaðarsamt.
Þeir aðilar sem tdku þátt í verkefn-
inu með Ferðamálaráði voru Eur-
opcar eða Bflaleiga Akureyrar sem
útvegaði kerru, Hekla hf. útvegaði
Galloper jeppa, Olís sá um olíur og
rekstrarvörur fyrir bflinn, VIS eft-
irlét tryggingar og auglýsingastof-
an Stfll sá um að merkja kerru og
bfl.
Guðjón Magnússon, rektor Nor-
ræna heilbrigðisháskólans í Gauta-
borg. Kennt verður á ensku.
Námskeið um
ást og aga
í uppeldi
NÁMSKEIÐIÐ Ást og agi í upp-
eldi hefst laugardaginn 7. október
nk. kl. 10-16 í Foreldrahúsinu í
Vonarstræti 4 b. Léttur hádegis-
verður er innifalinn.
Námskeiðið er fyrir foreldra með
börn á öllum aldri. Fjallað verður
um mikilvægi þess að foreldrar líti
á sig sem fyrirmyndir, líti á aðhald
og aga sem sjálfsagðan hlut, þekki
muninn á ákveðni og óákveðni og
öðlist leikni í að gefa af sér og
hvetja, segir í fréttatilkynningu.
Umsjónarmaður er Sæmundur
Hafsteinsson sálfræðingur.
Skráning og allar nánari upp-
lýsingar fást í Foreldrahúsinu, hjá
Vímulausri æsku og Foreldrahópn-
um.
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík auglýsir
eftir vitnum að árekstri sem varð
föstudaginn 29. september sl. kl.
11.07 á gatnamótum Bústaðavegar
og afreinar frá Kringlumýrarbraut
við eystri enda Bústaðabrúar. Um-
ferðarljós eru á gatnamótunum og
gi’einir ökumenn á um stöðu umferð-
arljósanna er áreksturinn varð.
I umræddu tilviki var brúnni
Honda Civic-bifreið, RR-088, ekið
austur Bústaðaveg og bifreiðinni
XP-358, sem er Dodge Dakota-pall-
bifreið, ekið eftir afrein af Kringlu-
mýrarbraut í norður að Bústaðavegi.
Engin vitni gáfu sig fram á staðn-
um en ef einhver hefur orðið vitni að
árekstrinum er viðkomandi beðinn
að hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
■ DREGIÐ var sunnudaginn 24.
september í listaverkahappdrætti
Kórs Flensborgarskdlans. Vinn-
ingar komu á eftirtalda miða: Nr.
69, 517, 1045, 1306, 47, 838, 808,
945, 1400, 1168, 72, 1724, 270,
1741, 675, 567, 1263. Vinninga má
vitja í síma 565-0400 eða á skrif-
stofu Flensborgarskólans.
(Birt án ábyrgðar)
Ráðstefna um áhrif
fíkniefnaneyslu
Farið var yfir um 1.400 km eða
nánast alla vegi sem Vegagerðin
merkir sem F-vegi. Þrír starfsmenn
Ferðamálaráðs skiptu með sér að
aka bflnum og sljdrna verkinu og
þá voru ráðnir tveir sveinar, Styrm-
ir Hauksson og Þorgeir Finnsson,
sem höfðu það verk með höndum að
tína það sem fannst upp í kerruna.
Með sanni má segja að þessi
hreinsunarsveit hálendisins hafi
fundið dtrúlegustu hluti á leið sinni.
Mikið var um pústkerfi, jafnvel
undan stærri bflum, þ.e. rútu eða
flutningabfl. Einnig var mikið um
dekk og dekkjadræsur, meira að
segja dekk á felgu. Þá fundust raf-
geymar, bflrúður, gormar og demp-
arar. Sem sagt allir helstu vara-
hlutir sem fylgja bflum. Þegar upp
var staðið voru þetta níu kerrur eða
um 15 rúmmetrar af varahlutum."
Aðalfundur
Samkóps
AÐALFUNDUR SAMKÓPS, Sam-
taka foreldrafélaga og foreldraráða
í grunnskólum Kópavogs, verður
haldinn þriðjudaginn 3. október nk.
í Lindaskóla í Kópavogi kl. 20.
Á fundinum verða venjuleg aðal-
fundarstörf. Að þeim loknum mun
Gunnsteinn Sigurðsson, skólastjóri
Lindaskóla, fjalla um skólastarf og
fara síðan með foreldrum í skoðun-
arferð um skólann, segir í fréttatil-
kynningu. Veitingar eru i umsjón
Foreldrafélags Lindaskóla. Allir
foreldrar barna velkomnir.
RÁÐSTEFNA um áhrif fíkniefna-
neyslu á líf og heilsu manna og um
aðgerðir stjórnvalda til að hindra
aðgengi að fíkniefnum verður hald-
in á Grand Hóteli í Reykjavík dag-
ana 5. og 6. október. Ráðstefnunni
er ætlað að höfða til sem flestra er
málið varðar, til fagmanna, for-
eldra en ekki síst til ungs fólk.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er
kunnur bandarískur vísindamaður,
dr. Bertha Madras, sem fjalla mun
um áhrif fíkniefnaneyslu á starf-
semi heilans. Dr. Bertha Madras
er prófessor við Harvard-háskól-
ann og hefur um árabil stundað
rannsóknir á áhrifum fíkniefna, svo
sem hass, amfetamíns og „ecstasy“
á heilastarfsemina. Auk hennar
munu fjölmargir innlendir fræði-
menn fjalla um málið frá ýmsum
hliðum. Umfjöllun verður um fé-
lags-, heilsufars- og efnahagslegar
afleiðingar og áhrif á fjölskyldu.
Meðal fyrirlesara eru dr. Krist-
inn Tómasson, Jóhann Loftsson
sálfræðingur, dr. Þórólfur Þór-
lindsson og Þórður Ólafsson
heilsugæslulæknir. Síðari daginn
verður m.a. fjallað um starf og að-
gerðir tollgæslunnar og efnahags-
brotadeildar lögreglunnar, auk
þess sem Axel Hall frá Hagfræð-
istofnun HI mun fjalla um kostnað
samfélagsins vegna fíkni-
efnaneyslu. Fulltrúar framhalds-
skólanema og verkefnisins
Evröpskir unglingar án vímuefna
eða PATH munu kynna sjónarmið
sín.
Ráðstefnan er öllum opin og
hefst skráning kl. 8.30 á Grand
Hóteli fimmtudaginn 5. október og
lýkur kl. 12 föstudaginn 6. október.
Ráðstefnugjald er 2.000 kr., en
frítt er fyrir alla yngri en tvítugt.
Ráðstefnugögn og kaffi er innifa-
lið.
Tilkynna ber þátttöku fyrir 28.
september til áfengis- og vímuv-
arnaráðs. Upplýsingar má finna á
www.islandaneiturlyfj a.is
J A1 'W rs <3 Vatnsvörn
Stöðvið lekann
með pensli
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Viltu
öðlast
meiri
víðsýni?
Langar þig til að kynnast annarri
menningu? Viltu kanna ókunn iönd?
Ertu á aldrinum 15-18 ára? Viltu öðruvísi menntun?
Meiri víðsýni? Meira sjálfstraust?
Erum að taka á móti umsóknum:
• Um ársdvöl í Argentínu, Japan og Paragvæ
og hálfs árs dvöl I Bandaríkjunum, Brasilíu og Ítalíu
með brottför í janúar— mars 2001.
• Til fjölmargra landa með brottför
júní—september 2001.
AFS á islandl
Ingólfsstræti 3 | 2. hæð | sími 552 5450 | www.afs.is