Morgunblaðið - 31.10.2000, Side 10

Morgunblaðið - 31.10.2000, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Aðeins um hálft starf að ræða FLUTNINGUR fjarvinnsluverkefna út á land var á dagskrá í óundir- búnum fyrirspumatíma á Alþingi í gær en Kristján L. Möller, Samfylk- ingu, innti Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráðherra þá eftir því hvað liði úrvinnslu í ráðuneytinu á hug- myndum um flutning svokallaðrar Landskrár lausafjármuna til Ólafs- fjarðar sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra kynnti á borgarafundi þar í mars. Sólveig upplýsti hins vegar að því miður hefði komið í ljós að þetta verkefni myndi aðeins skapa hálfsdagsstarf fyrir einn mann. Svar dómsmálaráðherra gaf Krist- jáni tilefni til að gagnrýna ríkisstjóm- ina fyrir það hversu lítið hefði í raun komið út úr loforðum um flutning fjarvinnsluverkefna á vegum ríkisins út á land. Hvað þetta tiltekna mál áhrærði hefði iðnaðarráðherra á sín- um tíma talað eins og um stórt verk- efni væri að ræða en þegar til kæmi væri einungis um hálft starf að ræða. Sólveig varði hins vegar aðgerðir ríkisstjómarinnar og iðnaðarráð- herra, sem fer með byggðamál, en sagði jafnframt að þessi mál væru síð- ur en svo auðveld viðfangs. Einkavætt sjúkrahús ekki fýsi- legur kostur að mati ráðherra INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra sagði á Alþingi í gær að það væri ekki stefna ríkisstjómarinn- ar að einkavæða heilt sjúkrahús enda ekki hægt að sjá að slíkt væri fysileg- ur kostur. Áfram yrðu hins vegar gerðir einstakir samningar við aðila innan heilbrigðiskerfisins, eins og t.d. hefði verið gert í öldrunarþjónust- unni um árabil. Kom fram í máli ráðherra í gær að hún gefur lítið fyrir nauðsyn þess að auka samkeppni í heilbrigðisgeiran- um. Ráðherrann var að svara óundir- búinni fyrirspum Bryndísar Hlöð- versdóttur, þingmanns Samfylking- ar. Bryndís hafði sagt að sá orðrómur bærist nú hratt um þjóðfélagið að í bígerð væri að koma á einkareknu sjúkrahúsi. Mikill áhugi væri á slíkum rekstri meðal tiltekinna fagmanna og þegar hefði verið leitað tíl fjárfesta í þessu skyni. Lýsti hún eftir stefnu stjómvalda gagnvart þessum hugmyndum og spurði heilbrigðisráðherra hvort tál greina kæmi af hennar hálfu að veita slíku sjúkrahúsi starfsleyfi ef eftir því yrði leitað, en Bryndís spáði því að það myndi gerast. ALÞINGI Ingibjörg tók fram að ekki væri unnið að því á vettvangi rfidsstjórnar að einkavæða heilt sjúkrahús. „Það kann að vera áhugi hjá mörgum aðii- um í þjóðfélaginu hvað slíkt varðar en við höfum skoðað einkavæðingu á stómm sjúkrahúsum erlendis og höf- um ekki getað séð að þjónustan væri þar betri. Það kostar heldur alls ekki minna að reka slíkt sjúkrahús en gert er hér á landi í dag,“ sagði hún og bætti því við að auk þess vantaði mannskap til að starfrækja slíkt sjúkrahús. Bryndís vakti athygli á því að hún væri að spyija um einkarekið sjúkra- hús sem veita myndi rfldssjúkrahús- Bryndís Ingibjörg Hlöðversdóttir Pálmadóttir inu í Reykjavík samkeppni. Sagðist hún skilja orð ráðherra þannig að hún teldi ekki koma til greina að veita einkareknu sjúkrahúsi starfsleyfi. Bryndís sagði mikilvægt að þetta kæmi skýrt fram þar sem menn hefðu orðið varir við ágreining á milli rflds- stjómarflokkanna í þessum efnum, sjálfstæðismenn hefðu viljað einka- væða frekar í heilbrigðiskerfinu en framsóknarmenn staðið á bremsunni. „Ég h't svo á að hæstvirtur ráð- herra hafi verið að lýsa því yfii- hér að það væri ólfldegt að hún myndi gefa út starfsleyfi fyrir einkarekið sjúkra- hús,“ sagði hún. I lokaorðum sínum sagði Ingibjörg Pálmadóttir að hvað varðaði sam- keppni þá teldi hún það nú ekki það sem vantaði helst í heilbrigðisþjón- ustunni. „En við höfum gert samn- inga og munum áfram gera samninga við einstaka aðila, eins og við höfum gert t.d. í öldrunarþjónustunni síðast- hðin 30-40 ef ekki 80 ár.“ Gengi krónunnar rætt á Alþingi Ekki tilefni til að- gerða á þessu stigi Morgunblaðið/Kristinn Jón stjórnar Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Hann er nefndur „guðfaðir" hljómsveitarinnar og lánaði pen- inga fyrir fyrstu hljóðfærakaupum hennar. Heiðurs- borgari í Mos- fellsbæ Morgunblaðið/Kristinn Þröstur Karlsson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, afhendir Jóni skjal til staðfestingar á heiðursborgaranafnbótinni. JÓN M. Guðmundsson, bóndi á Reykjum, var útnefndur heiðurs- borgari Mosfellsbæjar síðastliðinn sunnudag. Jóni var haldið kaffí- samsæti í félagsheimilinu Hlégarði og heiðruðu hann um 150 manns. Við sama tækifæri sæmdi Ellert B. Schram, formaður fþrótta- og ól- ympiusambands Islands, Jón heið- urskrossi sambandsins. Ákvörðun um þetta var tekin á bæjarstjómarfundi 19. september síðastliðinn þegar Jón varð átt- ræður. Fyrri heiðursborgari Mos- fellsbæjar var Ilalldór Laxness rit- höfundur. Þröstur Karlsson, forseti bæjar- stjórnar, segir að Jón hafi verið sveitarstjómarmaður og oddviti til fjölda ára. Hann hafí verið í far- arbroddi í sveitarfélaginu á mikl- um umbrotatímum þegar Mosfells- sveit varð að bæ. „Ég er einn af þessum mönnum sem hafa aldrei unnið neina hetju- dáð og aldrei Iagt mig fram um að verða verðlaunagripur. Ég hef bara gert skyldu mína. Þess vegna er ég svona hissa á þessu," sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. Jón fæddist í Reykjavík 19. sept- ember 1920 en flutti í Mosfellssveit fimm ára gamall. Hann er búfræð- ingur frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1942 og stundaði nám í búnaðarhagfræði og alifuglarækt við háskólann í Wisconsin 1947. Hann fór í framhaldsnám í slátmn, fóðrun og verkun á fuglakjöti f Bandarikjunum 1961. Hann tók dómarapróf í frjálsum íþróttum 1943 og varð alþjóðadómari 1954. Hann hefur verið bóndi á Reykjum frá 1947. Hann var oddviti Mos- fellshrepps frá 1962-1981, hrepp- sljóri frá 1984-1990 og vann að fé- lagsstörfum á vegum UMF Aftureldingar frá 1933-1970 auk margvíslegra annarra starfa. Hann hefur cinnig hlotið fjölda viðurkenninga af ýmsu tagi. Jón var fréttaritari Morgun- blaðsins um áratugaskeið. „Fyrsta stóra fréttin sem ég sendi til Morg- unblaðsins var þegar Hlégarður var vígður 1951. Þegar sú breyt- ing varð á fréttaþjónustunni að við fréttaritarar áttum að segja hlut- laust frá öllum fréttum og máttum ekki mála cigin skoðanir inn í þær fór að káma gamanið hjá mér. Ég hafði tilhneigingu til þess að segja hvernig mér persónulega Iitist á hin og þessi mál. Mér gekk mjög illa að venja mig á þetta. Síðan kom að því að ég hafði ekki eins gaman af þessu og áður. Þá var ég gerður að heiðursfélaga í félagi fréttaritara Morgunblaðsins," sagði Jón. GEIR H. Haarde fjármálaráðherra telur ekki sérstaka ástæðu til þess eins og mál standa nú að efna til sér- stakra aðgerða vegna gengislækk- unar íslensku krónunnar en þau mál voru gerð að umtalsefni í óundirbún- um fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. Benti Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, þá á að gengi krón- unnar væri nú 7,6% lægra en það var um síðustu áramót og 2,7% lægra en það var þegar fjárlagafrumvarp var lagt fram nú í haust. Steingrímur vildi vita hvort rfids- stjómin hygðist bregðast við þessu gengisfalli krónunnar og velti hann t.d. fyrir sér hvort rétt væri að end- urmeta þjóðhagsforsendur. Sagði hann þessa þróun alvarlega fyrir verðbólgustig í landinu og forsendur kjarasamninga. Geir benti hins veg- ar á að þjóðhagsforsendur væru jafnan endurmetnar áður en fjár- lagafrumvarpið væri afgreitt frá Al- þingi og um það væri Steingrími vel kunnugt. Gengisþróun yrði að sjálf- sögðu tekin með í þeim reikningi eins og margt annað. „Þá kemur í ljóst hvort þessi breyting, sem orðið hefur á gengi krónunnar, skiptir einhverju veru- legu máli að þvi er varðar gengis- forsendurnar. En það er ekkert til- efni til að rjúka sérstaklega til núna og gripa til einhverra aðgerða,“ sagði Geir H. Haarde fjármálaráð- herra. Heildstæð stefna í málefnum barna RÍKISSTJÓRNINNI verður falið að undirbúa heildstæða og sam- ræmda opinbera stefnu í málefnum barna og unglinga ef þingsályktun- artillaga sem mælt var fyrir á Al- þingi í gær verður samþykkt. Jó- hanna Sigurðardóttir, Samfylkingu, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en hún nýtur fulltingis fimm ann- an-a þingmanna og koma þeir úr öllum fimm þingflokkunum. í tillögunni segir að markmið stefnumótunar verði að tryggja hag og velferð barna og unglinga á öll- um sviðum þjóðlífsins og búa þeim sem best og jöfnust skilyrði til upp- vaxtar og þroska. í því skyni verði skipuð nefnd með aðild forsæt- isráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, umhverfis- 53 Dagskrá ÞINGFUNDUR hefst á Alþingi í dag kl. 13.30. Eftirfarandi mál eru þar á dagskrá: 1. Iðgjaldahækkanir tryggingafé- laganna, beiðni um skýrslu. Hvort leyfð skuli. 2. Almannatryggingar. Frh. 1. umræðu (atkvgr.) 3. Heildarstefnumótun í málefnum barna og unglinga. Frh. fyrri um- ræðu (atkvgr.) 4. Könnun á umfangi vændis. Frh. fyrri umræðu (atkvgr.) 5. Fjáraukalög2000.1. umræða. 6. Ríkisábyrgðir. 1. umræða. 7. Tekjuskattur og eignarskattur. 1. umræða. 8. Virðisaukaskattur. 1. umræða. ráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Á grundvelli stefnu- mótunar þessara aðila verði gerð fimm ára framkvæmdaáætlun og hún lögð fyrir Alþingi til staðfest- ingar eigi síðar en á haustþingi árið 2001. Fram kemur í greinargerð að til- lagan var lögð fram á síðasta lög- gjafarþingi og að hún hafi þá hlotið einstaklega góðar viðtökur um- sagnaraðila. Kom einnig fram í framsöguræðu Jóhönnu í gær að ríkisstjórnin hefði raunar skuld- bundið sig í skýrslu, sem flutt var á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, til að fá samþykkta tillögu um þetta efni á fyrri hluta árs 2000. Kjaradeila kennara rædd á morgun P’YRIRHIJGAÐRI utandag- skrárumræðu um kjaradeilu kennara, sem gert hafði verið ráð fyrir að færi fram á Alþingi í dag, hefur verið frestað vegna fjarveru Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra en hann er erlendis. Umræðan mun í staðinn fara fram á morgun, miðvikudag, og er ráðgert að hún hefjist kl. 13.30. Menntamálaráðherra verður til andsvara en málshefjandi er Einar Már Sigurðarson, Sam- fylkingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.