Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69II00, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3MO, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RI7STJtSMBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 PRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Vilja loft- púðaskip og ferða- " menntil Surtseyjar FJÖLMARGAR hugmyndir um efl- ingu atvinnulífs í Vestmannaeyjum komu fram á ráðstefnunni Eyjar 2010, sem haldin var sl. iaugardag. Meðal þeirra hugmynda sem fram komu var notkun loftpúðaskips til flutninga á milli Eyja og Bakkafjöru og afnám friðunar Surtseyjar, a.m.k. að einhverju leyti, þannig að hægt yrði að bjóða ferðamönnum upp á ferðir til Surtseyjar. j Verði fremstir í öllu sem varðar sjávarútveg Einnig var stungið upp á því að Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum yrði fyrsta einkavædda sjúkrahúsið í landinu. Ráðstefnan fór að miklu leyti fram í hópstarfi og lagði hópur sem fjallaði um atvinnumál og viðskiptatækifæri til að Vestmannaeyingar ættu að stefna að því að vera fremstir í öllu þvl sem lyti að sjávarútvegi, enda væri óvíða á landinu að finna jafn- mikla sérþekkingu í sjávarútvegi. 'W -fBjóða þyrfti upp á nám og efla rannsóknir með hjálp innlendra og erlendra háskóla. Nefndu sumir að Keiko yrði væntanlega ekki eilífur í Klettsvíkinni, þar væri upplögð að- staða yfir fiskeldi. Þjónusta við fatlaða til sveitarfélaga Biðlistum verði eytt á þremur árum KOSTNAÐUR sveitarfélaga vegna tilflutnings þjónustu við fatlaða til sveitarfélaga og vegna annarra breytinga á lögum um félagsþjón- ustu sveitarfélaga er talinn nema um 4,4 milljörðum kr. Þetta er hækkun um 841 milljón kr. miðað við núverandi kostnað. í kostnaðarmati nefndar um til- flutninginn er að fullu tekið tillit til kostnaðar við að veita þeim ein- staklingum sem nú eru á biðlistum þjónustu í samræmi við þarfir þeirra og er kostnaður vegna þessa og nýrra lagaákvæða metinn vera 841 milljón kr. Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra segir að sam- komulag sé um það að eyða biðlist- um. Gert er ráð fyrir því að biðlistar eftir þjónustu verði úr sögunni þremur árum eftir tilfærslu þjón- ustunnar til sveitarfélaga en sam- kvæmt frumvarpi til laga um fé- lagsþjónustu sveitarfélaga er gert ráð fyrir þjónustan verði færð til sveitarfélaganna frá og með 1. jan- úar 2002. Á biðlista nú eru 209 manns, þar af óska 134 eftir búsetu á sambýl- um en 75 geta verið í sjálfstæðri búsetu með frekari liðveislu. ■ Tekjuskattshlutfall/13 Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins um félagslegar eignaríbúðir Morgunblaðið/Golli Borgin falli frá forkaupsrétti BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð- isflokksins leggja fram tillögu á borgarstjórnarfundi næstkomandi fimmtudag þar sem iagt er til að Reykjavíkurborg falli frá forkaups- rétti að öllum félagslegum eignar- íbúðum í Reykjavík, sem ekki lúta ákvæðum um kaupskyldu. Möguleiki á sölu á frjálsum markaði í greinargerð með tillögunni segir að tilgangurinn með flutningi hennar sé að skapa fólki, sem á félagslega eignaríbúð með áhvflandi forkaups- rétti borgarinnar, möguleika á að selja íbúðir sínar á frjálsum markaði. „Vegna gríðarlegrar hækkunar á íbúðarverði í Reykjavík undanfarin misseri, svo og vegna þeirrar stað- reyndar að með nýjum lögum er ekki lengur unnt að skipta um félagslega eignaríbúð innan gamla kerfisins, er óhætt að fullyrða að mörg hundruð Reykvikingar sem búa við slíkar að- stæður séu í eins konar „búsetafjötr- um“,“ segir m.a. í greinargerð tillög- unnar. ■ Borgin/6 Landhelgisgæslan kærir línubát fyrir meint smáfískadráp Telja helming afl- ans undir mörkum Haust- verkin MEÐAL haustverkanna er að sðpa saman laufunum sem fjúka af trján- um þar sem veturinn er kominn. Veðurstofan spáir rigningu eða slyddu norðan- og austanlands í dag en yfirleitt þurru veðri sunnan- og vestanlands. Búast má við kúln- andi veðri næstu daga, slyddu og síðan snjókomu um norðanvert landið en að þurrt verði syðra. LÍNUBÁTUR var af skipverjum varðskipsins Óðins tekinn að meintum ólöglegum veiðum á Vest- fjarðamiðum í síðustu viku. Skip- verjar línubátsins eru sakaðir um brottkast á smáfiski þar sem við mælingar reyndist nærri helming- ur aflans undir leyfilegum mörkum Hafrannsóknastofnunar. Landhelg- isgæslan lagði inn kæru hjá sýslu- manninum í Bolungarvík og er hún þar til meðferðar. Litið er á málið sem prófmál. Við sama tækifæri var veiði- svæðinu lokað með skyndilokun frá Hafrannsóknastofnun. Landhelgis- gæslan hefur ekki áður kært ís- lenskt veiðiskip innan landhelginn- ar vegna brottkasts á smáfiski en einu sinni lagt fram álíka kæru vegna veiða rækjubáts. Varðskipsmenn gerðu athugun á afla, veiðarfærum, búnaði og skráningu umrædds línubáts. Á meðan varðskipsmennirnir voru um borð við mælingar á afla urðu þeir vitni að því að skipverjar báts- ins köstuðu talsverðu af undirmáls- fiski fyrir borð. Við lengdarmæl- ingu á 200 þorskum reyndust 48% þeirra vera undir viðmiðunarmörk- um sem eru 55 sentímetrar. Leyfi- legt hlutfall smáþorsks undir 55 cm er 25% þannig að nærri helmingur af aflanum var undir leyfilegum mörkum. Ýsan, sem lengdarmæld var um borð, var rétt yfir mörkun- um. Á meðan mæling fór fram voru um 50 stykki af þorski slegin af lín- unni eða kastað frá borði áður en náðist að lengdarmæla, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæsl- unni. Var það um 20% af þeim þorski sem var á línunni, miðað við hausatölu. Enginn fiskur reyndist selbitinn, sýktur eða skemmdur en lög kveða á að um leyfilegt sé að henda slíkum fiski frá borði. Hert eftirlit með brottkasti Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er verið að herða eftirlit með brottkasti þessa dagana og hafa varðskipin það að augnamiði á ferðum sínum innan landhelginnar. ■ Fjölmargar hugmyndir/20 Tilnefningar til Edduverðlauna Englar, 101 r> Reykjavík og Islenski draumurinn KVIKMYNDIRNAR Englar alheimsins, 101 Reykjavík og íslenski draumurinn hafa verið tilnefndar til Eddunnar, ís- lensku kvikmynda- og sjón- varpsverðlaunanna, í flokknum „besta myndin“. Tilnefningarnar voru ákveðnar í gær og eru verð- launaflokkarnir tólf talsins. Kosningin fer fram dagana 13. ! ^til 17. nóvember en niðurstöður 1 — verða kynntar á Edduhátíðinni hinn 19. nóvember. ■ Hin útvöldu/37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.