Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/ Halldór B. Runólfsson Verk á sýningn Jóns Bergmann í gallerí@hlemmur.is. Vafasöm sigurmerki MYJVDLIST gallerí@hlcmmur.i.s MÁLVERK- JÓN BERGMANN KJARTANSSON (ANAND RANSU) Til 5. nóvember. Opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 15-18. JÓN Bergmann, sem kallar sig jafnframt Anand Ransu - Sæla, eða Sá sem færir gleði á hinni fornfrægu sanskrít - sökum þess að hann er um þessar mundir læri- Forsýningar í Borgar- leikhúsinu í VETUR mun Borgarleikhús- ið taka upp þá nýbreytni, að bjóða fólki upp á að sjá forsýn- ingar þeirra verka sem langt eru komin í æfingu og eiga skammt eftir i frumsýningu. Aðgangseyrir á forsýningu verður 1.000 krónur. sveinn - Sanyas - meistara í frum- skógum Costa Rica, á sér stuttan en athyglisverðan feril sem málari. Það sem gerir Jón Bergmann svo áhugaverðan sem raun ber vitni er gróskumikil pæling hans f nútíma málaralist í tengslum við sögulega þróun hennar. í gallerí@hlemmur sýnir hann raðir af málverkum sem hanga tvö og tvö saman. Þetta eru einkennis- merki, eða logo framleiðendanna tveggja, Nike og Adidas, sem fest eru á strigann með harðsoðnum litatilbrigðum sem óneitanlega minna á Peter Halley, sennilega vegna þess að sumar rendurnar í Adidas-merkinu eru málaðar með sjálflýsandi lit. Það er ekki laust við að áhorfandanum bregði við að sjá þessi alþekktu merki svo mjög er búið að tala um barnaþrælkun í tengslum við þessi heimsins stærstu framleiðendur á íþrótta- varningi. En það er eflaust annað sem vakir fyrir Jóni Bergmann en bein tilvitnun í þennan skuggablett á fyrirtækjunum tveim. Hann hefur ritað mikinn formála í sýningar- skrána þar sem hann lýsir þróun málverksins frá Barnett Newman, þess heimsfræga bandaríska abstrakt-expressjónista, til rand- anna í Adidas-merkinu. í þeim samanburði er vert að geta að eitt af fremstu verkum Newman hét Vir heroicus sublimis - Hinn hug- rakki, göfugi/stórbrotni karlmaður - sem í sjálfu sér hljómar ekki svo óíþróttalega þegar öllu er á botn- inn hvolft. Spurningin er sú hvort ekki sé á ferðinni íronísk hugmynd um list- ina sem spili á tvíræðnina gagn- vart íþróttunum. Er listin orðin að íþrótt þar sem allt gengur út á að toppa metin sem sett voru með því að einhver var sleginn út úr keppni? Hver er munurinn á bar- áttunni innan listanna - sem tákn- uð eru með íþróttamerkjunum tveim, svo ólikum en þó svo skyld- um. Þau eru eins og andstæður lýr- ískrar abstraktlistar við hlið geom- etrískrar reglufestu. Eru þessar andstæður ef til vill orðnar að inn- antómri samkeppni án annars tak- marks en að andstæðingurinn falli? Hvar væri listin í þeim darrað- ardansi? Sýning Jóns Bergmann er ekki stór en hún er áleitin og spurul. Verk hans eiga brýnt er- indi við þá sem spyrja sig spurn- inga um stöðu lista - og íþrótta - í okkar afgerandi úrvalsheimi. Halldór Björn Runólfsson _ ... £«//" I J I 1 Stllljlifl )anshátíð Menningarborga Evrópu Borgarleikhúsinu 31. október - 2. nóvember. Miðasala 568 8ooc Vorhænan ljúfa „ÞAÐ var einu sinni í Grindavík...“ Margar af sögunum í smá- sagnasafni Guðbergs Bergssonar Vorhæn- an og aðrar sögur byija einhvern veg- inn svona. Flestar gerast þær í þorpinu þessu en sumar ann- ars staðar, á fæðing- ardeild, f lest á milli Portúgal og Spánar. En um allar gildir að atburðir og skynjanir sálarinnar eru hinn stærsti vettvangur. Guðbergur fer inn í persónur sínar úr óvæntum áttum og uppgötvar nýja áður ókannaða punkta i manninum. Útsýnisskífur sem fáum dettur í hug að merkja með bláu skilti. Guðbergur, hver er staða rithöf- undarins í dag? „Staða hans er að liggja flatur fyrir lesendum. Og útgefendum, ekki má gleyma þeim.“ Sögurnar í Vorhænunni og aðrar sögur eru dæmisögur, grínsögur, minningar, tregasögur, sálfræði- legar sögur, ljóðrænar. Einhvers konar huldusögur tilfínningalífs- ins. „Ef þú segir það þá hlýtur það að vera rétt.“ Hvert ertu að fara með þessari bók? „ Ætli ég sé ekki að fara sömu leið og maður fer venjulega með bækur, til lesenda og til þjóðarinn- ar, hvorki meira né minna. Þetta eru gamlar sögur sem ég hef átt á lager. Ég á sæg af smásög- um á lager. Þetta er svona þriðj- ungurinn eða fjórðungurinn af lag- ernum. Ég ákvað að hreinsa út og selja þær saman í bók. Ætli ég eigi ekki smásögur í tvær eða þrjár bækur. Hér á ég við óbirtar smá- sögur.“ Hefurðu þá alltaf skrifað smá- sögur jafnt og þétt? „Ég skrifa alltaf smásögur og yrki ljóð líka en ég hef ekki gefið út Ijóð í áratugi því ég á í vandræðum með undirstöðuna og samhengið. Ég vil ekki gefa út sundurlausa ljóðabók eða vera með samtining eins og oft vill verða í íslenskum ljóða- bókum. Þar sem ljóð eru sett á blað án þess að tengja þau. Án þess að láta undirstöðuna vera trausta." Að lokum: Hver er staða smásögunnar í dag? „Staðan er svipuð og hún hefur alltaf verið. Að vera fullkomin skáldsaga en í lítilli mynd.“ Að endingu tökum við niður í einni sögunni í bókinni sem fjallar um föður sem gefur sonum sínum litað sykurvatn með ávaxta- bragði á lokadaginn, þegar vertíðin er á enda: ið þetta skaut Jesúbarninu upp í mér, ekki ljúf löng- un til að deyja fyrir mannkynið, heldur fyrir föðurinn svo þetta stóra barn leyst- ist undan þeirri kvöl að hafa fæðst munaðarlaust og lenda síðan í því að geta af sér haugaletingja. Mig lang- aði að fórna mér fyrir hann en vildi aldrei taka bróður minn með mér, kannski af þeirri eigingirni að vilja standa einn að göfugu athöfninni. Mig langaði til þess af því ég hafði þegar fengið reynslu af kvöl ein- semdar og tilfinningalegs ráðleysis. Hún er svo gríðarleg að hún nær yf- ir lífið og getur búið til í okkur þörf- ina fyrir heimsenda. Þess vegna var það þennan vordag að þrátt fyrir un- aðinn yfir bragðinu langaði mig ekki lengur að gæða mér á drykknum. Það að sötra hann af stút var að drekka dýrðina frá manni sem hafði aldrei í æsku fengið dropa af lituðu sykurvatni með ávaxtabragði en var í staðinn gefin mjólkursýra að drekka kvöldið sem hann var rifinn frá móður sinni, saklaus af að hafa nokkurn tímann viljað fæðast og vera til. (Úr sögunni Litað sykurvatn með ávaxtabragði.) Nijinsky heiðraður í ORSAY-safninu í París stendur þessa dagana yfir sýning sem til- einkuð er rússneska ballettdans- aranum Vaslav Nijinsky, sem hér sést í bakgrunni myndarinnar. Nijinski kom fyrst fram á sviði í Sankti Pétursborg í Rússlandi ár- ið 1907, en hann var einnig dansa- höfundur og á heiðurinn af mörg- um þekktum danshlutverkum, m.a. í Petrúska, Síðdegi fánsins og Sacre du Printemps. Geðræn vandamál bundu síðan skyndilega enda á dansferil Nijinskys árið 1919, sem lést sextugur að aldri árið 1950.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.