Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 2i mm Verðbréfaþing islands tenfflst SAXESS-viðskiptakerfinu Innganga í fjölþjóða umhverfi hafin Morgunblaðið/Ámi Sæberg VERÐBRÉFAÞING íslands hf. tengdist SAXESS-viðskiptakerfinu í gær. Þar með hófst aðild þingsins að NOREX-samstarfinu. Kauphöllin í Ósló bætist svo við í lok næsta árs. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, opnaði kerfið formlega með því að senda fyrstu íréttina frá Verðbréfaþinginu inn á það, áður en samfelld viðskipti hóf- ust klukkan tíu. Tryggvi Pálsson, formaður stjóm- ar Verðbréfaþingsins, sagði við þetta tækifæri að með tengingu við SAX- ESS-viðskiptakerfið hæfist inn- ganga þingsins inn í fjölþjóða um- hverfi og jafnframt opnist greiðari leið fyrir erlenda fjárfesta að ís- lenskum markaði. Hann sagði að ástæða væri til að nefna að þó leiðin fyrir viðskipti verði opin þurfi áfram að vinna að því að hún verði fær. Því muni verða nauðsynlegt að vinna áfram að kynningu á markaðnum hér á landi og sjá til þess að þingaði- lar í kauphöllum samstarfsaðilanna skrái sig hér. „Þá þurfum við að halda áfram að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem eftir eru til þess að jafnvægi komist á í fjárfestingum til og frá landinu," sagði Ti-yggvi. „í því sambandi vil ég nefna að stjórn Verðbréfaþingsins hvetur stjórnvöld til þess að afnema takmarkanir sem eru á fjárfestingum útlendinga í ís- lenskum sjávarútvegi.“ Tryggvi sagði að stjórn Verð- bréfaþingsins voni að NOREX-sam- starfið og SAXESS-viðskiptakerfið verði til að auka viðskipti, efla fag- mennsku og þannig styrkja íslensk- an verðbréfamarkað og íslenskt at- vinnulíf. Aðlögun að alþjóðlegum reglum Valgerður Sverrisdóttir sagði að það væri stór viðburður að Verð- bréfaþing íslands tengdist NOREX. Opnun þessarar gáttar út í heim setji miklar kröfur bæði á stjórnvöld og markaðsaðila og nauðsynlegt verði að laga markaðinn hér á landi að al- þjóðlegum reglum, svo fremi það stangist ekki á við þjóðarhagsmuni. Hún sagði að nú væri nauðsynlegt að fara í gegnum þá vinnu að kanna hvort það þjóni íslenskum þjóðar- hagsmunum að hafa sérstök ákvæði í lögum er banna fjárfestingar útlend- inga í sjávarútvegi hér á landi. Ef niðurstaðan úr slíkri könnun væri sú að svo væri ekki þyrfti að bregðast við því. Hún sagði einnig að ef niður- staðan yrði að ástæða þætti til að við- halda banni við fjárfestingum út- lendinga í sjávarútvegi þyrfti að kanna hvort rétt sé og mögulegt að skilja á milli veiða og vinnslu. Þetta sé stórt mál og skipti meira máli eftir tengingu Verðbréfaþings Islands við SAXESS-viðskiptakerfið. Vonast eftir auknum fjárfestingum útlendinga í fréttatilkynningu frá Verðbréfa- þinginu segir að með tengingu þings- ins við SAXESS-viðskiptakerfið geti miðlarar nú átt viðskipti mun skil- virkar en áður. Verðmyndun og pör- un tilboða fari nú fram á annan hátt en áður. Þá geti íslenskir miðlarar fylgst með sænskum og dönskum verðbréfamörkuðum í einu og sama kerfinu og sótt um aðgang til að eiga viðskipti með bréfin. Á sama hátt geti þingaðilar hinna NOREX-kaup- hallanna nú átt viðskipti hér á landi á einfaldan og öruggan hátt. Þá kemur fram í tilkynningunni að Verðbréfa- þingið voni að erlend fjárfesting í skráðum verðbréfum taki kipp í kjölfar tengingarinnar við útlönd og þar með aukist seljanleiki bréfanna og verðmyndun skyrkist. Kauphallirnar í Riga, Tallinn og Vilnius hafa undirritað viljayfirlýs- ingu um aðild að NOREX. Tryggvi Pálsson sagði í gær að fulltrúar Balknesku landanna muni koma til íslands fljótlega til að kynna sér hvernig staðið var að undirbúningi hér á landi, en undirbúningurinn hér Stokkhólmi í kauphöllina í Lundún- þyki almennt hafa tekið óvenju um. Fyrstu viðskiptin í SAXESS- skamman tíma. Hann bætti við að viðskiptakerfinu í gegnum Verð- ekki væri víst að NOREX-samstarf- bréfaþing íslands áttu sér stað ið myndi verða bundið við Norður- klukkan rétt liðlega tíu í gærmorgun löndin og Balknesku löndin er fram er Verðbréfastofan hf. keypti hluta- Valgerður Sverrisdóttir opnar SAXESS-viðskiptakerfið. Henni til aðstoðar líða stundir og vitnaði í því sambandi bréf í Búnaðarbanka íslands hf. af er Gunnar I. Halldórsson lyá Verðbréfaþingi Islands. Tryggvi Pálsson for- í tilboð eigenda kauphallarinnar í Búnaðarbankanum Verðbréfum. maður stjórnar Verðbréfaþingsins, fylgist með. wm HMMtJ * Fallegt og stílhreint NORDEN bor&stofuborð úr gegnheilu, glærlökkuðu birki. Stærb 220x100 cm. (266x 100 cm með stækkun, aukaplata geymist undir borðplötul. HENRIKSDAL stólor úr gegnheilu birki meó 100% bómullaróklæói sem taka mó af og þvo. VÁRDE skenkur úr gegnheilu birki. Stæró 176 x 90 cm Varde línan hefur fengió gæðaverðlaun fyrir hönnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.