Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 78
Ium.» *ucifnxCAiioian HI T/ :
MORGUNBLAÐIÐ
78 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000
PL0S+
byCoat^fíoe
84% Aloe Vcm
Hand & Body
Lotíon
Aloe Vera Húðkrem
Gæðavottað
Aloe Vera
LYFJA Lágmúla 31. okt. og 1. nóv.
LYFJA Laugavegi 31. okt. og 1. nóv. * LYFJA Kópavogi 2. nóv. og 3. nóv.
LYFJA Hafnarfirði 2. nóv. og 3. nóv. • LYFJA Garðabæ 4. nóv.
LYFJA Grindavík 7.-8. nóv. * LYFJA Selfoss 7.-8. nóv.
LYFJA
Lyf á lágmarksverði
LYFJA Lágmúla * LYFJA Laugavegi • LYFJA Hamraborg
LYFJA Garðatorgi * LYFJA Setbergi • Útibú Grindavík
ARNESÖAPÖTEK
Austurvogi 44, Setfossl. Siml 482 3000
EGILSSTAÐA
TEK
p, EGILS!
'•fcr APÖ
HÚSAVÍKUR
APÓTEK
- f samvlnnu vlö Lyfju
wmmmmmm
FÓLK í FRÉTTUM
Úr hljóðverinu
Mínus og Bibbi í Rusli.
Morgunblaoið/ Knstinn
Mörg skref í rétta átt
Mínus brýtur hefðir og
fer sínar eigin leiðir með
bassann í sturtuklefan-
um og Einar Örn í heim-
sókn. Hildur Loftsddttir
hitti strákana sem
rokka af einlægni.
MINUS er ein af þeim sveitum sem
endursköpuðu _ harðkjamarokk-
stemmninguna á Islandi. Sveitin var
stofnuð árið 1998 og kom fyrsta plat-
an, Hey, Johnny, út ári seinna.
Mínus skipa Ivar Snorrason bassa-
leikari, Bjarni Sigurðarson spilar á
gítar, Frosti Logason leikur á gítar,
Krummi Björgvins er söngvarinn og
Bjöm Stefánsson trymbill. Blaða-
maður hitti þá fyrir í hljóðverinu sem
upptökustjórinn Bibbi hefur komið
sér upp, og spurði hvemig nýja plat-
an væri.
Allur regnboginn
Frosti: Hún er löng og góð.
Krummi: Við erum áð gera fullt af
nýjum hlutum, svona blöndu af hefð-
bundnu rokki, rokki af nýja skólan-
um, framtíðarrokki og bara góðu
rokki og róli.
ívar: Já, þetta er feit rokkplata.
Við emm komnir meira með okkar
eigin hijóm.
Frosti: Hún hljómar eins og til-
raunahljómsveit beint úr skúrnum
með óhljóðatónlistarívafí (noise) frá
Bibba.
Krummi: Við sýnum fleiri hliðar á
okkur en við höfum gert áður.
Frosti: Síðasta plata var bara einn
litur.
Bjössi: Nú er það allur regnboginn,
skal ég segja þér!
- Ekkert heildarþema eins og á
Hey, Johnny?
Ivar: Við erum ennþá í þessu harða
rokki, en það eru komnar miklu fleiri
hliðar á málið.
Bjami: Þetta er orðið þróaðra og
hnitmiðaðra.
Bibbi: Við ættum kannski að benda
á það að þetta er góð þróun frá sein-
ustu plötu. Þetta er ekkert alveg
nýtt...
Frosti: ... en þetta em mörg skref
í rétta átt.
Krummi: Og hijóðið á plötunni er
allt öðra vísi en á fyrstu plötunni.
ívar: Nú höfum við Bibba sem er
miklu meira inni í því sem við emm að
gera og hefur mjög góða hugmynd
um það hvað við kunnum að meta.
Hann er kannski eini maðurinn á Is-
landi sem hefði getað fundið rétta
hljóðið með okkur.
Tvær tónlistarstefnur
- Samstarfíð við Bibba gengur vel,
þótt hann sé úr tilraunageiranum?
Frosti: Það gengur alveg prýði-
lega. Hann er góður leikstjóri.
Krammi: Og það er einmitt það
sem við viljum gera; tiiraunarokk.
Frosti: Eftir að við kynntumst til-
raunatónlist Bibba og hljómsveitar-
innar Stilluppsteypu, langaði okkur
til að blanda því inn í okkur plötu og
það kemur mjög vel út.
Bibbi: Hljómar þessara tveggja
tónlistarstefna passa mjög vel saman
þótt þær séu ólíkar. Strákamir era
mest í óhljóðakjarnatónlist (noise
core), ég í óhljóðalistinni en kem úr
nýbylgjunni og hef haldgóða teng-
ingu við hana þannig að þetta smellur
saman.
Frosti: Það hefur enginn gert þetta
áður hér á landi. Við gemm þetta eft-
ir okkar höfði og þetta er alveg ís-
lensk plata.
Björn: íslenskt „költ“-rokk!
Krummi: Það verður það eftir ein-
hvern tíma.
Bibbi: Það er svo gaman að þessi
plata hefur fengið að þróast á sínum
eigin forsendum því við höfum ekki
sett upp neinar reglur um hvernig
hún ætti að vera.
Bjarni: Lögin hafa breyst og mót-
ast með tímanum.
Bibbi: Það sýnir hvað hljómsveitin
er orðin þroskuð að geta tekist á við
að leita að sínum hljómi.
- Þannig að upptökurnar hafa ver-
ið mjög skapandi tími?
Frosti: Já, mjög svo. Við fáum líka
góðan gest í heimsókn á plötuna, Ein-
ar Örn Benediktsson, sem syngur í
einu lagi.
Hráleiki og kraftur
- Þið eruð kraftmikil tónleikasveit,
reynið þið að ná því á plötunni?
Kmmmi: Það er miklu meiri tón-
leikahljómur á þessari plötu en hinni
fyrri, og meiri kraftur. Við reyndum
að koma með virkilega hráan hljóm
inn, en stjórnuðum samt.
Frosti: Við leituðum að leiðum til
að fá sérstakan hráan tónleikahljóm
og tókum t.d. upp trommumar heima
í herberginu mínu, það virkar eins og
æfmgaplásshljómur.
ívar: Og tókum upp bassann inni í
sturtuklefa og náðum mjög góðum
bassahljómi.
Bibbi: Við fórum með allt stúdíóið
heim til Frosta og hertókum herberg-
ið hans. Það skilaði rétta fflingnum.
Frosti: Við fínnum miklu meira
fyrir kraftinum í grunninum. Hann er
hrárri og skemmtilegri og það er ein-
lægni í hljóðfæraleiknum.
Björn: Þetta er allt viss galdur.
Kmmmi: Maður þarf að leggja höf-
uðið í bleyti áður en maður tekur upp
svona harða rokktónlist. Það hefur
ekki mikið verið gert hér á þessu
landi og þess vegna brjótum við
nokkrar hefðir hjá hljóðmönnum sem
eru margir hverjir fastir í skólabók-
inni. Þannig að við völdum Bibba
snilling og það vefst ekkert fyrir hon-
um. Hann fer sína leið eins og við. Og
það passar mjög vel saman.
Frosti: I lokin fáum við svo mann
að utan, Ken Thomas, til að hljóð-
blanda.
Bibbi: Hann hefur verið mikið
hérna á landi og m.a. unnið með
Hilmari Erni. Hann stjómaði upp-
tökum á fyrstu Sykurmolaplötunni og
Sigur Rósarplötunni. Hann hefur
mikið unnið í svona óhljóðatónlist og
er óhræddur við þennan harðkjar-
naóhljóðahljóm.
Kmmmi: Hann er mjög klár og
skilur sínu fullkomlega.
Söngvarinn á lokaorðin en hinir í '
hljómsveitinni vilja endilega benda á
að Mínusplatan sé auðvitað jólaplatan
í ár.
Leitum að
hæfileikaríkum
veitingamann
Nýr,
rúmlega 100 sæta
veitingastaður á
frábærum stað í miðbæ
Reykjavíkur leitar að
hugmyndafrjóum og hæfi-
leikaríkum veitingamanni
til að taka þátt í að búa
fjölbreytilegan stað
með karakter.
Leitað er eftir
einstaklingi með ótakmark-
aða hæfileika og reynslu af
veitingarekstri sem vill
jafnvel leggja til hluta
fjármagns til að búa til
velheppnaðan veitinga-
og skemmtistað.