Morgunblaðið - 31.10.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Áformaður flutningur 7. bekkjar Laugarnes-
skóla í Laugarlækjarskóla 2002
Osáttir foreldrar
boða til fundar
Laugarnes
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þannig var umhorfs í iðnaðarhverfínu í Mosfellsbæ í gær, þegar ljósmyndari fór þar um.
Þreyttir á aðgerða-
leysi bæjarins
Mosfellsbær
FORELDRAR barna í Laug-
amesskóla eru ósáttir við
áform um að frá haustinu
2002 eigi nemendur í 7. bekk
að flytjast úr skólanum og í
unglingadeild Laugarlækja-
skóla, ári fyrr en verið hefur.
„Við erum að reyna að
stemma stigu við að börnin
okkar verði fullorðin fyrir ald-
ur fram og komist of snemma
í kynni við unglingasamfélag-
ið og eiturlyfjavandamál og
fleira. Gagnvart þeim rökum
finnst mér það röng ákvörðun
og ekki í takt við þróunina í
þjóðfélaginu að flytja 7. bekk
yfir á unglingastigið," segir
Jórunn Frímannsdóttir, móð-
ir tveggja drengja í Laugar-
nesskóla og meðlimur í for-
eldraráði skólans, sem leggst
gegn flutningnum.
Gengur gegn stigskipt-
ingu skólakerfísins
Eldri sonur Jórunnar er í
þeim árgangi sem fyrstur á að
flytjast yfir í Laugarlækjar-
skóla 12 ára að aldri.
Jórunn segir að grunn-
skólakerfið sé þannig upp
byggt að skólanum sé skipt í
þrjú stig og byggist sú skipt-
ing á þroska barnanna;
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að hækka aðgangseyri í
Arbæjarsafni um 25%, eða úr
400 kr. í 500 kr.
Borgarráð staðfesti sam-
þykkt menningarmálanefndar
þessa efnis á fundi sínum á
þriðjudag.
Akvörðuninni til grundvall-
ar liggur greinargerð írá Guð-
nýju Gerði Gunnarsdóttur,
borgarminjaverði, þar sem
segir að ástaeðan fyrir beiðn-
inni sé aukinn kostnaður við
leiðsögn og gæslu í safninu en
á undanfömum árum hafi sýn-
ingarhúsum á safnsvæðinu
fjölgað og séu þau nú 22 tals-
ins.
„Á þessu ári hafa bæst við
þrjú sýningarhús, Kjöthúsið,
yngsta stig sé í 1.-4. bekk,
miðstig í 5.-7. bekk og ungl-
ingastig í 8.-10. bekk.
Jórunn segist ósátt við að
þessari skiptingu eigi skyndi-
lega að breyta til að leysa
vandamál í Laugalækjar-
skóla, en fram hefur komið að
með flutningnum sé annars
vegar ætlunin að styrkja starf
Laugalækjarskóla og hins
vegar að draga úr þörf fyrir
viðbyggingar við Laugarnes-
skóla. „Það er ekki verið að
hugsa um börnin þarna,“ seg-
ir Jórunn og segir að það eigi
ekki að bitna á börnunum að
leita þurfi leiða til að auka
fjölbreytni í starfi Laugalækj-
arskóla.
Foreldraráð skólans hefur
mótmælt áformunum en Jór-
unn segir að foreldrafélagið
geri ekki athugasemdir við
breytingarnar og kveðst ósátt
við komu forsvarsmanna þess
að málinu. Hún segii' að kann-
að hafi verið meðal foreldra
barna í Laugarnesskóla varð-
andi flutninginn og viðbygg-
ingarnar þar sem bárust um
280 svör, en nemendur era
560 og var niðurstaðan að
sögn Jórunnar eindregin and-
staða við áformin. Hún segir
að borgin hafi hafnað þessari
könnun og telji hana ómark-
Litla bílaverkstæðið og Líkn
og þar voru opnaðar nýjar sýn-
ingar í sumar. Auk þess var
opnuð sýning um sögu Reykja-
víkur í húsinu Lækjargötu 4 og
þar er nú þörf á aukinni gæslu
og leiðsögn. Til að gæsla og
leiðsögn á safnasvæðinu verði
viðunandi, bæði hvað varðar
öryggi safngripa og þjónustu
við safngesti, þarf að bæta við
þremur leiðsögumönnum og
verða þeir þá 15 talsins. Kostn-
aður við það er áætlaður kr.
1.700.000 og miðað við sömu
aðsókn og í ár munu tekjur
hækka um kr. 1.250.000. Þær
tekjur koma til móts við hækk-
un launakostnaðar en kostnað-
ur umfram það verður greidd-
ur af rammafjárveitingu safns-
ins,“ segir í bréfi borgar-
minjavarðar.
tæka vegna lítillar svörunar
en Jórunn segist telja víst að
lítil þátttaka í hlutfalli af nem-
endafjölda skýrist annars
vegai' af því að spurt hafi ver-
ið um eitthvað sem ætti að
gerast eftir 3 ár og foreldrar
barna í 6. og 7. bekk, sem hafi
séð fram á að málið snerti
ekki þeirra börn, hafi ekki
svarað og eins þurfi að taka
tillit til þess að margir for-
eldrar eigi fleiri en eitt barn í
skólanum. Að teknu tilliti til
slíks hafi svörunin verið mikil
og niðurstaðan marktæk.
Þá segir Jói-unn að haldinn
verði fundur í hverfinu á
þriðjudagskvöld í næstu viku
til þes að fá fram viðhorf for-
eldra í hverfinu og leita leiða
til að hnekkja ákvörðuninni
um flutning. Þar mæti sál-
fræðingur og tali um börn á
þessum aldri og einnig sé
stefnt að því að fá borgarfull-
trúa frá meirihluta og minni-
hluta til að mæta. Einnig
stefni foreldraráðið að því að
gangast fyrir nýrri könnun á
vilja foreldra í hverfinu um
miðjan nóvember. Þá verði
eingöngu kannaðui' vilji for-
eldra sem muni eiga böm í
skólanum haustið 2002.
Deilur ekki hollar
Egill Heiðar Gíslason, for-
maður foreldrafélags Laugar-
nesskóla, sagðist í samtali við
Morgunblaðið kannast \ið
kurr meðal foreldra í hverfinu
en óánægjuraddirnar væru
ekki háværar. Hann sagði að
foreldrafélagið hefði á sínum
tíma barist gegn flutningun-
um og lýst efasemdum um það
og stjóm þess hefði hvorki
ályktað af eða á um málið.
Eftir að ákvörðunin lá fyrir
kvaðst hann hins vegar sjálfur
hafa hvatt foreldra til að líta
svo á að málinu væri lokið og
að menn ættu að sætta sig við
niðurstöðuna. „Eg sá ekki flöt
á að hringla með þetta fram
og til baka og ég sé ekki fyrir
mér að þessi ákvörðun meiri-
hlutans verði tekin aftur,“
sagði Egill Heiðar. Hann
sagði að menn væm þegar
farnir að vinna að undirbún-
ingi flutningsins. „Ég held að
það sé ekki skólastarfinu hollt
að standa í illdeilum vegna
þessa og betra sé að horfa
fram á veginn og gera gott úr
þessu, úr því sem er komið.“
ATVINNUREKENDUR í
iðnaðarhverfinu í Flugumýri,
Grænumýri og Lágumýri í
Mosfellsbæ segjast vera orðn-
ir langþreyttir á aðgerðaleysi
bæjaryfirvalda varðandi
bætta umgengni á því svæði.
Þess er skemmst að minn-
ast, að í lok júni sl. var í Morg-
unblaðinu haft eftir bygging-
arfulltrúa Mosfellsbæjar, að
yfimöld væra að undirbúa að-
gerðir gegn nokkram um-
ráðamönnum atvinnu- og
þjónustufyrirtækja í bænum,
einkum í Grænumýri og öðr-
um götum í hverfinu milli Ulf-
arsfells og Lágafells, til að
knýja fram bætta umgengni
og frágang á lóðum þeirra.
Væri stefnt að því að málinu
yrði komið í viðunandi horf á
þessu ári, og það væri sitt
mat, að allur frestur væri lið-
inn og tími aðgerða hafinn.
„Bæjaryfirvöld eru búin að
samþykkja að gera áták og
fara nú að fylgja byggingar-
reglugerðinni, en ekkert hef-
ur enn verið gert. Þetta er
búið að vera barátta í 4-5 ár.
En þegar kaupendur eru
farnir að setja hverfið fyrir sig
út af sóðaskap, þá er manni
farið að ofbjóða," sagði einn
atvinnurekendanna í samtali
við blaðamann.
Fyrir nokkrum mánuðum
rituðu þessir sömu atvinnu-
rekendur bæjarstjórn, at-
vinnu- og ferðamálanefnd,
skipulagsnefnd, bygginga-
nefnd og umhverfisnefnd
bréf, og buðu fram aðstoð og
samstarf um þetta mál, en því
bréfi var aldrei svarað. Ný-
lega rituðu þeir svo annað
bréf, þar sem boðið er ítrekað.
í því kemur fram, að ekkert
lát sé á óþrifnaði og lélegri
umgengni á nefndu iðnaðar-
svæði og að atvinnurekendur
séu orðnir „þreyttir á yfirlýs-
ingum og öllu tali um um-
hverfissjónarmið, þegar allt
virðist leyfilegt fyrir suma en
ekki fyrir aðra“. Krefjast þeir
svara frá bæjaryfirvöldum
innan 30 daga um það a) hvort
Staðardagskrá gildi fyrir of-
annefnt svæði eða ekki, b)
hvort bæjaryfirvöld séu til-
búin að fylgja sínum eigin yf-
irlýsingum eftir, eða hvort
beri að líta á þær yfirlýsingar
um umhverfi og umgengni
sem marklaust hjal, og c)
hvort bæjaryfirvöld séu til-
búin að efna gefin loforð og yf-
irlýsingar varðandi þetta mál.
Segja bréfritarar að það sé
brýnt að lagfæra iðnaðar-
svæðið sem allra fyrst, og að
þeir muni fylgjast vel með
framvindu mála og hvernig
yfirvöld bregðist við núna;
dapurlegt væri ef Mosfells-
bær yrði þekktur fyrir að líða
brot á reglugerðum um meng-
unarvarnir og eigin yfirlýs-
ingum.
Lofa betrun
en efndir vantar
„Þetta bréf segir nú ansi
margt. Á umræddu svæði er
mjög slæm umgengni, því
verður aldrei neitað," sagði
Ásbjörn Þorvarðarson, bygg-
ingarfulltrúi Mosfellsbæjar,
þegar málið var borið undir
hann í gær. „Það era margir
umráðendur lóða og fyrir-
tækja sem eru óánægðir með
ástandið þarna. Við heilbrigð-
isfulltrúinn erum búnh' að
reyna að taka á þessu frá ýms-
um hliðum og það hefur orðið
mismikill árangur en sumu
hefur þó miðað í rétta átt.
Það sem við hugðumst gera
var ekki talin sú leið sem
myndi skila þeim árangri sem
við ætlumst til að náist. Það
sem hægt er að segja um stöð-
una eins og hún er í dag er ein-
faldlega það, að lögmaður
okkar er að skoða með hvaða
hætti best er að taka á þessu
svo að við fáum staðið rétt að
málinu og viðkomandi aðilar
verði að grípa til úrbóta, eða
m.ö.o. að þetta verði skilvirkt.
Það er búið að ræða við
menn persónulega um þessi
mál og þeir lofa jafnan bót og
betran, en efndirnar vantar,
því miður,“ sagði Ásbjörn að
lokum.
ÁTVR
í ráðhúsið
Gardabær
ÁFENGIS- og tóbaksverslun
ríkisins hyggst hefja rekstur
vínbúðar við Garðatorg 7 í
Garðabæ, þar sem era m.a.
skrifstofur bæjarstjórnarinn-
ar.
í fundargerð bæjarráðs
kemur framað kynnt hafi ver-
ið bréf frá ÁTVR um rekstur
vínbúðar í húsinu og gerir
bæjarráðið fyrir sitt leyti ekki
athugasemdir við staðsetn-
inguna.
Hærra gjald og
bætt leiðsögn
fbúar við Vatnsenda ósáttir við breytingatillögur bæjaryfírvalda
„Þetta eru sj ónhverfingar “
Kópavogur
„VIÐ lítum alls ekki svo á að
við höfum unnið sigur með
þessum breytingum. Þetta
era sjónhverfingar," sagði
Rut Kristinsdóttir, talsmaður
íbúa við Elliðavatn, þegar
Morgunblaðið leitaði við-
bragða hennar við yfirlýsing-
um bæjaryfirvalda í Kópa-
vogi um að gera þær
breytingar á skipulagstillög-
um, sem nú eru til meðferð-
ar, að fresta áformum um
byggingu 6 og 4 hæða fjöl-
býlishúsa á svokölluðum F-
reit í Vatnsendalandi, hætta
við leikskólabyggingu neðan
vegarins og fresta áfoimum
um að afgreiða samtímis
breytt deiliskipulag og aðal-
skipulag á svokölluðu svæði
milli vatns og vegar. Ibúarn-
ir hafa óskað eftir að full-
trúar þeiira fái að koma að
skipulagsvinnunni og segir
Rut að vel hafi verið tekið í
beiðnina. Rut sagði að
íbúarnir hefðu aðeins haft
tök á að kynna sér breyting-
arnar, sem bæjaryfirvöld
kynntu á föstudag, í gegnum
fjölmiðla. „Því miður virðist
ekki tekið tillit til megininn-
taks þeirra athugasemda og
ábendinga, sem gerðar vora.
Við vorum aðallega að mót-
mæla þéttri og háreistri
byggð nálægt vatninu, en
þéttingin er sú sama eftir
sem áður, fyrir utan eitt hús
og einn leikskóla, sem var
reyndar svo fáránlega stað-
settur að það var auðséð að
hann þyi'fti að flytja. “
Rut sagði að þótt stærstu
fjölbýlishúsunum væri frest-
að virtist sem einungis væri
ætlunin að endurskoða
hversu há þau yrðu. Eftir
stæði að íbúðarhús fjöl-
skyldu, sem er þar sem
blokkirnar eiga að koma,
yrði rifið. Þá sagði hún að
eftir stæði að þarna kæmu
þriggja hæða fjölbýlishús
milli vatnsins og vegarins og
þar mundi byggjast upp 250
manna byggð. Þótt bæjar-
stjórnin legði áherslu á set-
tjarnir, sem forða myndu
mengunarslysum við vatnið,
væru þeirra tjarna ekki getið
á þeim skipulagstillögum,
sem nú era til meðferðar, en
ættu kannski að koma seinna
þegar komin væri um 5.000
manna byggð á svæðinu.
Vissulega væri það hið besta
mál að veita skólpi í ræsi í
stað rotþróa en ekkert hefði
verið gert til að koma í veg
fyrir hugsanlega mengun frá
ofanvatni á þessu stigi.
„Öðru vísi getum við ekki
lesið í þau gögn sem við höf-
um í höndunum í dag,“ sagði
Rut.
Hún sagði að íbúar við
Vatnsenda hefðu sent inn
beiðni til bæjaryfirvalda um
að fulltrúar íbúa fengju að
koma að skipulagningu á
svæðinu þannig að hægt yrði
að vinna málið í betra sam-
starfi en verið hefur. „Við
viljum fá að hafa skoðun á
þessu og teljum okkur geta
komið með gagnlegar ábend-
ingar,“ sagði Rut og sagði að
tekið hefði verið vel í beiðn-
ina og skipulagsnefnd bæjar-
ins hefði hana til umfjöllun-
ar.
I athugasemdum, sem
áhugahópurinn „sveit í borg“
hefur sent frá sér um breyt-
ingatillögur bæjaryfirvalda,
segir að breytingarnar séu
því miður fátt annað en
blekkingarleikur og lítið hafi
verið tekið tillit til þeirra at-
hugasemda sem gerðar vora
við upphaflegar skipulagstil-
lögur. Enn sé þéttleiki
byggðar á F-reit um 2-3
sinnum meiri en gert er ráð
fyrir í núverandi aðalskipu-
lagi Kópavogs og enn eigi að
rísa á reitnum fjölbýlishús
sem ekki falla að umhverf-
inu. Þá sé þéttleiki byggðar á
reitnum milli vatns og vegar
óbreyttur sem og hæð húsa.
Ekki hafi verið hætt við
byggingu háhýsanna á F-
reit, aðeins frestað skipu-
lagningu. „Þar munu rísa
nýbyggingar því gert er ráð
fyrir að íbúðarhúsnæði sem
fyrir er á svæðinu eigi að
víkja. Húsnæði þetta er
Vatnsendablettur 165, heimili
fjögurra manna fjölskyldu,
sem hlýtur að þurfa að flytj-
ast af svæðinu verði fasteign
hennar, sem ranglega hefui'
verið nefnd „sumarhús með
heilsársleyfi“ jöfnuð við
jörðu. Enn hafa ráðamenn
Kópavogsbæjar ekki tamið
sér að spyrja áður en þeir
skjóta út skipulagstillögum
til auglýsingar á opinberum
vettvangi. Þrátt fyrir að yfu'-
völdum hafi verið bent á að
fyrirhugaðar skipulagstillög-
ur geri ráð fyrir að farið sé
yfir hús, hesthús eða gróður
í einkaeign á svæðinu, hafa
yfirvöld ekki svo mikið sem
spurt handhafa þessara
eigna um álit þeirra á fyrir-
hugaðri ráðstöfun."