Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Viðhorf neytenda gagnvart hættu sem stafar af matvælum
Fólk telur að öðrum
verði frekar meint
af matarsjúkdómum
Associated Press
Það skiptir miklu að upplýsingar um hvort hætta geti stafað af mat-
vælum eða ekki komi frá aðilum sem ekki eiga hagsmuna að gæta.
Fólk telur áfengi aðeins
vera hættulegt í hönd-
um annarra og tvítugir
karlmenn eru óhræddir
við matarsjúkdóma.
Bryndís Sveinsdóttir
komst að þessu þegar
hún ræddi við breska
sálfræðinginn dr. Lynn
Frewer sem hefur
rannsakað viðhorf
neytenda gagnvart
hættu sem kann að stafa
af matvælum.
Dr. Frewer var gestur á ráð-
stefnu Matvæla- og næringar-
fræðafélags íslands fyrir skömmu
en þar kynnti hún niðurstöður
rannsókna sinna. Eitt af því sem
kom fram í erindi Frewer var að
einstaklingar virðast skynja
hættu af öllum mögulegum hlut-
um þannig að öðru fólki stafí
meiri hætta af þeim en þeim sjálf-
um. Afengisdrykkja er til dæmis
eitt af því sem fólk telur mikið
vandamál fyrir samfélagið og að
hún skapi mikla hættu fyrir ann-
að fólk. En þegar fólk á að meta
hættuna af áfengisdrykkju fyrir
sjálft sig þykir hún ekki mjög
hættuleg.
Konur hræddari
en karlmenn
Svipað á við um matarsjúk-
dóma, þar telja menn að aðrir séu
í mun meiri hættu vegna þeirra
en þeir sjálfir. Athygli vekur að
konur skynja meiri hættu frá
matvælum en karlar. „Já, það er
áberandi að konur vilja meira og
strangara eftirlit með matvælum
en einnig þegar kemur að siðferð-
islegum spurningum í sambandi
við hve langt á að ganga í notkun
nýrrar tækni t.d. þegar erfða-
breytt matvæli eru annars vegar.
Þá vilja þær fara hægar í sakirn-
ar,“ segir Frewer. „Ég held að
ein ástæðan fyrir þessu sé að
þeim fínnst þær eiga mun minni
þátt í stjórnun og ákvarðanatöku
varðandi þessi mál. Ég tel að það
sé almennt rétt að taka meira til-
lit til viðhorfa almennings við ák-
varðanatöku í neytendamálum."
Hún segir að í rannsókn sinni
hafi óvænt komið í ljós einn þjóð-
félagshópur sem nánast hefur
engar eða mjög litlar áhyggjur af
matarsjúkdómum og öðrum hætt-
um sem stafa af matvælum -
karlmenn um tvítugt. „Þetta eru
gjarnan karlar sem eru í háskóla,
þeir búa oft nokkrir saman. Hluti
af þeirra lífsstíl virðist vera að
hafa ekki allt of miklar áhyggjur
af hreinlæti í kringum matinn.
Þetta er hópur sem ef til vill
þyrfti að ná til með fræðslu," seg-
ir hún.
Hún segir miklu skipta að upp-
lýsingar um hvort hætta geti staf-
að af matvælum eða ekki komi frá
aðilum sem ekki eiga hagsmuna að
gæta. „Það sem gerðist með um-
ræðuna um erfðabreyttu matvælin
í Bretlandi var að upplýsingar sem
gáfu til kynna að þau væru örugg
og jákvæð virtust koma frá fyrir-
tækjum sem myndu græða á fram-
leiðslu erfðabreyttra matvæla. Það
varð til þess að neytendur skynj-
uðu þau enn frekar sem neikvæð."
Bretar aftur farnir að
borða nautakjöt
Neytendur era hins vegar-
minna tortryggnir þegar kemur
að upplýsingum um hollustu
matvara og næringarfræðilegt
gildi. „Þar skynja neytendur held-
ur ekki hættu sem beinist að sér
heldur frekar að öðram, svipað og
með áfengið."
Fjölmiðlar era að afar áhrifa-
miklir þegar kemur að umfjöllun
um matvæli að sögn Frewer.
„Fréttir af matarsjúkdómum eins
og salmonellu hafa mikil áhrif og
fólk breytir oft hegðun sinni
vegna slíkra frétta. Ljósasta
dæmið eru líklega fréttirnar af
kúariðunni í Bretlandi fyrir
nokkrum árum. Fólk hætti að
kaupa nautakjöt," segir Frewer.
Aðspurð hvort áhrifanna af
fréttaflutningnum gæti enn segir
hún að fólk sé aftur farið að
kaupa nautakjöt en engu að síður
hafi neysla þess minnkað. „En ef
til vill má rekja það til annarra
þátta eins og að fólk reynir í
minna mæli að borða rautt kjöt af
heilsufarsástæðum.“
Heiðarleiki gagnvart
neytendum
Hvað er besta leiðin til að flytja
upplýsingar til neytenda með til-
liti til áreiðanleika þeirra og
trausts neytenda? „Heimildin sem
veitir upplýsingar þarf að vera
opin og gagnsæ. Upplýsingarnar
verða að fara eftir ákveðinni leið
sem neytendur þekkja og það
þarf að vera hægt að rekja hana
svo þeir geti fengið sem ná-
kvæmastar upplýsingar um
áhættumat. Þá verður að vera
skilyrðislaus heiðarleiki gagnvart
neytendum frá stjórnvöldum og
öðrum sem veita upplýsingar. Ef
þaðkemst upp um síðir að stofnun
er ekki heiðarleg verða neytendur
reiðir og það getur verið erfitt
fyrir stofnanir að ávinna sér aftur
traust almennings."
Verslunin
Eva opnuð
að nýju
í síðustu viku var verslunin Eva
opnuð í Galleri Sautján-húsinu
að Laugavegi 91.
„Verslunin hefur nú verið sett
í nýjan búning en um er að ræða
þrjú hundruð fermetra húsnæði
á annarri hæð,“ segir Svava
Johansen, eigandi NTC hf. „Eins
og áður er lögð áhersla á falleg-
an og klassískan fatnað frá há-
tískumerkjum sem og vandaða
skó. í versluninni er því áfram
að finna merki eins og Nicole
Farhi, DKNY, Gerard Darel,
Virmani, Freelance og Bass-
otto.“
Aðspurð segir Svava að meðal
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Við opnun Evu. Á myndinni eru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri, Svava Johansen og Ásgeir Bolli Kristinsson.
nýjunga séu merkin Joseph og
Paul et Joe í fatnaði og ítöisku
merkin Mare og Seller í skó-
fatnaði.
„Um þessar mundir er mikið
af yfirhöfnum í versluninni eins
og mokka-, leður- og ullarkápur
með og án skinns fyrir vetur-
inn.“
Verslunarstjóri Evu er Hólm-
fríður Óskarsdóttir sem starfað
hefur í versluninni síðastiiðin ár.
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 25
OF-VIRKm
DAGAR
ÍACO
Á of-virkum dögum í Aco eru gæðatölvur frá Gateway
og LEO á frábæru verði en á hverjum degi er einhverju
spennandi bætt við kaupin svo sem tölvuleik, DVD mynd
eða prentara. Enginn veit þó fyrirfram hvert viðhengið
verður. Líttu inn á virkum dögum í Aco og kynntu þér
tilboð dagsins
650 Mhz Pentium III
128 Mb vinnsluminni
20,4 Gb harður diskur
DVD drif
Soundblaster hljóðkort
Creative hátalarar
32 Mb TNT2 skjákort - AGP
17" skjár
56k mótald
Windows ME
139.900
800 MHz Pentium III
128 Mb Vinnsluminni
20,4 Gb Harður diskur ■
DVD drif
Soundblaster Live hljóðkort
Creative hátalarar
32 Mb TNT2 skjákort - AGP -
17" skjár
56k mótald
Windows ME
153.900
i cn
LEO
- - '
800 Mhz Pentium III -
128 Mb vinnsluminni
20 Gb harður diskur
DVD drif
Soundblaster hljóðkort
Bostin acoustics hátalarar
32 Mb TNT2 skjákort - AGP -
17" skjár
56k mótald
179.900
Gateway
600 MHz Celeron
64 Mb vinnslumlnni
15 Gb haröur diskur ■
48x geisladrif
Creative hátalarar
17" skjár
56k motald
119.900
hugsaðu skapaðu upplifðu
Skaftahiíð 24 • Sími 530 1800 • Fax 530 1801 • www.aco.is