Morgunblaðið - 31.10.2000, Síða 41

Morgunblaðið - 31.10.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN PRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 41 Hafa allir efni á fartölvu? Undanfarin þrjú ár hefur Menntaskólinn á Akureyri unnið eftir sérstakri „áastlun um hagnýtingu upplýs- ingatækni í kennslu og námi“ og frá því í jan- úar 1999 er skólinn þróunarskóli í upplýs- ingatækni á vegum menntamálaráðuneytis og hlýtur til þess styrk af hálfu þess. Meginmarkmið áætlunarinnar og þró- unarstarfsins er að hagnýta upplýsinga- tækni í öllum náms- greinum til þess að bæta skólann og gera kennsluna ár- angursríkari svo að nemendur geti náð settum markmiðum í námi sínu - eða með öðrum orðum að gera góð- an skóla betri. „Til þess að svo megi verða þurfti fyrst að koma til öílug- ur stuðningur við kennara, s.s. með námskeiðum og leiðbeiningum varð- andi tækni, hugbúnað og tæki, auk þess sem kanna þarf kennslufræði upplýsingatækninnar og þá m.a. hvemig skynsamlegt er og hag- kvæmt að nýta upplýsingatækni í kennslu og námi,“ segir Tryggvi Gíslason skólameistari. „Nauðsyn- legt er að undirbúa kennara undir þetta þróunarstarf því að án kenn- ara verður ekkert komist. Þá er líka nauðsynlegt að vita hvert skal halda því að þeir sem vita ekki hvert þeir ætla komast aldrei á leiðarenda." Tryggvi segir að kennarar skólans hafi sýnt þessu mikinn áhuga og taka nú 40 af 45 föstum kennurum skólans beinan þátt í þróunarstarfinu. „Hef- ur mikið áunnist í þessu þróunarstarfi svo að Menntaskólinn á Akureyri er ekki al- leinasta orðinn þróun- arskóli í upplýsinga- tækni heldur þróun- arskóli með stórum staf. Hefur meiri um- ræða farið fram í skól- anum undanfarin ái' um kennslu og kennslufræði en nokkru sinni áður. Ar- angurinn er því þegar mikill, þótt enn sé mikið óunnið.“ Eitt af markmiðum með hagnýtingu upp- lýsingatækni í kennslu og námi Menntaskólanum á Akureyri er að virkja nemendur betur í námi sínu og gera kennsluna meira lifandi og árangursríkari. „Þetta er því ekki fyrst og fremst spurning um tæki og tól - þótt þau séu nauðsynleg - held- ur um aðferðir, viðhorf og árangur,“ segir Tryggvi. „Meðan menntaskólinn er að marka sér stefnu í upplýsingatækni verður ekki gerð krafa um að nem- endur kaupi fartölvur, enda er enn ekki ljóst hvers konar fartölvur þarf til skólanáms," segir hann, „að mín- um dómi er það heldur ekki réttlæt- anlegt að krefjast þess að nemendur kaupi kennslutæki sem kosta þá í reynd 6 til 8 þúsund kónur á mánuði - eða allt að 100 þúsund krónur á ári. Með því er verið að ganga í ber- högg við grundvallarreglur um jafn- rétti til náms, því að ljóst er að margir nemendur Menntaskólans á Akureyri hafa ekki efni á að leggja fram slíka fjármuni til þess að geta stundað nám.“ „Því er í Menntaskól- anum á Akureyri verið að kanna hvort ekki er unnt að finna fartölvur sem eru ódýrari en þær sem nú eru algengastar á almennum markaði. Síðan verður leitað leiða til þess að leigja nemendum skólans fartölvur um lengri eða skemmri tíma. Hefur komið til tals að gera samning við kostendur um kaup á fartölvum íyr- ir skólann, enda þótt ljóst sé að skól- inn verður sjálfur að leggja fram fé til kaupanna. Er þá komið að því að fjárveitingavaldið sýni þessu mikils- verða máli skilning en áhugi menntamálaráðherra er mikill á málinu,“ segir Tryggvi. Skólinn hefur þegar á að skipa tveimur tölvustofum, tölvuverum, og margmiðlunarherbergi með tölvu- búnaði í bókasafni skólans auk þess sem skólinn á færanlegt fartölvuver sem kennarar nota í þróunarstarfi sínu. „I lok skólaársins verður svo vonandi unnt að meta stöðuna og marka frekari spor í átt að settu markmiði - en upplýsingatækni snýst ekki fyrst og fremst um tæki og tól heldur um þekkingu, skilning og aðferðir, því að upplýsingar, sem nóg er af, verða ekki að þekkingu nema fyrir skilning. Það er leiðarijós Menntaskólans á Akureyri í þessu máli,“ segir Tryggvi að lokum. Tryggvi Gíslason Upplýsinga- skrifstofur um Evrdpumál IggyggS Umhverfis- áætlun Evrópusambandsins auglýsir eftir umsóknum í eftirfarandi: ► Sjálfbær vatnsbúskapur og vatnsgæði ► Hnattrænar breytingar á umhverfi og loftslagi ► Sjálfbært lífríki í hafinu ► Framtíðarborgin og menn- ingararfur ► Hreinni orkukerfi ► Hrein, samkeppnisfær og fjölþætt orkuöflun Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2000. Nánari upplýs- ingar er að finna á heimasíðu RANNÍS (www.rannis.is) eða í síma 515 5800. umiðlana. EES-Vinnumiðlun Á árlegri haustráð- stefnu EES- Vinnumiðlun- ar var fjallað um aukna samþættingu við starf svæðisvinn- Svæðisvinnumiðl- anir á Islandi og EES-Vinnumiðlun tilheyra kerfi Vinnumálastofnunar. Þetta á sérstaklega við um leit að starfsmönnum á Evrópska efnahagssvæðinu fyrir atvinnulífið, en með því að víkka út leitina fæst breið- ari hópur. Það sem einkum hefur gengið vel þetta haust er ráðningar liðlega 60 Norður- landabúa til 8 sláturhúsa í öll- um landshlutum. Einnig sést vaxandi áhugi á garðyrkju- og landbúnaðarstörfum á Islandi einkum meðal Norðurlanda- búa. Störfum á Islandi sem kynnt eru á heimasíðu EUR- ES og birtast á Netinu fer fjölgandi og verða æ fjöl- breyttari. Urvalið má sjá á heimasíð- unni: www.vinnumalastofnu.is undir EES-Vinnumiðlun, EURES. Upplýsingatækni ogjafnrétti „Fartölvuvæðing fram- haldsskólanna er mál sem hefur verið mikið í brennidepli að undan- förnu,“ sagði Örylgur Hnefill Örlygsson á fundi um fartölvur og nám í Menntaskólanum á Akureyri 19. okt. sl. „Bjöm Bjamason menntamálaráðherra heíúr varpað fram aðdá- unarverðum hugmynd- um um að gera öllum framhaldsskólanemum kleift að stunda nám sitt með aðstoð fartölvu. Vandinn er hinsvegar sá að ekki er veitt nægu fjármagni til verkefnisins. Tölvumál framhaldsskólanna hafa nánast verið í fjársvelti og ljóst að þau em ekki á forgangslista ríkisstjórnar- innar. Því hefur þurft að bakka mikið með verkefnið og nú er staðan sú að nemendum er í sjálfsvald sett, hvort þeir taki þátt eður ei. Þeir sem kjósa að vera með þurfa sjálfir að fjár- magna tölvukaupin og því ljóst að ekki sitja allir við sama borð. Það fer í raun eftir efnahag hvers og eins hvort hann getur fylgt þeirri þróun sem á sér stað og þannig myndast breitt bil milli hinna ríku og hinna fátæku. Óréttlætið er augljóst. Ekki er hægt að verja það með neinum hætti að mismuna nemendum á þennan hátt. Þetta er ekki jafnrétti til náms. Auk þess er Ijóst að þær fjárfestingar sem margir nemendur hafa farið út í, nýtast ekki sem skyldi þegar einungis hluti nemenda er með fartölvu. Þegar það eru ekki nema 3-4 í hverjum bekk sem eru með fartölvu getur kennar- Örlygur Hnefíll Örlygsson inn ekki sniðið nám- sefnið að fartölvunum. Upplýsingatækni- deild MA hefur unnið mikið og gott starf í því að koma upp kerfi til að þjóna fartölvunotend- um. Áhugi er á að vinna með nemendum sem hafa fartölvu miðað við þeirra þarfir, en það er hluti af þróunarverk- efninu. Sjálfur hef ég ekki reynslu af notkun far- tölvu við nám, en ég veit að þegar ég hef nýtt borðtölvuna mína við nám hefur það reynst mér mjög vel. Öll skipulagning verður einfaldari og námið liggur ein- hvemveginn betur fyrir mér. Kostimir ættu að vera flestum ljós- ir, en það þarf að mínu mati að skipu- leggja þetta verkefni á annan hátt. Það má ekki láta það gerast að þeir skólar sem leggja áherslu á nám með fartölvu verði einungis fyrir hina efn- uðu.“ skólar/námskeið tungumál ■ Enskunám í Englandi Bjóðum enskunám við einn virtasta mála- skóla Englands. Skólinn sér þér fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu. Um er að ræða alhliða ensku 18 ára og eldri og viðskiptaensku. Unglingaskóli í júlí og ágúst. Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir, sími 862 6825 eftirkl. 18.00. Colostrum frá Broddur/Acidophilus allra meina bót Vinsælasta heilsubótin í USA. Borgarapótek W5 O L. 3 Gæöavara Góð verð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.