Morgunblaðið - 31.10.2000, Side 45

Morgunblaðið - 31.10.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 45 PENINGAMARKAÐURINN/FRÉTTIR Herjólfsmenn fengu að sjá hluta af gögnum Vegagerðarinnar Vöktu fleiri spurn- ingar en svör EFTIR að ljóst varð að Vegagerðin gekk til samninga við Samskip um rekstur Herjólfs frá næstu áramót- um, létu forráðamenn Herjólfs hf. af þeirri kröfu sinni að fá fullan að- gang að gögnum Vegagerðarinnar vegna kostnaðaráætlunar í útboð- inu. Magnús Jónasson, framkvæmda- stjóri Herjólfs, sagði við Morgun- blaðið að þeir hefðu fengið að sjá hluta af gögnunum en það hefði vak- ið fleiri spurningar hjá þeim en svör fengust við. Þegar óskað hefði verið eftir frekari gögnum hefði Vega- gerðin neitað, þar sem gögnin byggðust að öðru leyti á mati þeirra og skoðunum. „Við reyndum á tveimur fundum með þeim að afla þessara gagna en Fiskmarkaðir MORGUNBLAÐINU bárust ekki upplýsingar frá fiskmörk- uðum í gær vegna tæknilegra örðugleika en unnið er að því að sameina tölvukerfi fiskmarkað- anna. Því eru ekki birtar tölur frá fiskmörkuðum í blaðinu í dag. Beðist er velvirðingar á þessu. því miður tókst ekki að fá botn í það mál. Nú er málið dautt þar sem Vegagerðin er búin að skrifa undir samning við Samskip. Við sjáum ekki að við getum aðhafst neitt frek- ar,“ sagði Magnús. Hann sagði að sá hluti gagnanna sem Vegagerðin lét í hendur stjórn- enda Herjólfs hefði sýnt þeim að kostnaðaráætlun hefði verið óraun- hæf og engan veginn í samræmi við veruleikann sem Herjólfur hf. lifði við. „Tölurnar voru bara alltof lágar, miðað við staðreyndir. Það voru þarna stórir hlutir sem við bara ráð- um ekkert við. Við ráðum ekki samningum starfsfólks, ráðum ekki við samninga um olíuverð, við ráð- um ekki við opinber gjöld og svo framvegis. Ég fæ ekki séð að Sam- skip geti sloppið við að borga starfs- mönnum sínum laun eða borga hafnargjöld og önnur opinber gjöld,“ sagði Magnús. Starfsfólki sagt upp Aðspurður hvað tæki við hjá fyr- irtækinu sagði Magnús það með öllu óráðið. Það eina sem lægi fyrir væri að segja upp starfsfólkinu, formsins vegna, þar sem frá áramótum yrði Herjólfur hf. ekki með skiparekstur lengur. LOKAGILDI HELSTU HLUTABRÉFAVÍSITALNA Evrópa Lokagildi breyt.% Úrvalsvísitala aðallista 1.421,10 -1,56 FTSE100 6.388,40 0,34 DAX í Frankfurt 6.935,95 0,27 CAC 40 i París 6.296,84 0,45 OMXÍStokkhólmi 1.151,67 -0,62 FTSE NOREX 30 samnorræn 1.391,20 -0,97 Bandaríkin DowJones 10.835,77 2,31 Nasdaq 3.191,33 -2,65 S&P500 1,398,65 1,38 Asía Nikkei 225 ÍTókýó 14.464,56 -0,81 HangSengíHongKong 14.799,90 -0,69 Viðskipti með hlutabréf deCODE á Nasdaq 20,0625 0,93 deCODE á Easdaq 20,75 -1,20 VIÐSKIPTI Á KVÓTAÞINGIÍSLANDS 30.10.2000 Kvótategund Viöskipta- Vióskipta- Hæsta kaup- Lægsta sölu- Kaupmagn Sölumagn Vegiö Vegió sölu- Slöasta magn (kg) verö(kr) tilboó (kr) tilboð (kr) eftir(kg) eftir(kg) kaup- verö (kr) meðalv. verð (kr) (kr) Þorskur 24.400 103,74 102,00 102,99 85.000 85.298 99,88 105,34 103,82 Ýsa 25.970 86,08 86,66 11.040 0 86,11 85,27 Ufsi 1.500 33,16 32,94 0 29.148 32,95 34,00 Karfi 3.000 40,49 39,98 0 9.709 40,08 39,99 Steinbítur 34,00 0 6.712 34,37 35,30 Grálúða 2 93,00 96,00 98,00 29.998 15.700 96,00 98,00 96,00 Skarkoli 1.290 104,50 104,50 110,00 8.710 10.000 104,50 110,00 104,83 Þykkvalúra 60,00 75,00 10.000 5.598 60,00 75,00 65,00 Sandkoli 18,00 21,21 10.000 15.000 18,00 21,21 21,00 Úthafsrækja 15.000 30,50 25,00 35,00 4.000 152.674 25,00 52,49 35,28 Ekki voru tilboö í aörar tegundir ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA Meöalávöxtun síöasta úboös hjá Lánasýslu ríkisins Ríkisvíxlar 17. ágúst '00 Ávöxtun í% Br. frá síðasta útb. 3mán. RV00-0817 11,30 0,66 5-6 mán. RV00-1018 11,36 0,31 11-12 mán.RV01-0418 Ríkisbréf sept. 2000 RB03-1010/K0 Spariskírteini áskrift 11,52 -0,21 5 ár 6,00 Áskrifendur greiöa 100 kr. afgreiöslugjald mánaöarlega. Framsóknarmenn á Norðurlandi vestra og Vesturlandi Innganga í ESB útilokuð við núverandi aðstæður í SAMEIGINLEGRI stjórnmála- ályktun sem samþykkt vai' á kjör- dæmisþingi framsóknarmanna á Noi'ðurlandi vestra og Vesturlandi, sem haldið var um helgina, er lýst stuðningi við það starf sem nú er unn- ið innan flokksins með það að mark- miði að skilgreina stöðu Islands gagn- vait Evrópusambandinu. „Þingið telur þó að ekki komi til greina að ganga í Evrópusambandið við þær aðstæður sem nú ríkja,“ segir í stjómmálaályktun þingsins. Stækkun kjördæma kallar á bættar sanigöngur Kjördæmisþingið var haldið á Reykjum í Hrútafirði á laugardag og sunnudag að viðstöddum nokkrum gestum af Vestfjörðum en rætt var m.a. ítarlega á þinginu um stofnun nýs kjördæmasambands vegna breyttrar kjördæmaskipunar. í ályktun þingsins er bent á að stækkun kjördæma kalli á bættar samgöngur innan norðvesturkjör- dæmisins. I stjómmálalyktun þingsins er fagnað þeim árangri sem Framsókn- arflokkurinn hafi náð í núverandi rík- isstjómarsamstarfi. í umfjöllun um einstaka mála- flokka er m.a. lögð áhersla á að for- gangsmál opinberrar þjónustu séu að sjá um velferðaiTnál og stjómsýslu og að íslendingum beri skylda til að mynda öryggisnet um þá sem af ýms- um orsökum mega sín minna í samfé- laginu. „Afkoma aldraðra og öryrkja er misjöfn eins og annarra hópa í samfélaginu. Leggja ber áherslu á að kjör þessara hópa verði leiðrétt,“ seg- ir m.a. í stjórnmálaályktuninni. Fagnar þingið þeim breytingum sem gerðar hafa verið á barnabóta- kei'finu en brýnt er fyrir foi'ystu flokksins að standa vörð um þau mál- efni í núverandi ríkisstjórnarsam- starfi sem flokkurinn lagði áherslu á. fyrii' síðustu kosningar. Áfengiskaupaaldur verði sam- ræmdur sjálfræðisaldri í sérstakri ályktun þingsins er því beint til stjórnvalda að áfengiskaupa- aldur verði samræmdur sjálf- og for- ræðisaldri. Loks skorar þingið á framkvæmda- stjóm flokksins að gera byggðamál að sérmáli næsta flokksþings. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir Allir í leikfimi hjá SS Hvolsvelli. Morgunblaðið. ÞAÐ var lett yfir starfsfólki Slátur- félags Suðurlands á Hvolsvelli þeg- ar það tók nokkrar léttar leikfimi- æfingar í matsal fyrirtækisins undir stjórn Auðar Ólafsdóttur sjúkraþjálfara. Hún kynnti nýtt æf- ingaprógram sem fyrirtækið Heilsuvernd ehf. hefur sett saman FÉLAG framhaldsskólanema stend- ur nú fyrir undirskriftasöfnun meðal félagsmanna sinna vegna yfirvofandi verkfalls kennara sem boðað hefur verið 7. nóvember næstkomandi og að sögn Steinunnar Völu Sigfúsdóttur, formanns Félags fi’amhaldsskóla- nema, hefur söfnunin gengið afar vel. „Við eigum eftir að taka heildar- fjöldann saman, en í skólanum mín- um, Menntaskólanum við Hamrahlíð, þar sem eru 900 nemendur, hafa til dæmis safnast 600 undirskriftir. Við tökum þá afstöðu að styðja kennara í baráttunni fyrir bættum kjörum þannig að það verði eftirsókn- arvert að vera framhaldsskólakenn- arij“ segir Steinunn Vala. I texta þeim sem nemendur skrifa undh' er þess krafist að stjórnvöld FJÖLBRAUTASKÓLINN í Garða- bæ efnir til opins fræðslufundar fyi-ir forráðamenn nemenda skólans svo og íbúa Garðabæjar og Bessa- staðahepps. Ásdís Halla Bragadótth- bæjar- stjóri kemur á fundinn ásamt Berg- ljótu Sigurbjörnsdóttur félagsmála- og gefíð út fyrir SS. Auður kallar þetta hléleikfími en meiningin er að tvisvar á dag verði gert hlé á vinn- unni í nokkrar mínútur og að allir fari í létta leikfími. Auður sagði starfsfólkið hafa mikla þörf fyrir slíka leikfimi því vinnuálag væri mikið og hreyfíngar oft einhæfar. „semji nú þegar við kennara til að tryggja áfallalaust skólahald og koma í veg fyrir hugsanlegar tafir á námi nemendá'. Jafnframt er lýst yfir stuðningi við kröfur kennara um bætt launakjör. Verkfallshópar nemenda Auk undirskriftasöfnunarinnar hafa framhaldsskólanemendur hafið undh'búningsvinnu sem miðar fyrst og fremst að því að tryggja að upp- lýsingar um gang mála komist hratt og vel til skila til allra nemenda, komi til verkfalls. „Við höfum hvatt for- menn nemendafélaga til að koma á fót sérstökum verkfallshópum innan skólanna, sem taka við öllum upplýs- ingum um stöðu mála og koma þeim til nemenda." fulltrúa og Áslaugu Huldu Jóns- dóttur, formanni stai'fshóps Gai'ða- bæjai' um vímuvarnir. Fundarefni er forvarnir í Garðabæ. Fundurinn verður haldinn þriðju- daginn 31. október nk. í húsakynnum skólans og hefst hann kl. 20 og lýkur kl. 22. Kaffi og meðlæti í boði skólans. Öld frá stofnun j Mjólkur- skólans ÖLD er liðin síðan danski mjólkur- fræðingurinn Hans J. Grönfeldt hóf fyrstur manna kennslu í mjólkur- fræðum hérlendis því hinn 1. nóvem- ber árið 1900 tók Mjólkurskólinn á Hvanneyri til starfa. í tilefni aldar- minningar Mjólkurskólans heldur Bjarni Guðmundsson, prófessor við! Landbúnaðarháskólann á Hvann- eyri, fyi-irlestur um skólann mið- vikudaginn 1. nóvember nk. I fyrirlestrinum verður fjallað um aðdraganda stofnunar Mjólkurskól- ans, starfið í skólanum og helstu áhrif hans. Fyrirlesturinn verður haldinn í matsal Landbúnaðarhá- skólans og hefst kl. 20.30. Öllum er heimill ókeypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. í fréttatilkynningu segir: Það var Búnaðarfélags Islands sem stofnaði skólann og rak hann. Mjólkurskólinn átti eftir að starfa um árabil og hafa mikil áhrif á framvindu mjólkur- vinnslu í landinu, bæði með ráðgjaf- arstarfi Grönfeldts skólastjóra og rjómabússtýrunum sem hann menntaði og réðust til starfa hjá rjómabúum víða um land. Rjóma- búin voru drjúgur tekjugjafi margra sveita á fyrstu árum 20. aldarinnar og brautryðjendur mjólkuriðnaðar nútímans. Stofnun Mjólkurskólans var einn fyrsti liðurinn í nýsköpun mjólkur- vinnslu hér á landi, jafnframt því að vera einn fyrsti áfanginn í starfs- menntun kvenna á íslandi. Mjólk- urskólinn starfaði í þrjú ár á Hvann- eyri en haustið 1903 brann hús hans til grunna. Þá var skólinn fluttur var til Reykjavíkur, í kjallarann að Aðal- stræti 18, en mjaltaæfingar fóru fram í fjósi Þórhallar biskups Bjarny arsonai- í Laufási. I Reykjavík átti Mjólkurskólinn aðeins fáa starfs- mánuði því hann var fluttur að Hvít- árvöllum árið 1904. Þar var hann rekinn allt til 1918 að hann lagðist af í kjölfar dvínandi aðsóknar og breyt- inga á smjörmarkaði. Nær 200 stúlk- ur stunduðu nám við Mjólkurskól- ann á starfstíma hans. ---------------- Ekið á hross á Þingvallavegi. PALLBÍL var ekið inn í hóp hesta á Þingvallavegi við Seljabrekku snemma sunnudagsmorguns en hestarnir voru lausir utan girðingar. Tvö hross drápust við áreksturinn en ekki urðu slys á fólki. Óhappið varð um kl. 7.30 og því dimmt og mun ökumaðurinn ekki hafa séð hrossin fyrr en um seinan. . Undirskriftasöfnun framhaldsskóla- nemenda vegna yfírvofandi verkfalls Lýsa yfir stuðn- ingi við kennara Opinn fræðslufundur um forvarnir í Garðabæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.