Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 67
------------ '—............u
FRÉTTIR
Guðmundur Pétursson, fráfarandi Umdæmisstjóri (f.v.) og kona hans
Bára Hansdóttir, Anna Konráðsdóttir, umdæmisstjórafrú og Gísii H.
Árnason, umdæmisstjóri fyrir starfsárið 2000-2001. Umdæmisstjóra-
skipti urðu 1. október.
Styrktarsjóður Kiwanis
á Islandi og í Færeyjum
Athugasemd
til hunda-
eigenda
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ólafi R.
Dýrmundssyni, landnýtingarráðu-
nauti Bændasamtaka íslands:
„í Morgunblaðinu laugardaginn 29.
október á bls. 2 er frétt um að lausir
hundar valdi vandræðum í Heiðmörk.
Þar er m.a. haft eftir Vigni Sigurðs-
syni, umsjónarmanni Heiðmerkur, að
„við Lögbergsrétt og á Hólmsheiði
séu t.d. aðgengileg svæði íyrir hunda-
eigendur". Hér mun reyndar átt við
Fossvallarétt sem er lögrétt fyrir
Reykjavík, Kópavog og Seltjamar-
nes.
Eitt er víst að þessi svæði henta
ekki fyrir lausa hunda. Fyrir ofan
Fossvallarétt er fé í högum allt frá
júní til október ár hvert og skammt
ofan við réttina eru haustbeitarhólf
fjáreigenda þar sem lausir hundar
mega alls eldd vera á ferð. A öllum
árstímum er þar einnig útivistarfólk á
ferð líkt og í Heiðmörkinni.
í Hólmsheiðinni er Fjárborg, fjár-
húsa- og hesthúsahverfi, þar sem
lausir hundar eiga ekki heldur heima.
Þar er einnig mikil umferð útivistar-
fólks, ekki sist hestamanna, og hund-
ar ættu ekki að ganga þar lausir frek-
ar en í Heiðmörkinni eða í nágrenni
Fossvallaréttar.
Rétt er að minna á að þótt al-
mannaréttur til umferðar um land af
ýmsu tagi sé mjög rúmur sbr. Nátt-
úruvemdarlög nr. 44/1999 eiga hund-
ar ekki að ganga lausir í búfjárhögum
né á öðram stöðum þar sem þeir geta
traflað fólk sem stundar útivist af
ýmsu tagi. Slíkt fer einfaldlega ekki
saman eins og reynslan í Heiðmörk
hefur sýnt. Hundaeigendur þurfa að
sjálfsögðu aðstöðu til að viðra hunda
sína en það er ekki sama hvar hún
er.“
KIWANISHREYFINGIN á íslandi
og í Færeyjum hélt sitt árlega
landsþing (umdæmisþing) í
Reykjanesbæ síðustu helgina í
ágúst og var þar fjallað um árang-
ur og framtíðarsýn samtakanna.
Á þessu þingi var stofnaður sér-
stakur styrktarsjóður fyir um-
dæmið ísland og Færeyjar. Sjóður
þessi mun styrkja þau verkefni
sem skjótra úrlausna þarf við með
fjárframlögum. Verkefni af þessu
tagi geta komið til vegna
náttúrurhamfara, slysa eða ann-
arra ófyrirséðra atvika, segir í
fréttatilkynningu.
Yfirlýsing
stjórnar
Landverndar
vegna fiskeld-
is í sjókvíum
LANDVERND hefur sent frá sér
eftirfarand yfirlýsingu:
,Á fundi stjórnar Landvemdar 26.
október sl. var fjallað um fyrirliggj-
andi áform um eldi á norskum laxi í
sjókvíum hér við land. Stjómin sam-
þykkti eftirfarandi yfirlýsingu:
Stjóm Landverndar beinir þeim
tilmælum til viðkomandi stjórnvalda
að sýnd verði aðgát við athugun á
umsóknum um leyfisveitingar fyrir
laxeldi í sjókvíum við strendur ís-
lands. I þessu sambandi vill stjómin
vekja athygli á eftirfarandi atriðum: í
samræmi við ákvæði samningsins um
líffræðilega fjölbreytni ber íslenskum
stjómvöldum að varast framkvæmd-
ir sem geta skaðað fjölbreytileika í
lifríki landsins. í þessu sambandi vís-
ar stjómin til 41. gr. laga um náttúra-
vemd um innflutning lifandi fram-
andi lífvera.
Veiðar á villtum íslenskum laxi era
ákaflega mikilvægur þáttur í afkomu
fjölmargrar bænda og ekki má stofna
afkomu þeirra í hættu, þar sem það
kynni að hafa afar neikvæð áhrif á
þróun búsetu víða á landsbyggðinni.
Stjóm Landvemdar telur að ekkff
skuli heimila laxeldi í sjó nema sýna
megi fram á að henni fylgi hvorki
hætta á erfðablöndun við íslenska
laxastofna né aukin sjúkdómahætta."
------K-*-------
Burtfluttir
Snæfellingar
með árshátíð
FÉLAG Snæfellinga og Hnappdælaí
í Reykjavík er félagsskapur burt-
fluttra Snæfellinga og annarra
þeirra sem tengjast Snæfellsnesi á
einhvem hátt. Árshátíð félagsins
verður haldin laugardaginn 4. nóv-
ember í Akoges-salnum, Sóltúni 3,
Reykjavík. Von er á góðum gestum
að vestan til að skemmta. Að þessu
sinni mun Ólína Gunnlaugsdóttir,
Hellnum, syngja og leika og Ólöf Ól-
afsdóttir, Stykkishólmi, fer með
gamanmál. Heiðursgestir á sam-
komunni verða Skúli Alexandersson
og kona hans, Hrefna Magnúsdóttir,
Hellissandi. Veislustjóri verður Kol-
brún Björnsdóttir frá Ólafsvík.
I Jgpanaarts
HEIMSPEKKTIR
GÆÐA VARAHLUTIR
fyrir japanska
og kóreska bíla
INNKÖLLUN
Stjórn Hraðfrystihússins Gunnvarar hfv kt. 630169-2249, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga
um hlutafélög, nr. 2/1995, hefur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar
skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. Rafræn skráning tekur gildi mánudaginn 5. febrúar 2001 kl.
9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við heimild í ákvæði til
bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000,
um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum og reglugerð nr.
397/2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru
öll í einum flokki, auðkennd raðnúmerum frá H-000568 og í samfelldri röð nú H-002024. Bréfin eru gefin út
á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald
þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn
til skrifstofu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. á Hnífsdalsbryggju, 410 Hnífsdal. Komi í Ijós við slíka könnun
að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan þriggja
mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignarskrán-
ingu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar. Gæta skal þess að reiknings-
stofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf.
Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa er nafnverð hluta ákveðið ein króna eða margfeldi þar af.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verð-
bréfaskráningu íslands hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar
og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000.
Hnífsdal, 9. október 2000.
F. h. stjórnar Hraðfrystihússins Gunnvarar hf.,
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri.