Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 70

Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 70
MORGUNBLAÐIÐ 70 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 I' ................. Dýraglens Ljóska Ferdinand Smáfólk ALL RI6HT,TR00P5..A5 U)E HEAP off into THE U)ILP, WHO CAN TELL ME UJHAT U)E 5H0ULPD0IF LUEGET L05T? Jæja piltar, þar sem við höldu nú til fjalla, hver getur þá sagt mér hvað við gerum ef við villumst? Nei, uppreisn er ekki með á blaði. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík S Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329 Þankagangur Frá Mörthu Ingimarsdóttur: JÆJA, þá er okkur eldri borgurum ljóst af hverjum við lifum ekki á launum okkar. Stöð 2 fékk Pétur Blöndal í „Svar óskast“ 6. okt. sl. Svo mörg voru þau orð. Væri Pétur ekki til í að sýna okk- ur svart á hvítu á hverju velsæld okkar byggist og gera það á manna- máli, því ef ég skildi hann rétt, þá hefur á sl. 5 árum verið mulið undir okkur af slíku örlæti að mál sé komið að við lokum á okkur munninum og þökkum pent fyrir. Honum ætti nú ekki að verða skotaskuld úr því, enda klár náungi með mikið viðskiptavit. Eitt verð ég að upplýsa hann og alþjóð um, að mér hefur alla jafna líkað vel hans málflutningur, rökfastur maður, en nú er bleik brugðið. Ég skil ekki al- veg þá umræðu sem átti sér stað þarna á Stöð 2. Og því er spurningin sú, hvernig má það vera að ríkið geti hirt af mér og sjálfsagt mörgum öðrum um- samdar hækkanir á eftirlaunin, eins og gerðist hjá mér 1. sept. sl.? I mars sl. hækkuðu launin um einn launaflokk og er mér kunnugt um að þetta var gert skv. samningi og þar af leiðandi eðlilegt að mér yrði greidd þessi hækkun á eftirlaunin. Eftirlaunin eru rúm 48% af launa- tekjum og ég get fullvissað Pétur um að það vora engin ráðherralaun sem ég vann fyrir heldur innan við 100.000 á mánuði brúttó. Og því spyr ég, hvernig er þetta hægt? Jú, það er víst löglegt, en er það ekki sið- laust? Hvernig litist nú öðrum launþeg- um á, ef þeiira laun yrðu nú skert eftir undirritun samninga, vegna þess að launin væru of há og viðkom- andi búinn að fá nóg, að mati emb- ættismanna ríkisins? Að minnsta kosti hlýtur það að vera hugsunin þegar að eldri borgurum kemur. Því er það augljóst að embættismenn þjóðarinnar hafa ákveðið að heildar- laun eldri borgara, sem líka taka laun frá Tryggingastofnun ríkisins, megi ekki vera hærri en frá 48-95 þúsund á mánuði brúttó og ef því yrði breytt, færi landið á hausinn. Endilega útskýrið fyrir okkur eldri borgurum þessa lands hvað hefur gerst sl. 5 ár, sem gerir það að verkum að við lifum í vellystingum praktuglega. Svar óskast. MARTHAINGIMARSDÓTTIR, Suðurvangi 12, Hafnarfirði. t,;. Áhættan eykst ef við notum farsíma í akstri. Tekur þú áhættu í umferðinni? Frá ungum ökumönnum í ökuskóla Sjóvár-Almennra: VIÐ ERUM ungir ökumenn sem sóttu umferðarskóla Sjóvár-Al- mennra í Reykjavík í október. Við veltum fyrir okkur hvers vegna ungt fólk er að taka áhættu í umferðinni og hvernig við getum dregið úr slíkri hegðun. Við viljum benda ykkur, kæru jafnaldrar, á nokkur atriði sem skipt geta sköpum í þessu efni. Við teljum að ungir karlmenn séu oftast að taka áhættu í umferðinni og oft er það vegna kjánaskapar. Þeir eru hugsanlega með minnimáttar- kennd sem birtist í því formi að sýn- ast fyrir öðrum. Þeir eru ekki bara að leika sér að eigin lífi heldur okkar líka. Stundum getur þetta verið til að ganga í augun á hinu kyninu. Stelp- urnar staðhæfa hins vegar að þær vilji ekki fara upp í bíl þeirra sem hræða úr þeim líftóruna. Við hvetjum því alla til að forðast eins og þeir geta alla áhættu. Ökum aldrei undir áhrifum áfeng- is eða annarra vimuefna. Ölvun og akstur eiga aldrei saman og rann- sóknir segja okkur að við unga fólkið séum í meiri áhættuhópi hvað varðar ölvunarakstur og um leið er áfengi fljótara að sljóvga okkur og gera okkur að lakari ökumönnum. Áhættan eykst ef við notum far- síma í akstri. Við skulum forðast hraðakstur og fylgja reglum um umferðarhraða. Notum alltaf bílbelti, líka á stuttum leiðum. Verum vakandi við stýrið. Virðum allar umferðarreglur og aldrei að aka yfir á rauðu ljósi. Ungum ökumönnum hættir oft til að láta mana sig, sérstaklega ef margir jafnaldrar eru í bílunum. Látum ekki mana okkur. Það yrðum við sem þyrftum að bera alla ábyrgð ef eitthvað kæmi upp á. Með kveðju frá ungum ökumönn- um í ökuskóla Sjóvár-Almennra í Reykjavík í október. EINAR GUÐMUNDSSON, forvarnafulltrúi Sjóvár-Aimennra. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.