Morgunblaðið - 31.10.2000, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 73
DAGBOK
BRIDS
Umsjón Guðmundur I'áll
Arnarson
Flestum spilurum er illa
við að opna á veikum
tveimur í hálit með fjórlit
í hinum hálitnum. Þessi
staðreynd hefur áhrif á
spilamennsku suðurs í
fimm laufum:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
Norður
v (J75
♦ AK1098
* AK873
Suður
A ÁG9
» K9
♦ 642
* D10962
Vestur Norður Austur Suður
2 spaðar Pass
3 spaðar 4 grönd *Pass 5 lauf
Pass Pass Pass
Norður sýnir láglitina
með stökki sínu í fjögur
grönd eftir veika hindrun
austurs og taktíska hækk-
un vesturs. Suður velur
auðvitað laufið og líst
bara nokkuð vel á blindan
og horfur sínar í fimm
laufum. Vestur kemur út
með spaða. Suður hendir
hjarta úr borði og drepur
drottningu austurs með
ás. Hver væri nú áætlun
lesandans?
Fyrsta hugmyndin sem
kviknar er að fríspila tíg-
ulinn án þess að hleypa
austri inn til að spila
hjarta í gegnum kónginn.
Sem er hægt ef vestur á
þrílit. En er það líklegt?
Til að byrja með tekur
sagnhafi tvisvar tromp og
það kemur í ljós að aust-
ur á eitt en vestur tvö.
Það er þá vitað að austur
á sexlit í spaða og eitt
lauf. Ef hann er með
tvíspil í tígli, þá á hann
fjórlit í hjarta. Myndi
hann opna á veikum
tveimur í spaða með hinn
hálitinn líka? Ef sagnhafi
reiknar ekki með þeim
möguleika, þá reynir
hann að finna aðra leið.
Og hún er til:
Norður
Norður
» G75
♦ AK1098
* AK873
Vestur Austur
* 10753 * KD8642
» ÁD862 » 1043
♦ G3 ♦ D75
A G5 A 4
Suður
A ÁG9
» K9
♦ 642
* D10962
Hann trompar spaða
tvisvar, tekur ÁK í tígli
og spilar síðan hjai’ta á
níuna. Vestur getur tekið
tvo slagi á hjarta, en
neyðist svo til að spila út í
tvöfalda eyðu og þá hverf-
ur tapslagurinn í tígli
heima.
Ast er...
. að koma blóðrásinni
hans á hreyfingu.
Arnað heilla
QA ÁRA afmæli. í dag,
«/U þriðjudaginn 31.
október, verður níræð Rakel
Jóhannsdóttir. Eiginmaður
hennar er Pálmi Guðni
Guðnason, fyrrv. vólstjóri.
Þau eru búsett í Hrafnistu í
Hafnarfirði.
rn ÁRA afmæli. í dag,
uU þriðjudaginn 31.
október, verður fimmtug
Drffa Kristjánsdóttir, for-
stöðumaður Meðferðar-
heimilisins Torfastöðum.
Hún og eiginmaður hennar,
Ólafur Einarsson, munu
taka á móti gestum næst-
komandi laugardag, 4. nóv-
ember, kl. 19 á heimili þeirra
á Torfastöðum.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Júlíus
Þessir duglegu drengir, Andri Guðmundsson og Eiður Ey-
þórsson, hafa safnað flöskum og dósum og haldið hlutavelt-
ur í tvö ár. Afraksturinn er kr. 50.000 sem þeir gáfu til
Rauða kross Islands vegna alnæmissöfnunar.
SKAK
Ilmsjón Ilelgi Áss
Grótarsson
FYRIR 5 árum bar Garry
Kasparov (2.849) sigurorð
af Vishy Anand í einvígi um
heimsmejstaratitil hins fyrr-
nefnda. I undirbúningi sín-
um fyrir einvígið lét Kaspar-
ov landa sinn Vladimir
Kramnik (2.770) yfirfara all-
ar skákrannsóknir sínar.
Hugsanlega hefur þetta haft
töluverð áhrif á gang einvíg-
is þeirra Kramniks
og Kasparovs sem
nú stendur yfir í
London þar sem
Kramnik fékk ein-
stæða sýn í vinnu-
brögð lærimeistara
síns. í hið minnsta
hefur hann pálmann
í höndunum þegar
einvígið er að taka
enda. Staðan er frá
einvíginu og stýrði
áskorandinn hvítu
mönnunum. 15.
Bxe6! fxe6 16.
Dxe6+ Kh8 16. ...
Hf7 tapar strax eftir 17.
Re5.17. Dxe7 Bxf3 18. gxf3
Dxd4 19. Rb5! Dxb2 20.
Hxc8 Hxc8 21. Rd6 Hb8 22.
Rf7+ Kg8 23. De6 Hf8? 23.
... h5 var betri vörn en engu
að síður voru sigurmögu-
leikar hvíts afar góðir. 24.
Rd8+ Kh8 25. De7 og Kasp-
arov gafst upp enda yrði
hvítum ekki skotaskuld úr
því að vinna úr yfirburðum
sínum eftir t.d. 25. ... Hxd8
26. Dxd8+ Rg8 27. Dd5.
14. einvígisskák Kaspar-
ovs og Kramniks hefst í dag
klukkan 13:00 að íslenskum
tíma.
Hvítur á leik.
LJOÐABROT
HÚSMOÐIRIN
Við daglega umhyggju alls,
iyrir óskir og löngun og þörf
að beita sér eins og bezt er unnt
og búa undir framtíðarstörf,
breiða ástúðar yl og ljós
yfir allt sitt starfaskeið, -
slík er húsmóður önn. Hún er allra þjónn
og alvöld drottning um leið.
Þegar mey gefur manni hönd
og máttur og ást eru tengd,
þegar elskandi hjörtu binda sín bönd
í bráð og um ævilengd,
þá er heimilisríkið reist.
Hún er rós, hún er ljósgjafinn hans
og vígir og nærir hinn eilífa eld
á altari hjónabands.
Sigurður Jónsson.
STJÖRNUSPA
eltir Frances Urake
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert ákafiega hæfur og
sjálfstæður einstaklingur,
en sumum finnst framtaks-
semi þín keyra um þverbak.
Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú þarft að hreyfa þig meira. Deilur rísa um eignarrétt og þú verður að hafa þig allan við til þess að standa á rétti þínum. Sýndu þolinmæði.
Naut (20. apríl - 20. maí) Sýndu ýtrustu varkárni í starfi, því ýmsar hættur leynast handan hornsins. Gamall vinur leitar til þín og á það inni hjá þér að þú hjálpir honum.
Tvíburar ^ (21. maí - 20. júní) “DA Þú hefur nokkuð svigrúm, þótt þú haldir þig innan settra reglna. Það er óþarfi að ganga of langt og veldur þér bara stökustu vandræð- um.
Krabbi ^ (21. júní - 22. júlí) Láttu ekki breytingar fara í taugarnar á þér. Þótt breyt- ingar breytinganna vegna séu lítils virði, eru aðrar sem leiða ótvírætt til framfara.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) SÍÍ Gættu þess í öilum samskipt- um við aðra, að frelsi þitt takmarkast við frelsi þeirra. Reyndu ekki að ganga lengra því það hefnir sín alltaf.
Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <6sL Lífið er ekki alltaf leikur og stundum verður þú að gera fleira en gott þykir. Það er þó engin ástæða til sjálf- svorkunnar þess vegna.
(23^sept.-22.okt.) Þótt þú hafir í mörg horn að líta, máttu ekki láta undir höfuð leggjast að gefa þér tíma til þess að sinna þínum nánustu. Það er þér líka end- urnýjun.
Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) '"tÍC Þér hættir til í hita augna- bliksins að missa sjónar á takmarkinu. Reyndu að ná betri tökum á skapi þínu, þannig að það hlaupi ekki með þig í gönur.
Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) ífcCr Leyfðu sköpunargáfu þinni að njóta sín og hún mun leiða þig á fræðandi og skemmti- iega stigu, þar á meðal íhug- anir um lífið og tilveruna.
Steingeit (22. des. -19. janúar) 4K Láttu ekki slá ryki í augun á þér um tiigang starfs þíns. Það eru öfundarmenn sem vilja draga úr þér kjarkinn, en þú heidur ótrauður þínu striki.
Vatnsberi . (20. jan. -18. febr.) Gættu þess að móðga ekki einhvern með því að halda honum utan við vinafund. Ef einhver vandamál koma upp er best að ræða beint við við- komandi.
Fiskar imt (19. feb. - 20. mars) I upphafi skyidi endirinn skoða. Gættu þess að ganga ekki svo harkalega fram að þú eigir á hættu að fá allt saman í hausinn aftur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki bvecrðar á traustum
Hjól og línur
flugustangir
Utsölustaðir:
Útilíf
Veiðibúð Lalla
Vesturröst
NYJAR VORUR
• Leðurjakkar
(rauðir & svartir)
• Leðurkápur (þrjár síddir)
• Pelskápur
• Ullarkápur
• Úlpur
• Stuttkápur
• Alpahúfur (2 stærðir)
• Hattar
\c#Hl/ISID
Mörkinni 6, sími 588 5518
Tvær síddir
Opið laugardag frá kl. 10*16
Landlæknisembættið
Að lifa með astma
Astmi er algengur sjúkdómur og
reynist alvarlegur þegar meðferð
er ófullnægjandi.
Helstu einkenni astma eru mæði, surg
fyrir brjósti og hósti. Þau geta komið í
köstum jafnvel að næturlagi. Leitaðu
læknis ef þú verður þeirra var.
• Forðist reykingar og hvers kyns mengun.
• Forðist þekkta ofnæmisvalda og kynntu þér
hvar rykmaurar leynast á þínu heimili.
• Farðu gætilega eftir öndunarfærasýkingar
því astmaköst koma þá gjarnan í kjölfarið.
• Farðu árlega í inflúensubólusetningu.
• Kynntu þér rétta notkun innúðalyfja og láttu
meta árangur þinn þar að lútandi.
Regluleg mæling öndunargetu
metur best árangur astmameðferðar.
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
I