Morgunblaðið - 31.10.2000, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Það fór vel á með Þórunni og sínum nýfundnu nánustu á Islandi, þar sem þau stiiltu sér upp fyrir mynda-
töku, framan við Húsið á Eyrarbakka.
Fann föðurættina
Netið er til margra hluta nytsamlegt. Að því
komst Þorunn Stephanie Nichol Zitner frá
Washington Island í Bandaríkjunum þegar
hún fann ættingja sína á Eyrarbakka með
- ■ ■ * —
hjálp þess. Linda Asdísardóttir segir frá.
ÞAÐ VAR merkisdagur fyrir Þórunni
Stephanie Nichol Zitner þegai’ hún
aeimsótti Húsið á Eyrarbakka þann
17. sept. Ekki var nóg með að hún
.’æri að líta augum heimaslóðir for-
f'eðra sinna heldur var hún einnig að
fara að hitta ættingja sína úr foðurætt
i fyrsta skiptið.
Ættfræði á Netinu
Þórunn er fædd og uppalin í vita á
syjunni Washington Island í Wiscons-
in-fylki í Bandaríkjunum og voru báð-
ir foreldrar hennar íslenskir. Á eyj-
unni er ýmislegt sem minnir á ísland,
s.s. götuheiti, nöfn á verslunum og
jafnvel ferjan milli meginlands og eyj-
unnar ber nafnið „Eyrarbakki". Sem
krakki þrætti Þórunn oft við landa
sína um framburðinn á nafninu Eyr-
arbakki og var hún hin ánægðasta að
vita við komuna til Islands, að hún
hafði haft rétt fyrir sér.
Hún þekkir móðurætt sína en hefur
aldrei tekist að hafa upp á föðurætt-
inni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Það varð því svolítið sérstakur að-
dragandi að ættarmótinu i Húsinu.
á Netinu
Af tilviljun rekst Anna Kr. Péturs-
dóttir, ættfræðigrúskari á Stokkseyri,
á bréf á Netinu frá Barböru, dóttur
Þórunnar. Þetta var hjálparbeiðni til
þeirra sem hugsanlega vissu eitthvað
um fóðurættina. Bréfíð höfðaði sterkt
til Önnu svo hún ákvað að svara því.
Hún var svo ekki lengi að rekja ættir
Þórunnar í gögnum sínum en lét ekki
staðar numið heldur hafði líka uppi á
stórum hóp nánustu ættingja hennar.
Ásgrímur Adolfsson, faðir Þórunn-
ar, var sonur Kristins Adolphs Adolfs-
sonar, bónda og formanns á Stokks-
eyri, og Ingveldar Ásgrímsdóttur.
Þegar hann var 10 daga gamall dó
móðir hans og honum var því komið í
fóstur hjá Bárði Nikulássyni, bónda í
Eyvakoti á Eyrarbakka, og konu hans
Hallfríði Oddsdóttur. Þau flytja svo
með hann með sér til Vesturheims
1887.
Forfeður Ásgríms í föðurætt báru
nafnið Petersen og var forfaðir þeirra
Diðrik Petersen faktor í Húsinu á
seinni hluta 18. aldar. Önnu fannst því
tilvalið ef Þórunn gæti hitt ættingja
sína á þeim sama stað og með leyfi
safnstjóra varð það að veruleika.
E R B O X
% 5 ára
afmælisvika
til sunnudagsins
5. nóvember
20% afsláttur
af öllum vörum
Sendum í
póstkröfu
KNICKERBOX
Laugavegi 62
Sími 551 5444
KNICKERBOX
Kringlunni
Sími 533 4555
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 75
Þórunn ræðir við Önnu Kr.
Pétursdóttur.
Eftirminnilegt afmæli
Þannig atvikaðist það að Þórunn
var stödd með Barböru dóttur sinni
og manni hennar þennan sólríka
haustdag á Eyi-arbakka. Þetta var
daginn fyrir 90 ára afmæli hennar en
frískleikinn skein af henni. Það þurfti
hvorki að styðja hana yfir háa þrösk-
uldi né upp brakandi stiga.
Fyrr en varði dreif fólkið að og
skiptist á myndum og sagði sögur.
Þórunn tók á móti öllum með hlýju og
gleði og var hrókur alls fagnaðar. Og
hver veit nema andi Petersen hafi ver-
ið til staðar. Safnið bauð upp á kaffi og
meðlæti og úti beið Erlingur Þór Guð-
jónsson á rútunni sinni. Hann bauð
öllum hópnum í skoðunarferð um
Eyrarbakka og Stokkseyri svo þau
gætu litið augum staðina sem ættingj-
ar þeirra bjuggu á. Að lokum var svo
stoppað við kirkjugarðinn á Stokks-
eyri og leiðis forfeðranna vitjað.
Flestir kvöddust þai’na, degi var tekið
að halla og vindurinn orðinn kaldur.
Þórunn hafði ákveðið með löngum
fyrirvara að halda upp á stórafmælið
sitt á Islandi en grunaði ekki þá að
hún fengi svona stórkostlega afmælis-
gjöf. Hún hélt svo heim til Bandaríkj-
anna nokkrum dögum seinna, afai’ sæl
með það sem spratt upp úr einu litlu
bréfi á Netinu.
VISA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA (slandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Amerísku heilsudýmirnar
Skipholti 35 * Símí: 588-1955
Par sem
mwísyjií'jtnall.h}
Glœsibœ & HafnarfirSi
588-5970 565-5970
gceðaqieraugu
kosta minna
www.mbl.is
Opið hús
Ertu stopp í prjónaskapnum?
Vantar þig aðstoð?
Einnig verður sýning á vörum frá Hanne
Falkenberg í kvöld frá kl. 18.30—21.00.
twwgðio'
v Skóls
Póstsendum
Skólavörðustíg 12, sími 561 6111