Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Kennaradeilan
Arangurs-
laus fundur
ÞÓRIR Einarsson i-íkissáttasemjari
segir að enn hafi ekkert þokast í
samkomulagsátt í kjaradeilu fram-
haldsskólakennara og ríkisins. Ekki
hefur verið boðaður fundur í deilunni
um helgina, en Þórir sagðist ætla að
heyra hljóðið í samningsaðilum í dag
og meta í framhaldinu hvort ástæða
væri til að boða þá á fund.
Þórir sagði að á samningafundum
í þessari viku hefðu samningsaðilar
farið yfir alla hugsanlega kosti til
lausnar deilunni. Þessi vinna hefði
enn sem komið er ekki leitt til lausn-
ar. Hann sagðist þó ekki telja að
vinna síðustu vikna hefði verið
árangurslaus. Aðilar hefðu rætt um
alla þætti nýs launakerfis, sem báðir
aðilar hefðu áhuga á að taka upp. Af-
staða manna hefði skýrst og búið
væri að afmarka ágreiningsefnin.
Kennarar fjalla um stöðuna í
samningaviðræðunum á heimasíðu
sinni. „í þessari viku virtist sem
skriður væri að komast á samninga-
viðræður. Eftir að viðræður höfðu
legið niðri í fjóra daga óskaði við-
ræðunefnd FF (Félags framhalds-
skólakennara) eftir því að samnings-
aðilar reyndu að finna nýjan flöt á
viðræðum til að koma þeim í gang á
ný. Viðræðunefnd FF lagði til að að-
ilar reyndu í sameiningu að komast
að því hvaða áhrif ný aðalnámskrá og
framhaldsskólalögin ættu að hafa á
launakjör og önnur starfskjör hjá
framhaldsskólakennurum í nýju
launakerfi. Ákveðnar vonir glæddust
um að þessi vinna myndi skila
árangri en í gær [í fyrradag] varð
ljóst að svo reyndist ekki vera.“
----------------
LEIÐRÉTT
Blað Samtaka
hljómplöt.ufranileiðenda
Rangt var
farið með nafn
útgefanda
Plötutíðinda,
sem íylgdu
Morgunblaðinu
í gær. Blaðið er
frá Samtökum
hljómplötu-
framleiðenda
og er beðist vel-
virðingar á því.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Heyrúllur
áBSÍ
BtJIÐ er að koma fyrir nokkrum
rúliuböggum á húsi Umferðar-
miðstöðvarinnar í Vatnsmýrinni í
Reykjavík. Að sögn Odds Einars-
sonar framkvæmdastjúra er þetta
liður í endurbótum og breytingum
á húsinu. Menn hefðu að undan-
förnu verið að hressa upp á útlit
þess, aðallega þó innandyra. Oddur
sagði að hugmyndin væri að setja
áletrun á rúllurnar, en hver hún
yrði væri ekki endanlega ákveðið.
Oddur sagði að sér skildist að
bændur væru vel birgir af heyjum
og því hefðu rúllurnar fengist á
góðu verði. Hann sagði hugsanlegt
að Umferðarmiðstöðin myndi selja
þær aftur í vor þegar færi að
þrengjast um hjá einhverjum
bændum með fóður. Þetta kynni
því að reynast arðbær fjárfesting.
Hann sagði annars ekki ákveðið
hve lengi rúllurnar yrðu á Umferð-
armiðstöðinni. Þær hefðu hins veg-
ar vakið mikla athygli enda væri
það einmitt tilgangurinn með til-
tækinu.
Tillaga áhugahóps gegn spilafíkn
Spilakössum verði
lokað á aðventunni
ÁHUGAHÓPUR gegn spilafíkn hef-
ur sent þeim sem reka söfnunar-
kassa og happdrættisvélar bréf þar
sem mælst er til þess að kössunum
verði lokað fram til jóla í þeim til-
gangi að stuðla að „bærilegra jóla-
haldi fyrir þá sem hafa orðið spila-
fíkninni að bráð“, eins og segir í
bréfinu.
Svanhildur Kaaber, fulltrúi
Áhugahóps gegn spilafíkn, segir að
aðventan sé sá árstími sem oft verði
erfiður fólki sem eigi í fjárhags-
vanda. Útgjöldin séu meiri en á öðr-
um árstíma og andlegt ástand þeirra
sem veikir séu fyrir gjarnan verra en
ella og segir hún að þetta eigi ekki
síst við um einstaklinga og fjölskyld-
ur þar sem tekjum heimilisins hefur
verið ráðstafað í spilakössum og
happdrættisvélum.
Svanhildur segist vonast til þess
að tekið verði tillit til þessarar beiðni
Áhugahóps gegn spilafíkn, en að ýtr-
ustu kröfur hans séu þær að spila-
kassar verði aflagðir með öllu. Hún
bendir á að spilafíkn sé mjög yfir-
Morgunblaðið/Jim Smart
Svanhildur Kaaber og Bjarki Már Magnússon, fulltrúar Áhugahóps
gegn spilafikn.
gripsmikið og alvarlegt vandamál
hér á landi og að það tengist mjög
víða inn í þjóðfélagið. Talið sé að um
12.000 íslendingar séu haldnir spila-
fíkn og eins sé um verulegar fjár-
hæðir að ræða, en fram hafi komið í
fyrirspurn á Alþingi að árleg velta
fjárhættuspila hér á landi væri um
tveir milljarðar króna og þar af sé
hagnaður af þeim um milljarður.
Island verður aðili að
Schengen 25. mars
FORMLEG ákvörðun hefur verið
tekin um það að öll Norðurlöndin
verði aðilar að Schengen-svæðinu
frá og með 25. mars á næsta ári.
Benedikt
Oddsson
Vilborg
Jónsdóttir
Jón Rúnar
Árnason
Létust í umferðarslysi
HJÓNIN, sem létust í umferðarslysi
á Reykjanesbraut á fimmtudaginn,
hétu Jón Rúnar Árnason, fæddur 19.
mars 1951, og Vilborg Jónsdóttir,
fædd 28. ágúst 1955. Þau voru til
heimilis á Túngötu 17 í Keflavík. Þau
láta eftir sig þrjá uppkomna syni.
Maður, sem lést í slysinu, hét
Benedikt Oddsson, fæddur 8. maí
1970, til heimilis á Greniteig 36 í
Keflavík. Benedikt var einhleypur
en lætur eftir sig fjögurra ára gamla
dóttur, sem var með honum í bílnum
þegar áreksturinn varð. Stúlkan,
sem hlaut höfuðmeiðsl, er á gjör-
gæsludeild Landspítalans í Fossvogi
og að sögn læknis er ástand hennar
stöðugt.
Ekki er vitað nákvæmlega hver
voru tildrög slyssins, sem varð síð-
degis á fimmtudaginn við Strandar-
heiði, en rannsóknardeild lög-
reglunnar í Keflavík er að rannsaka
málið.
Þetta kom fram í samtali Morgun-
blaðsins við Björn Friðfinnsson,
ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu, en hann sótti fund Scheng-
en-ríkjanna í Brussel í gær ásamt
Sólveigu Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra.
Sólveig sagði á fundinum að um
tímamót væri að ræða fyrir Norður-
löndin. Akvörðunin felur í sér að
persónueftirlit á landamærum
Schengen-ríkjanna fimmtán verður
fellt niður og fólk þarf því ekki að
fara í gegnum vegabréfaskoðun sé
það að ferðast á milli þeirra, fólk
þarf samt að hafa með sér einhver
persónuskilríki. Bjöm sagði að fyr-
irkomulag tollaeftirlits yrði áfram
óbreytt og að lögð yrði mikil áhersla
á öfluga lögreglusamvinnu milli
ríkjanna. Hann sagði að sett yrði
upp öflugt upplýsingakerfi hérlend-
is sem myndi nýtast sérstaklega í
lögreglusamvinnunni og tollaeftir-
liti.
Schengen-samningurinn mun
ekki koma til framkvæmda á Norð-
urlöndunum fyrr en að loknum út-
tektum á virkni Schengen-upplýs-
ingakerfisins í ríkjunum fimm og
lokaúttekt á flughöfnum, sem fyrir-
hugaðar eru í janúar og febrúar á
næsta ári.
Rætt um samræmingu
refsinga vegna smygls
Með þessari stækkun Schengen-
svæðisins eru þátttökuríkin orðin
fimmtán, þ.e.: Finnland, Danmörk,
Svíþjóð, Noregur, ísland, Austur-
ríki, Belgía, Frakkland, Grikkland,
Holland, Ítalía, Lúxemborg, Port-
úgal, Spánn og Þýskaland.
Á fundinum í gær var einnig rætt
um drög að reglugerð sem inniheld-
ur lista yfir þau ríki sem njóta vega-
bréfsáritunarfrelsis á Sehengen-
svæðinu og lista yfir þau ríki sem
eru áritunarskyld. Rætt var um
samræmingu refsinga vegna smygls
á ólöglegum innflytjendum og sam-
ræmingu sekta flutningsaðila sem
flytja fólk sem ekki hefur undir
höndum fullnægjandi ferðaskilríki.
-----------------------------
Gengi
deCODE
hækkaði
um 27,8%
GENGI deCODE, móðurfélags ís-
lenskrar erfðagreiningar, hækkaði í
gær á bandaríska Nasdaq-verð-
bréfamarkaðnum eftir mikla lækkun
undanfarna daga. Gengið hækkaði
um 27,8% í gær en í fyrradag lækk-
aði gengið um 18,4%. Gengið var við
lokun markaðarins í gær skráð 13,5
dollarar. Nasdaq-hlutabréfavísitalan
hækkaði um 47,36 stig í dag eða 1,8%
og endaði í 2.645,29 stigum. Dow
Jones lækkaði um 40,95 stig eða
0,39% og endaði í 10.373,54 stigum.
öð í dag
sfejjjn
LESBÖ
■LAÐSINS •
ALAUGARDOGUM
Með blaðinu í dag
fylgir blaðið Jólin
2000 þar sem er
að finna fjölda
uppskrifta og hug-
mynda að jóla-
skreytingum.