Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
'
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Á svona dögum er gainan að vera fslendingur. Ekki satt?
Það var mikið sungið í 10 ára afmælinu í gær og allir fengu njrja, rauða boli eins og sjá má.
N áttúruleikskólinn
Krakkakot 10 ára
Bessastaðahreppur
NÁTTÚRULEIKSKÓLINN
Krakkakot í Bessastaða-
hreppi átti merkisafmæli í
gær og var haldið upp á
þann atburð með tilheyr-
andi veisluhöldum þar á
bæ.
„Það eru 10 ár síðan við
fluttum í þetta húsnæði,"
sagði Erla Thomsen í sam-
tali við Morgunblaðið í
gær, „og við héldum m.a.
upp á það með lokatón-
leikum handa foreldrum,
en börnin hafa verið í
tónlist hjá okkur í vetur.
Það var mikið sungið og
allir fengu nýja, rauða boli
merkta leikskólanum."
Þessi leikskóli mun vera
sá eini sinnar tegundar á
Islandi, að því er Erla tel-
ur. Hann er jafnframt eini
leikskólinn á svæðinu og
þar fara 108 börn í gegn
yfir daginn. „Starf okkar
byggist mikið á náttúrunni
og nýtingu hennar,“ sagði
Erla, „og sérkenni okkar
er dýrahald. Við erum
með hænsnabúskap, kanín-
ur, naggrísi, hamstra,
salamöndru, frosk, tvo
páfagauka, og einnig salt-
vatnsbúr með kröbbum,
sprettfiski og öðru úr haf-
inu. Börnin koma gjarnan
með dýr og hluti sem þau
hafa rekist á í fjörunni og
setja í búrið. Þetta er sum-
sé dálítið öðruvísi en ger-
ist annars staðar.“
Að sögn Erlu var mjög
notaleg stemmning á af-
mælisdaginn, opið hús og
margir komu og allir voru
glaðir. Og auðvitað var
standandi veisluborð frá
morgni til kvölds, mjólk
handa börnunum, en kaffi
handa foreldrum. Og allir
fengu að sjálfsögðu tertu.
Björn G. Bjornsson er með hugmynd að margþættri sjávarútvegssýningu á Miðbakkanum í Reykjavík
Yrði lyftistöng fyrir
mannlífið í gamla bænum
Midborg
BJÖRN G. Björnsson sýn-
ingahönnuður hefur í nokk-
ur ár verið með hugmyndir
um að setja upp á Miðbakk-
anum í Reykjavík sýningu
sem undirstrikar mikilvægi
sjávarútvegs fyrir afkomu
íslendinga. Svipar hug-
myndum hans til hugmynda
Ásgeirs Bolla Kristinssonar
kaupmanns í Reykjavík, en
eins og greint var hér frá í
byrjun nóvember hefur
arkitektastofan Bernard
Engle, Architects & Plann-
ers að beiðni og á kostnað
Ásgeirs Bolla mótað tillögu
að menningar- og listahús-
um norðanmegin Tryggva-
götu. I henni er m.a. gert
ráð fyrir listmuna- og bóka-
verslunum, ýmsum sýning-
arbásum og vinnuaðstöðu
fyrir listamenn í tengslum
við Listasafn Reykjavíkur.
Hugmynd Björns miðar þó
einkum að kynningu á öllu
sem tengist hafinu í sögu ís-
lendinga. Af þessu tilefni
hafði Morgunblaðið sam-
band við Björn og spurði
hann nánar út í þetta mál.
„Ég hef unnið við leik-
mynda- og sýningahönnun í
mörg ár,“ sagði hann. „Og
þannig æxlaðist, að ég fór
að vinna hjá Þjóðminjasafn-
inu fyrir 7-8 árum, í
ákveðnum verkefnum, m.a. í
Sjóminjasafninu í Hafnar-
firði, við uppsetningu ým-
issa sýninga. Á þeim tíma
kviknaði hjá mér áhugi á að
segja einhvers staðar sögu
sjávarútvegs okkar og fisk-
veiða. Síðan hef ég dálítið
verið að tuða um þetta, enda
orðið mér baráttumál að það
sé við Reykjavíkurhöfn ein-
hver sýning um sögu sjó-
sóknar og siglinga og lífríkið
kringum landið.“
Björn hefur kynnt þessa
hugmynd sína víða, m.a. í
blöðum, á ráðstefnum og í
útvarpi.
„Sumar hugmyndir eru
alltaf á sveimi með jöfnu
millibili, menn sjá svona í
útlöndum og svo allt í einu
verða þær tímabærar og
einhver grípur þær,“ sagði
Björn. „Og það sannaðist
hér. Bolli var alveg á sömu
nótum og ég, en hugsaði
bara stærra. Hugmynd hans
sneri að borgarskipulaginu
en mín að lítilli sýningu ein-
hversstaðar. En við erum
núna í sambandi og höfum
verið um tíma, ég hef sent
honum efni mitt og hann
mér aftur sitt.“
ísland og hafið
Björn var beðinn um að
útskýra nánar í hverju þess-
ar tillögur væru fólgnar.
„Jú, sjáðu til. íslendingar
hafa lifað á sjósókn í 1100 ár
en samt er hér engin heild-
arsýning sem gerir skil
þessum meginatvinnuvegi
þjóðarinnar. Það er löngu
tímabært að koma á fót
myndarlegri sýningu í
Reykjavík sem undirstrikar
mikilvægi sjávarútvegs fyrir
afkomu okkar, bæði gagn-
vart okkur sjálfum, skóla-
börnum og ferðamönnum
sem hingað koma.
Mér finnst eðlilegt, að
Bjöm G. Björnsson
Reykjavíkurborg og ríki, op-
inberar stofnanir sem tengj-
ast sjávarútvegi, aðilar í út-
gerð, útflutningi, ferða-
þjónustu og tengdum
greinum stofni með sér fé-
lag um að koma á fót sýn-
ingarmiðstöð sjávarútvegs-
ins við Reykjavíkurhöfn,
miðstöð sem við getum kall-
að „ísland og hafið“. Slík
miðstöð mun höfða til breiðs
hóps og vera allt í senn
sjóminjasafn og sögusýning
um siglingar og sjósókn ís-
lendinga, lifandi fiskasafn,
fróðleiksnáma um lífríki
hafsins, mengun, verndun
og nýtingu fiskistofna, upp-
lýsingamiðstöð um nýjungar
í sjávarútvegi, sjávarfang og
íslenskar framleiðsluvörur,
sjávarréttamiðstöð með
góðu veitingahúsi, aðdrátt-
arafl fyrir ferðamenn, fund-
araðstaða og margt fleira.“
Og Björn hélt áfram:
„ímyndum okkur að við
séum komin niður að höfn á
góðum degi til að skoða „ís-
land og hafið“. Á athafna-
svæði utanhúss er lítið síld-
arplan, þar sem stelpur
salta síld á sunnudögum og
syngja sjómannalög, hjallur
með grásleppu, skreið á
trönum og kall að dytta að
trillubáti og taka í nefið.
Hann býður gestum upp á
dorgferðir um höfnina þegar
vel viðrar og hver veit nema
hann spili á harmonikku.
Víkingaskip bíður við
bryggju, bátasmiður sinnir
viðgerðum, hér er fiskbúð
þar sem bæjarbúar kaupa
sér í soðið og umhverfið
minnir á sjávarplássið
Reykjavík.
Innandyra er sýning sem
rekur sögu siglinga og veiða
í gegnum tíðina; um sigling-
ar norrænna manna, fund
íslands og landafundi ís-
lendinga í vestri, um sjó-
sókn á opnum bátum á ára-
bátaöld, veiðarfæri og
fiskverkun, um skreiðarsölu
á miðöldum, skútuöld og
saltfisk um aldamót, um
togarabyltingu, síldarævin-
týri og hvalveiðar, um sögu
fiskverndar, fiskifræði og
hafrannsóknir og sögu
þorskastríða, sem hófust á
15. öld og eru víst orðin tíu,
eftir því sem Björn Þor-
steinsson heldur fram.
Framsetningin er nútíma-
leg, með lifandi myndum,
kortum, textum og vel völd-
um munum, skýringartextar
á íslensku og erlendum mál-
um og margmiðlunarefni
fyrir unga fólkið.“
Lifandi fískasafn
„Kjarni þessarar mið-
stöðvar og helsta aðdráttar-
afl er glæsileg sýning um
lífríki hafsins umhverfis ís-
land og þær skepnur sem
þar lifa - og við lifum á. Lif-
andi fiskasöfn eru vinsæl
um allan heim og hér er loks
komið veglegt íslenskt sjó-
dýrasafn þar sem undir-
staða þjóðlífsins, þorskur-
inn, syndir um. Hér eru
einnig uppstoppaðir fiskar,
safn skelja, kuðunga og ann-
arra sjávardýra og stærsta
skepna jarðarinnar, steypi-
reyðurin, teygir úr sér á 30
metrum. Hér má fræðast
um ástand fiskistofna,
mengun sjávar, umhverfis-
mál og fleira sem snertir
„ísland og hafið“ á lifandi
og áhrifaríkan hátt.
Þetta er líka sjávar-
afurðasýning með áherslu á
þann fjölbreytta varning
sem Islendingar framleiða
úr sjávarfangi. Hér má
fræðast um mismunandi að-
ferðir við fiskverkun; þurrk-
un, söltun, bræðslu, fryst-
ingu, niðurlagningu og hvað
eina, greint er frá sölu og
dreifingu sjávarafurða fyrr |
og nú, umbúðir sýndar o.fl.
allt í samvinnu við fyrirtæki
qg samtök sjávarútvegsins. 1
I tengslum við sjávarafurða-
deildina er veitingastaður
með útsýn yfir bryggjurnar
og færustu kokkar bjóða
upp á úrval íslenskra sjávar-
rétta. Hér má halda fundi
um málefni sjávarútvegsins
og mannfagnaði af ýmsum
toga í áhrifamiklu og spenn- k
andi umhverfi."
Sé vel að öllu staðið í
slíkri miðstöð sem hér hefur
verið lýst, þ.e.a.s. með
fræðilegum grunni, sýning-
um, fiskasafni, veitingastað,
minjagripaverslun og að-
stöðu til funda, kynninga og
sérsýninga, má gera ráð fyr-
ir að „ísland og hafið“ dragi
til sín drjúgan meirihluta
þeirra erlendu gesta sem
heimsækja landið á ári
hverju, kannski 100.000
manns, og þá eru heima-
menn og skólanemendur
ótaldir, sagði Björn. Og ef
einhver dugur er í íslend-
ingum ætti slík sjávarút-
vegsmiðstöð að vera svo ein-
stök og vel úr garði gerð að
menn legðu leið sína yfir
hafið langa leið gagngert til
að berja hana augum.
„Þetta mun verða lyfti-
stöng fyrir mannlífið í
gamla bænum, til skemmt-
unar og fróðleiks innlendum
og erlendum ferðamönnum
á sumrin, skólafólki yfir
vetrartímann og íslenskum
fjölskyldum á sunnudögum
árið um kring.
„Island og hafið“ er hug-
mynd sem hlýtur að verða
að veruleika fyrr eða síðar.
Hún snýst um að sýna aðal-
atvinnuvegi þjóðarinnar
þann sóma sem honum ber,“
sagði Björn að lokum.