Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján Miög gott skíða- færi í Hlíðarfjalli SKÍÐASVÆÐIÐ í Hlíðarfjalli við Akureyri er opið almenningi í dag laugardag og á morgun, sunnu- dag, frá ki. 10-16. Töluvert hefur snjóað 1 fjallinu síðustu daga og þar er nú mjög gott skíðafæri. Stólalyftan og lyfturnar í Hjalla- brekku og Hólabraut verða opnar í dag og þá er stefnt að því að opna lyftuna í Strýtu á morgun, sunnudag. Þá er einnig kjörin aðstaða fyrir skiðagöngufólk í HliðarQalIi. Þessi ungi skiða- brettamaður á myndinni fékk mjúka lendingu, þar sem hann var ásamt félögum sínum að stökkva fram af palli í nýfallinn snjóinn í vikunni. Félag háskólakennara á Akureyri Kennurum færð peninga- gjöf í verkfallssjóð Morgunblaðið/Kristján Ólafur Jakobsson formaður Félags háskólakennara á Akureyri og Elna Katrfn Jónsdóttir formaður Félags framhaldsskólakennara í verk- fallsmiðstöð kennara á Akureyri í gær. ÓLAFUR Jakobsson, varaformað- ur Félags háskólakennara á Akur- eyri, afhenti Elnu Katrínu Jóns- dóttur, formanni Félags framhaldsskólakennara, hálfa mil- ljón króna í verkfallssjóð í verk- fallsmiðstöð kennara á Akureyri í gærmorgun, en miðstöðin er í fé- lagsheimili Þórs, Hamri við Skarðshlíð. Ólafur sagði að fram hefði komið tillaga á félagsfundi um miðjan nóvember um að sýna kennurum í verkfalli táknrænan stuðning í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum. Kvaðst Ólafur hafa trú á því að stór þögull hóp- ur fólks hefði skilning á þeim skaða sem skólastarfi væri unninn með núverandi láglaunastefnu. Ólafur afhenti Elnu Katrínu féð með þeim orðum að óskandi væri að verkfallinu lyki sem allra fyrst. Elna Katrín sagði um ómetan- legan stuðning að ræða í þeirri hörðu og erfiðu kjaradeildu sem nú stæði yfir. Hún kvaðst afar þakklát fyrir framlagið og ekki sist þann stuðning og þá hugsum sem að baki lægi, það gæfi fram- laginu sérstakt gildi. Það að Fé- lag háskólakennara sýndi félögum sínum úr hópi framhaldsskóla- kennara stuðning á þessum tímum efldi með sér þá trú að kennarar væru ein stétt sem stæði saman. Plastprent tók við Ako-Plastos f gær Starfsfólkið lykilatriði í endurreisn fyrirtækisins SIGURÐUR Bragi Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Plastprents, átti fund með starfsfólki Ako- Plastos á Akureyri síðdegis í gær þar sem farið var yfir stöðu mála, en í vikunni var tilkynnt um kaup Plastprents á ríflega 85% hlut í Ako-Plastos. Plastprent tók við fyrirtækinu í gær, 1. desember. „Við fórum yfir stöðuna og þá möguleika sem fyrir hendi eru. Við vitum að staðan er erfið en ætlum að berjast við að koma fyrirtækinu á lagg- imar og vonum að það takist,“ sagði Sigurður Bragi. Hann sagði að til að byrja með yrði Ako- Plastos rekið sem sjálfstæð eining og þess vænst að tækist að rétta úr kútnum. Starfsfólkið er lykilatriðið Framtíðarstefna fyrirtækisins væri að draga úr yfirbyggingu og hagræða í rekstri. Sigurður Bragi sagði að sameinuð væru fyrirtækin betur í stakk búin að keppa við innflutning, en benti á að t.d. hollenskt fyrirtæki, sem þau hefðu mikið keppt við, væri eftir sameiningu íslensku fyrir- tækjanna tveggja enn tífalt stærra en það. „Helst þyrftum við að stækka enn meira, þetta er afar fjárfrekur rekstur, vélamar em dýrar og því mik- ilvægt að ná út úr þeim góðri nýtingu. Stórar ein- ingar í þessum iðnaði skipta því máli,“ sagði Sig- urður Bragi. Hann sagði starfsfólk fyrirtækisins lykilatriði þegar að því kæmi að ákvarða framtíð þess og ef vel gengi fyrir norðan ætti ekkert að standa í veg- inum fyrir því að flytja verkefni að sunnan norð- ur. „Við greindum starfsfólkinu frá því að þessi sameining fyrirtækjanna væri það besta í stöð- unni og vonum að vel takist til með að endurreisa félagið. Við væntum þess að í ljós komi að þessi eining fyrir norðan reynist hagkvæm," sagði hann. Ein stór og sterk eining er framtíðin Sigurður Bragi sagði ekki spurningu um hvort rekin yrðu eitt, tvö eða þrjú fyrirtæki í plastiðnaði á íslandi, heldur hvort yfirleitt yrði rekið slíkt fyrirtæki í landinu því samkeppnin við innflutn- ing væri afar hörð. Fyrirtækin tvö, Plastprent og Ako-Plastos, hefðu á síðustu tveimur til þremur ámm tapað um hálfum milljarði króna, „og það tekur tíma að vinna það upp á ný. Við þurfum að hugsa til framtíðar og þá sjáum við fyrir okkur eina stóra sterka einingu sem staðist gæti sam- keppni við innflutning,“ sagði Sigurður Bragi. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa síðustu daga farið yfir ýmis gögn Ako-Plastos og lauk þeirri vinnu síðdegis á fimmtudag og formlega tók Plastprent við fyrirtækinu í gær. Ljósin kveikt á Randerstrénu LJÓS verða kveikt á jólatrénu frá Randers, vinabæ Akureyrar í Dan- mörku, í dag kl. 15. Lúðrasveit Ak- ureyrar leikur og kór Akureyrar- kirkju syngur. Kristján Þór Júh'usson, bæjarstjóri Akureyrar, og Keld Huttel, forseti borgar- stjórnar í Randers, flytja ávörp. Ljósin verða tendmð kl. 15.50. Þá skemmta jólasveinar. Askorun um að ljúka kjaradeilu NEMENDUR og foreldrar fjöl- menntu á fund í Verkmenntaskólan- um á fimmtudagskvöld þar sem farið var yfir stöðuna í verkfalli framhalds- skólakennara. Á fundinum var sam- þykkt eftirfarandi ályktun: „Skorað er á samningsaðila að ljúka þessari kjaradeilu sem allra fyrst, þannig að báðir aðilar megi við una. Fundurinn krefst þess að réttur nemenda sé virt- ur og bendir á að námsferill og framtíð um 20 þúsund framhaldsskólanem- enda er í húfi.“ Slökun! StÖkunarolía vöðvaolía. unaðsolía, astareldur. SlhtttiHr á Blánwval, Grafarvogsapátefc. Heteuhúsið Kringkmni, HeSsuhúsið Skólavörðustig, Hdsuhúsið Smáranum, Heðsubúðin Hafnarfirði, KSppihúsið, Kópavogsblóm, Lyf og heSsa Austurstræti, Lyfja Lágmúla, Lyfja Laugavegi, Lyfja Kópavogi, LyQa Setber gi, Ly§a Garðabæ, Mál og menrtng Bankastraeti, Rammagerðin, SnyrtÉtnfan Ut Sttetoðir á laadsbffgðtatti: Akranes: Lyf og Heísa. Akureyri: Btómabarinn, BiómaSst, Býflugan og btómið, Heisuindn, Lyi og beflsa (Qerártorgi, Hafnarstraeti, Hrisalundi). Blönduós: Apótek Blöntkióss. Egilsstaðir: EgSsstaða Apótek. Eskifjörður: Lyfja. Grindavlk: Lyfja, Sóldðgg. Höfn: Hafnar Apótek. Hólmavlk: Lyfsalan. Húsavík:HúsavikurApótek. Hvolsvðllur:SnyrtistofanYlur. Heskaupstaður: Nesbaer. Reykjanesbcr: Islenskur markaður, Keflavfloir Apótek, Suðurnesja Apótek. Sauðárkrókur: fsold. Selfoss: ÁmesApótek. Siglufjörður: SiglufjarðarApótek. Stykkishólmur: Stykkishólms Apótek. Vestmannaeyjar: VestmannaeyjaApótsk. í^hrity^érbs tx/estxA-irr, náttrtrtr/eijat' xriyrfroörut' KIRKJU STARF AKUREYRARKIRKJA: Hádegis- tónleikar kl. 12 í dag, laugardag. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel kirkjunnar. Aðgangur ókeyp- is, súpa og bauð í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju eftir tónleika. Messa kl. 11, sr. Svavar A. Jóns- son. Sunnudagaskóli í Kjarnalundi á sama tíma. Fræðsla og hressing í Safnaðarheimili eftir messu. Sig- urður Kristinsson heimspekingur spjallar um auglýsingar, neyslu og börn. Hádegisverður á vægu verði. Aðventukvöld verður í kirkjunni kl. 20 á sunnudagskvöld. Fjölbreytt tónlistardagskrá, Barna- og ungl- ingakór Akureyrarkirkju, Félagar úr Æskulýðsfélagi kirkjunnar og hópur akureyrskra ungmenna koma fram. Ræðumaður verður Björn Jósef Arnviðarson sýslumað- ur. Biblíulestur kl. 20.30 á mánu- dagskvöld. Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag. Mömmumorgunn kl. 10 til 12 á miðvikudag, jólaföndur. Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12. Bænaefnum má koma til prest- anna. Léttur hádegisverður í Safn- aðarheimili á eftir. GLERÁRKIRKJA: Barnasam- vera kl. 11 á morgun, sunnudag. Foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum. Messa verður kl. 14 á morgun. Kirkjukaffi kven- félagsins Baldursbrár í safnaðarsal að messu lokinni. Kyrrðar- og til- beiðslustund í kirkjunni kl. 18 á þriðjudag. Hádegissamvera verður í kirkjunni kl. 12 til 13 á miðviku- dag, helgistund, fyrirbænir og sakramenti. Léttur hádegisverður í safnaðarsal á vægu verði. Opið hús fyrir mæður og börn kl. 10 til 12 á fimmtudag. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Brauðsbrotning kl. 20 í kvöld, laug- ardagskvöld. G. Theódór Birgisson safnaðarhirðir predikar. Sunnu- dagaskóli fjölskyldunnar á morgun, sunnudag, kl. 11.30. Allir aldurs- hópar fá fræðslu við sitt hæfi. Gustav Sörensen, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar í Elím í Ála- borg, predikar. Vakningasamkoma kl. 16.30 á sunnudag. Valdimar Lárus Júlíusson predikar. Á sama tíma verður samkoma fyrir 7-12 ára börn og einnig bamapössun fyrir 1-6 ára. Fjölbreytt lofgjörð- artónlist og fyrirbænaþjónusta. HRÍSEYJARPRESTAKALL: Sunnudagaskóli verður í Hríseyj- arkirkju kl. 11:00 á morgun, sunnu- dag. Aðventukvöld verður í kirkjunni kl. 20:00 um kvöldið. Helgistund verður í Kirkjugarði Hríseyjar og kveikt á leiðalýsing- unni laugardaginn 9. desember kl. 18:00. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag, kl. 18 og á morgun, sunnudag, kl. 11. Næsta fimmtu- dag, 7. desember, verður messa kl. 18, stórhátíð hins flekklausa getn- aðar Maríu meyjar. LAUGALANDSPRESTAKALL: Sunnudaginn 3. des. kl. 20:30 verð- ur athöfn í Munkaþverárkirkju þar sem afhjúpuð verður stytta af Mar- íu Guðsmóður eftir listakonuna Sólveigu Baldursdóttur. Við at- höfnina munu nokkrir kennarar og nemendur Tónlistarskóla Eyja- fjarðar syngja og leika. MÖÐRUVALLAKIRKJA: Að- ventukvöld verður annað kvöld, sunnudagskvöldið 3. desember, kl. 20:30. Helgileikur fermingarbarna og kirkjukórs í samstarfi við Leik- félag Hörgdæla undir stjórn Aðal- steins Bergdal. Kórsöngur, hljóð- færaleikur nemenda Tónlistarskóla Eyjaljarðar, Lúsíusöngur nemenda Þelamerkurskóla undir stjórn Guð- mundar Engilbertssonar og mikill almennur söngur. Ræðumaður verður Bernharð Haraldsson. Mætum öll og njótum sannrar jóla- stemmningar i húsi Guðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.