Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 37
Glerlist í
Galleríi
Reykjavík
GLERLISTAKONAN Ebba Júlí-
ana Lárusdóttir opnar sýningu sína í
Galleríi Reykjavík, í dag, laugardag.
Ebba hefur lagt stund á glerlist
frá árinu 1988 og verk hennar eru
aðallega unnin úr flotgleri.
Ebba lærði glerbræðslu hjá Chris
Ellis og glerblástur í Portland press
studio í Texas. Ebba Júlíana hefur
haldið einka- og samsýningar, hér
heima og erlendis, meðal annars tók
hún þátt í stórri samsýningu lista-
manna í Lúxemborg árið 1995.
Verk Ebbu prýða fjölmargar
stofnanir og má þar nefna Ráðherra-
bústaðinn í Reykjavík, Sparisjóð
Hafnarfjarðar í Garðabæ, Bæjar-
skrifstofur Garðabæjar og Miðskól-
ann í Stykkishólmi.
Sýningin stendur til 8. desember.
Opið kl. 13-18 virka daga, kl. 11-
17 laugard. og sunnud. kl. 14-17.
-----------------
John Krogh
sýnir í GUK
OPIÐ verður í sýningarstöðum GUK
á sunnudaginn milli klukkan 16 og 18
að staðartíma. Sýningarstaðimir eru:
Garður, Ártúni 3, Selfossi, Udhus -
Kirkebakken 1, DK-4320 Lejre, Dan-
mörku, Kuche - Callinstrasse 8,
D-30167 Hannover, Þýskalandi.
Nú stendur yfir sýning þar á verki
eftir danska listamanninn John
Krogh.
Sýningin er einnig opin á öðrum
tímum eftir samkomulagi og lýkur
sunnudaginn 17. desember.
A vefslóðinni http://www.simnet.-
is/guk er hægt að skoða myndir af
sýningum í GUK.
------*-+-4------
Vinnustofur í
Alafosskvos
opnar gestum
LISTAMENN í Álafosskvos ætla að
opna vinnustofur sínar fyrir almenn-
ingi í dag, laugardag, kl. 14-18.
Það eru þau Þóra Sigþórsdóttir,
Hildur Margrétardóttir, Helga Jó-
hannesdóttir, Björg Örfar og Tolli
myndlistarmaður sem munu sýna
verk sín og vera að störfum í Kvos-
inni. Listamenn hafa verið með vinnu-
stofur í Álafossi í um tíu ár. Yfirleitt
eru vinnustofur opnar eftir samkomu-
lagi við viðkomandi listamenn.
Þá verður sýning á verkum nem-
enda í Myndlistarskóla Ásdísar í Ála-
fosskvosinni og Ólafur Már mynd-
listarmaður sýnir verk sín í
Álafoss-föt bezt.
------++-*-------
Skartgripir og
málverk
SÝNING á verkum Hörpu Maríu
Gunnlaugsdóttur sem sýnir módel-
smíðaða skartgripi og Þóru Einars-
dóttur sem sýnir málverk máluð á
silki verður opnuð í Listaselinu,
Skólavörðustíg 17, í dag, laugardag.
Sýningin stendur í viku.
Opið virka daga kl. 12-18 og laug-
ardaga kl. 11-16.
------*-+-*------
Glerverk eftir Ebbu Júlíönu Lárusdúttur.
Utilistaverk og fræðslu-
stígur í Mosfellsbæ
FRÆÐSLUSTÍGUR verður opnað-
ur í Mosfellsbæ í dag kl. 14.
Stígurinn nær frá Stekkjarflöt í
Álafosskvos að Reykjalundi. Við
stíginn eru sjö skilti sem hafa að
geyma upplýsingar og fræðslu um
umhverfi og sögu þeirra staða sem
liggja þar meðfram. Útlitshönnuður
skiltanna er Ámi Tryggvason, en
hann bar sigur úr býtum í hönnunar-
samkeppni um gerð skilta sem at-
vinnu- og ferðamálanefnd stóð fyrir.
Bjarki Bjamason er höfundur texta.
Á Stekkjarflöt við Álafosskvos í
Mosfellsbæ verður einnig þennan
dag vígt útilistaverkið „Hús tímans -
hús skáldsins“ eftir Magnús Tómas-
son. Verkið varð hlutskarpast í sam-
keppni sem fram fór í fyrra um gerð
útilistaverks í Mosfellsbæ. Að mati
dómnefndar byggist verkið á merki
bæjarins í tvennum skilningi. Ann-
ars vegar stendur verkið á stöpli sem
er merki Mosfellsbæjar, en upp af
grunnfletinum rís hár tum úr málmi
sem minnir á gotneska boga. Hins
vegar hefur verkið vísun í verk
Halldórs Laxness, Hús skáldsins.
Kostunaraðilar verksins eru Lista-
og menningarsjóður Mosfellsbæjar,
Listskreytingasjóður ríkisins,
ÍSTAK og Atlanta.
Nýjar bækur
• ÚT er komin skáldsagan Morðið
ísjónvarpinu eftir Stellu Blómkvist.
í fréttatilkynningu segir: „ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur trúa
ekki sínum eigin augum. Er lands-
kunn þáttagerðarkona myrt í beinni
útsendingu? Hin gmnaða leitar
ásjár hjá lögfræðingi sem flækist í
mál sem tengjast bókmenntaheim-
inum, sjónvarpinu, nýbúum, kynlífs-
þrældómi og valdamönnum."
Utgefandi er Mál og menning.
Bókin er207bls. Kápuna hannaði
auglýsingastofan Næst. Leiðbein-
andi verð: 1.599 krónur.
Níi er aðventan að hefjast og liátíð ljóss og friðar á næsta leiti.
Komdn í heimsókn til Jóa Fel, hlnstaðu á lifandi jólatóna
ogbragðaðu ájólakræsingnnnm. Láttn jólasmáköknr, þýskt
stollen og enskar ávaxtaköknr koma þér f rétta jólaskapið.
Kleppsvegur 152