Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 26
-6 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIDSKIPTI
LÍ spáir 4,3% verð-
bólgu á næsta ári
LANDSBANKI íslands (LÍ) hefur
sent frá sér verðbólguspá þar sem
fram kemur að bankinn spáir 0,15%
breytingu á vísitölu neysluverðs milli
nóvember og desember. Gangi spáin
eftir hefur verðbólga verið 4,3% á
síðustu tólf mánuðum. Þá spáir
Landsbankinn því að verðbólga milli
áranna 1999 og 2000 verði um 5,1%
og innan ársins 2000 um 4,3%.
„Landsbankinn spáir að verðbólga
milli áranna 2000 og 2001 verði um
4,2% og innan ársins 2001 um 4,3%,“
segir í sérútgáfu bankans í gær um
/erðbólguspána.
Páll Eyjólfsson, sérfræðingur hjá
Landsbankanum, segir að í spánni sé
gert ráð fyrir lækkandi heims-
markaðsverði á olíu og hækkandi
evru. Einnig sé búist við að gengi
krónunnar hækki nokkuð og að
gengisvísitala hennar verði 117,5
stig í lok næsta árs. Þá segir Páll að
gert sé ráð fyrir að þenslu á fast-
eignamarkaði sé lokið, en húsnæðis-
liður skýri um 1,4% af verðbólgu
þessa árs.
Páll segist telja að útlitið fram-
undan í efnahagsmálum sé almennt
jákvætt, en bætir því við að I spánni
sé gert ráð fyrir hóflegum launa-
hækkunum og að miklar launahækk-
anir mundu breyta forsendum spár-
innar.
Eimskip kaupir
Pelican Cargo
EIMSKIP UK hefur fest kaup á öllu
hlutafé í flutningsmiðlunarfyrirtæk-
inu Pelican Cargo Ltd. Pelican Cargo
er staðsett í Crawley rétt sunnan
Gatwick-flugvallar og sérhæfir sig í
almennri flutningsmiðlun í flugfiutn-
ingum. Auk þess er viðskiptavinum
fyrirtækisins veittar heildarlausnir,
t.d. á sviði sjó- og landflutninga auk
heilfarmaflutninga í flugi.
Pelican Cargo var stofnað árið
1988. Félagið hefur um árabil verið
samstarfsaðili TVG Zimsen í flug-
flutningum og bjóða félögin daglega
flugflutninga milli Bretlands og Is-
lands. Auk íslands eru mikilvægustu
viðskiptamarkaðir félagsins í Afríku,
Ástralíu og við Miðjarðarhafið. Fimm
starfsmenn starfa nú hjá Pelican
Cargo og er framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins Martin D. Thompson. I til-
kynningu frá Eimskip segir að með
kaupunum á Pelican Cargo sé
Eimskip að styrkja enn frekar áform
félagsins um aukna þátttöku í flug-
flutningum en fyrir á Eimskip flutn-
ingsmiðlunarfyrirtækið Malenstein
Air á Schiphol-flugvelli í Amsterdam.
Eftir kaupin á Pelican Cargo starfa
rúmlega 80 manns hjá Eimskip UK
og dótturfélögum þess á fjórum
starfsstöðvum í Englandi. Eimskip
UK rekur eigin skrifstofur í Imming-
ham og Felixstowe, auk akstursfyrir-
tækisins East Trans Ltd. í Imming-
ham og Pelican Cargo Ltd. í Crawley.
Framkvæmdastjóri Eimskip UK er
Garðar Jóhannsson.
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
Hreinn Jakobsson, forstjóri Skýrr, skrifar rafrænt undir samninginn. Jóhann Krisfjánsson fylgist með.
Tímamótasamningur fyrir
Skýrr og íslenskt netsamfélag
SKYRR hf. hefur samið við Veri-
Sign en VeriSign er leiðandi fyrir-
tæki í þróun og uppbyggingu ör-
yggislausna fyrir Netið og rafræn
viðskipti og almenn samskipti. í til-
kynningu frá Skýrr segir að lausnir
VeriSign séu viðurkenndar um all-
an heim og séu meðal annars notað-
ar af netbönkum, vefverslunum og
fleirum sem senda þurfi viðkvæmar
upplýsingar á rafrænu formi.
Með samningnum, sem opnar
Skýrr aðild að Alþjóðlegu neti Veri-
Sign, fær Skýrr nú umboð til að
selja og veita þjónustu fyrir lausnir
VeriSign sem er stærsta fyrirtæki í
heimi á sínu sviði. Samningurinn
gefur Skýrr möguleika á að gefa út
rafræn skírteini og opinberar
lyklalausnir fyrir fyrirtæki,
stjórnsýslu og opinberar stofnanir.
Lausnirnar iniða að því að gera öll
samskipti örugg, hvort sem er milli
fólks, vefþjóna, eldveggja eða
vefmiðlara. Um leið er uppruni
gagna tryggður með áreiðanlegum
hætti og það sama á við um rekjan-
leika gagna, heilanleika gagna og
dulritun gagna. Rafræn skírteini
byggjast á PKI lausnarkerfinu og
eru m.a. notuð til að tryggja örugg
viðskipti á Netinu. Rafræn skfrteini
nýtast sem rafræn persónuskilríki
sem auðkennir þá sem þau nota.
Þannig nýtast skírteinin við raf-
ræna undirritun, þar sem notand-
inn getur með öruggum hætti sagt,
hver hann er. Rafrænu ski'rteinin er
hægt að nota beint úr tölvu not-
anda, setja á Snjallkort eða í far-
síma, sem gefur notendum mögu-
leika á að nota skírteinið hvar sem
þess er óskað.
Umboðssvæði Skýrr er ísland,
Færeyjar og Grænland og mun
Skýrr þjóna viðskiptavinum sínum
á þeirra eigin tungumáli og gjald-
eyri.
Hraðfrystistöð Þórshafnar
Eignir seldar til
að lækka skuldir
FJÁRHAGSSTAÐA Hraðfrysti-
stöðvai- Þórshafnar (HÞ) hefur að
sögn Finnboga Jónssonar, stjómar-
formanns félagsins, verið erfið og hef-
ur það orðið til þess að stjórn félags-
ins tók nýlega ákvörðun um sölu
eigna tO að minnka skuldir. Ákvörðun
var tekin um að selja eignir fyrir að
minnsta kosti hálfan milljarð króna
og hefur kvóti verið seldur upp í um
helming þeirrar upphæðar. Þá hefur
II
www.microtouch.com
SNERTISKJÁIR
IDNABARTÆKNI ehf.
Þverhoiti 15A, sími 562 7127
frystitogarinn Stakfell ÞH verið sett-
ur á sölu og er ráðgert að fá hluta af
því sem upp á vantar með sölu hans.
Finnbogi segir að einnig hafi verið
ákveðið að leggja Neptúnusi ÞH, sem
hefur ásamt Júpiter ÞH stundað veið-
ar á uppsjávarfiski. Heimildir til veiða
uppsjávarfisks séu ekki lengur nægar
til að haldið sé úti tveimur skipum í
fullum rekstri, en í stað útgerðar
Neptúnusar hafi verið gerður sam-
starfssamningur við útgerð skuttog-
arans Bjargar Jónsdóttur ÞH á
Húsavík. Sá samningur gangi út á að
Björg Jónsdóttir muni leggja upp á
Þórshöfn en fá veiðiheimildir í staðinn
frá HÞ.
Þessa dagana er að sögn Finnboga
verið að ganga frá afhendingu á
kúfisksskipi, Fossá ÞH, sem verið er
að smíða í Kína. Áætlað er að það
komi til landsins upp úr miðjum jan-
úar og þá er stefnt að því að kúfisks-
veiðar hefjist á ný hjá félaginu.
Ellingsen
og Sandfell
sameinast
STJÓRNIR fyrirtækjanna Elling-
sen ehf. og Sandfells hf. hafa ákveðið
að sameina fyrirtækin frá og með
gærdeginum undir heitinu Elling-
sen-Sandfell ehf. Bæði fyrirtækin
hafa stundað sölustarfsemi á útgerð-
arvörum og ýmsum rekstrarvörum
til sjávai-útvegs til fjölda ára. Elling-
sen var stofnað árið 1916 og Sandfell
árið 1964.
I tilkynningu um sameininguna
segir að áætlanir geri ráð fyrir að
samlegðaráhrifa af sameiningunni
fari að gæta strax á næsta ári og að
velta fyrirtækisins verði rúmar 500
milljónir á næsta ári. Markmiðið sé
að bjóða upp á breiða vörulínu og öfl-
uga þjónustu við sjávarútveginn með
stai-fsstöðvar í Reykjavík og á ísa-
firði, auk þess að stunda verslunar-
rekstur að Grandagarði þar sem
verslun Ellingsen er til húsa.
Aðaleigandi hins sameinaða fyrir-
tækis er Olíuverzlun íslands hf. og
verður Bjai-ni Th. Bjarnason fram-
kvæmdastjóri þess.
atúi
§i§swm ,
-eJa/tré á/' e/f//1 á/1
Síðustu ár hejur skátahreyfingin seltsígræn
eðaltré, í hœsta gæðqflokki ogprýðaþau nú
mörghundruð íslensk heimili
► 10 ára abyrgð
► 12 stœrðir, 90 - 500 cm ►
► Stálfóturjylgir
► Ekkert barr að ryksuga ►
► TYuflar ekki stofublómin ►
Eldtraust
Þaifekki að vökva
Islenskar leiðbeiningar
TYaustur söluaðili
Skynsamlegjjárfesting
SKATAMIÐSTOOIN ARNARBAKKA
Q Bandalag íslenskra skáta O®
MÖGNUÐ BÍLAMYNDBÖND
Myndbandsspólur sem allir
bflaáhugamenn verða að eignast.
Verðkr. 1.990,- til 2.490,-
Þessar eru frábærar!!!
- gjafavöruverslun bllaáhugafólks
Vagnhöföa 23 & Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is