Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 33
ERLENT
Leyniþjónustumenn staðnir að
brotum á öryggisreglum
Notuðu óleyfílega
spjallrás í tölvu-
kerfí CIA
Washington. Reuters.
BANDARÍSKA leyniþjónustan CIA
hefur rekið fjóra starfsmenn sína og
veitt átján öðrum ofanígjöf fyrir að
nota leynilega spjallrás, sem komið var
upp án heimildar í tölvukerfi leyniþjón-
ustunnar, til að skiptast á bröndurum
og slúðri.
Háttsettur embættismaður var á
meðal þeirra sem voru reknir. Flestir
þeirra sem fengu ofamgjöf voru leystir
frá störfum án launa í 5 til 45 daga. I
þeim hópi eru tveir háttsettir embætt-
ismenn sem verða einnig lækkaðir í
tign.
„Þessi óviðeigandi notkun tölvukerf-
isins hafði staðið í alllangan tíma,“
sagði í yfirlýsingu frá CIA. „Tölvukerf-
ið var misnotað vísvitandi með því að
nota óleyfilega „spjallrás" og gagna-
grunna.“
Spjallrásinni var komið upp um
miðjan m'unda áratuginn og hún var
einloim notuð til að skiptast á klúrum
bröndurum, hugleiðingum, slúðri og
ýmsum athugasemdum. Þeir sem
höfðu aðgang að rásinni greiddu at-
kvæði um hvort bæta ætti við nýjum
félaga í spjallrásarhópinn. Hann þurfti
síðan að sverja þagnareið og undinita
leynilegan samning um að segja ekki
frá spjallrásinni.
Talið er að um 160 starfsmenn CLA
hafi notað rásina þar til eftirlitsmenn
komust á snoðir um hana fyrr á árinu.
Einn starfsmanna leyniþjónustunnar
sagði 12. nóvember, eftir að The
Washington Post skýrði frá spjallrás-
inni, að starfsliðinu hefði verið skýrt
frá rannsókn málsins í maí.
Leyniþjónustan svipti einnig sjö
verktaka heimild til að nota tölvukerfi
hennar vegna málsins. 79 starfsmenn,
sem notuðu spjallrásina sjaldan, voru
minntir á öryggisreglur leyniþjónust-
unnar og varaðir við.
Misnotkun á tölvum CIA hefur verið
í brennidepli frá því skýrt var frá því að
John Deutch, sem lét af störfum sem
yfirmaður leyniþjónustunnar í lok ár-
sins 1996, hefði skrifað leynileg skjöl á
heimilistölvur sem voru einnig notaðar
á Netinu. Upplýsingamar hefðu því
getað komist í hendur töhuþrjóta.
Deutch hefur beðist afsökunar á þessu.
Hákon
trúlofaður
Hákon, krónprins í Noregi, opin-
beraði í gær trúlofun sína og Mette-
Marit Tjessem Hoiby, 27 ára garn-
allar, einstæðrar móður. Hafa þau
búið saman um skeið en ekki hefur
enn verið ákveðið hvenær brúð-
kaupið verður. Skoðanakannanir
sýna, að almenningur hefur lagt
blessun súia yfir samband þeirra
Hákonar og Hoiby en í fjölmiðlun-
um hafa þó ýmsir velt því fyrir sér
hvort hún sé hæf tilI að verða
drottning Noregs. I því sambandi
hefur verið rifjað upp, að hún hafi
verið í heldur vafasömum félags-
skap snemma á síðasta áratug og
fyrir nokkrum vikum sagði eitt
vikublaðanna, að hún umgengist
enn sína fyrrverandi félaga. Tengd-
ust þeir sumir glæpastarfsemi.
Fyrrverandi sambýlismaður Hoiby
og faðir þriggja ára gamals sonar
hennar hefur verið handtekinn
nokkrum sinnum, meðal annars
vegna kókafnneyslu. Á myndinni
eru þau Hákon og Hoiby á blaða-
mannafundi, sem boðað var til í
konungshöllinni í Ósló.
Reuters
Reynsla Noregs af EES ófullnægjandi
Æ minni áhrif á þró-
un mála í Evrópu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NORSKA ríkisstjómin lagði í gær
fram álitsgerð sína um reynslu
Norðmanna af Evrópska efnahags-
svæðinu, EES. í henni kemur fram
að Norðmenn telja sig hafa færst
æ meira til hliðar hvað varðar alla
þróun mála innan Evrópu-
sambandsins, ESB, og að taka
þurfi á því með einhverjum hætti,
annaðhvort tvíhliða samningum um
einstök málefni eða aðild að ESB.
Er álitsgerðin sögðu uppgjör við
skoðun andstæðinga ESB-aðildar,
sem telji að hagsmuna Noregs sé
nægilega vel gætt innan EES segir
í frétt NTB.
Álitsgerðin er um 200 siður og
var vinnan við hana hafin í tíð fyrri
ríkisstjómar. Hefur tónninn breyst
nokkuð við tilkomu nýrra stjómar-
herra sem telja að EES-samkomu-
lagið endurspegli ekki þær breyt-
ingar sem orðið hafa í Evrópu-
samstarfinu og möguleikar Noregs
til að hafa áhrif á þróun mála verði
æ minni.
I skýrslunni kemur fram að
breytingar sem orðið hafi á síðasta
áratug hafi ekki heyrt undir þá
hluta samstarfsins sem EES-aðild-
in hafi áhrif á. Þar skipti mestu
þær miklu breytingar sem hafa
orðið á vamarmálum innan ESB
þar sem hlutverk sambandsins hafi
aukist að miklum mun og Norð-
menn hafi þurft að leggja mikið á
sig til að reyna að ná áhrifum inn-
an hins nýja vamarfyrirkomulags.
Allt bendi til þess að endanleg
niðurstaða verði ekki nægilega
hagstæð Norðmönnum.
Tilraunir til að hafa áhrif í
Schengen-málinu em einnig nefnd-
ar, svo og þróun á tölvusviðinu og
allt er varðar öryggi matvæla, sem
EES nái ekki yfir. Er í skýrslunni
lagt til að Noregur reyni að fylgj-
ast vel með og hafa áhrif á einstök
atriði þótt ljóst sé að það verði erf-
iðara og erfiðara og Noregur færist
æ meira til hliðar.
Ný aðildar-
umsókn 2005?
I álitsgerðinni endurspeglast sú
skoðun Verkamannaflokksins, sem
nú er í stjóm, að Noregur eigi að
stefna að aðild, undirbúningur þess
eigi að hefjast á næsta kjörtímabili
og umsókn verði lögð fram í fyrsta
lagi eftir fimm ár.
Hurðakrans: 4.890-
Glæsilegar gjafir í gjafaöskjum.
Gerum tilboð í magninnkaup
ÓLIN
KOMA
Jólaórinn 2000, verð 3.790-
Eigum allar eldri gerðir.
&
ROYAL COPENHAGEN
SENN
(Vfu/ fol J8 l c/cHX
Jólagleði; kaffi- og matarstell
Glerhjarta 1.440-
Jólabarn: 2.390-
Súkkulaðibolli: 5.760-
Karafla og 2 staup: 3.935-
BING & GR0NDAHL
ÍB
HOLME
GAARD
OF COPENHAGEN