Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 83
FÓLK í FRÉTTUM
MYNPBOND
Einfeldnings-
leg valdaklíka
Höfuðkúpurnar
(TheSkuUs)
Speniiumynd
★
Leikstjóri: Rob Cohen. Handrit:
John Pouge. Aðalhlutverk: Joshua
Jackson, Paul Walker, HUl Harper,
Leslie Bibb. (106 mín) Bandaríkin,
2000. Sam-myndbönd.
Bönnuð innan 16 ára.
HÖFUÐKÚPURNAR er spenn-
umynd sem er andlega skyld Tom
Cruise-myndinni The Firm, þar sem
hún lýsir ungum og
efnilegum manni
sem lætur glepjast
af loforðum um auð
og velgengni og
gengur í vafasama
valdaklíku en
kemst síðan ekki út
þegar skuggahliðar
félagsskapsins
koma í ljós. Hér er
um að ræða duglegan laganema í
Yale-háskóla, Luke, sem fær inn-
göngu í leynifélag skólans sem hýst
hefur marga af valdamestu karl-
mönnum þjóðarinnar í áratugi. Þegar
besti vinur Luke deyr á voveiflegan
hátt, eftir að hafa reynt að afhjúpa
leynifélagið, skilur Luke að Höfuð-
kúpumar eru engin lömb að leika við
enda svo valdamikið félag að meðlim-
irnir eru hafnir yfir lög og reglu. Gall-
inn er sá að þetta er í alla staði illa
gerð mynd sem lýsir atburðarásinni á
fyrirsjáanlegan og klaufalegan hátt.
Undir lokin fer hún síðan endanlega
út um þúfur þegar leyst er úr vand-
ræðum Lukes á einkar einfeldnings-
legan hátt sem er algerlega úr sam-
ræmi við þá ímynd sem búin hafði
verið tii af valdaklíkunni í myndinni.
Eg mæli ekki með þessari.
Þrjú hjól
undir vagni
Tangó fyrir þrjá
(Three to Tango)
llómantísk
gamanmynd
★★
Leikstjóri: Damon Santostefano.
Handrit: Rodney Patrick Vaccaro.
Aðalhlutverk: Matthew Perry,
Neve Campbell og Dylan McDer-
mott. (98 mín.) Bandaríkin, 1999.
Sam myndbönd. Öllum leyfð.
Ráðist á David Spade
GRINLEIKARINN
David Spade varð fyr-
ir líkamsáras á heimili
sínu í Beverly Hills í
vikunni. Spade gómaði
óboðinn gest glóðvolg-
an þar sem hann lét
greipar sópa og skipti
engum togum að rupl-
arinn brást við með
því að ráðast að hon-
um vopnaður raf-
magnskylfu. Lög-
reglan hefur staðfest
að árásamaðurinn sé aðstoðar-
maður Spade til fjölda ára, hinn 29
ára gamli David Warren Malloy.
Hefur hann verið kærður fyrir
þjófnað og vopnaða
likamsárás.
„David var góður
vinur minn,“ sagði
Spade, sem kunnastur
er fyrir samvinnu sína
með grínaranum sál-
uga Chris Farley. „Ég
trúi því að hann sé góð
manneskja sem á aug-
ljóslega við geðræn
vandamál að stríða og
ég vona að hann fái þá
aðstoð sem hann
þarfnast til að ná fullum bata. Ég
finn sárt til með honum.“
Spade slapp ómeiddur undan
árásinni.
HARMONIKUBALL
Dansinn dunar dátt frá kl. 22.00 i kvöld í
ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima.
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika
fyrir dansi og Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
Marserað verður um miðnætti undir stjórn
Gunnars Þorlákssonar og Kolbrúnar
Hauksdóttur.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
GAMANLEIKARINN Matthew
Perry er kunnur úr hinum sívinsælu
Vinir og hefur líkt og aðrir leikarar
þáttanna reynt
nokkuð fyrir sér á
hvíta tjaldinu.
Hann virkar stór-
vel sem gamanleik-
ari, en gallinn er
hins vegar sá að
Perry hefur valið
sér heldur óvæn-
legar myndir til að
leika i. Þrjú hjól
undir vagni ætti að hafa allt til að
bera til að verða góð gamanmynd,
enda búin ágætum leikurum á borð
við Oliver Platt, Neve Campell og
Perry, en það er engu að síður ljóst
að allt púðm- vantar. Gengið er út frá
kómískum misskilningi þess efnis að
aðalpersóhan Oscar Novak (Pen-y),
þykist vera samkynhneigður til að
komast í meiri nálægð við konuna
sem hann elskar (Neve Campbell).
Þannig má segja að gamla „hómó-
fóbían" hans Chandlers í Vinum elti
Perry yfir í þessa mynd. Gamanflétt-
an nær þó aldrei að verða fyndin, eða
grípandi, hún bara spilar sig sam-
kvæmt formúlunni og gefur áhorf-
andanum tilefni til að hlæja stöku
sinnum.
Fimmtán manns voru klukkustundum saman í stórkostlegri
lífshættu ofan á þaki rútu í beljandi Jökulsá á Fjöllum í
sumar, eftir að straumurinn hafði borið rútuna rúman
hálfan kílómetra. I bókinni lýsa íslendingar og
Austurríkismenn aðstæðum þar sem líklegra þótti
að þeir myndu deyja en komast af.
Rútubílstjórinn segir í fyrsta sinn opinberlega frá
því þegar hann lagðist til sunds til að ná í hjálp.
1 bókinni er einnig einstæð frásögn fjölskyldu
og björgunarfólks af því þegar leitað var
tveggja barna sem voru grafin á þriðju
klukkustund undir snjófióði í Biskupstungum.
I
I
I
I
æpitungulaust
Seiður Grænlands eftir Reyni Traustason fjallar um
sex Islendinga sem búa og starfa á Grænlandi.
Meðal þeirra eru ísmaðurinn Sigurður Pétursson og
hreindýrabóndinn Stefán Hrafn Magnússon, sem
hafa lent í ótrúlegustu ævintýrum og tala
tæpitungulaust eins og fyrri daginn. Einnig er sögð
saga þeirra Helga Jónassonar ferðafrömuðar,
Gunnars Braga Guðmundssonar forstjóra, Halldóru
Grétarsdóttur hjúkrunarffæðings og Kristjönu
Guðmundsdóttur Motzfeldt, eiginkonu
Jonathans Motzfeldt landstjóra Grænlands.
Bókin lýsir ótrúlegum hrakningum, ægifegun
Grænlands og daglegu lífi í þessu næsta nágrannalan
Islands sem þrátt fyrir nálægðina er svo fjarlægt.
ÍSLENSKA BÓKAÚTGÁFAN
Dalvegi 16b, sími 554 7700
áE
Heiða Jóhannsdóttir