Morgunblaðið - 02.12.2000, Blaðsíða 64
A LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Jólakaffi
Hringsins
Sögusagnir af ársfundi
Tryggingastofnunar
KVENFÉLAGIÐ
Hringurinn var stofnað
í upphafi tuttugustu
aldarinnar. Alla þá öld
hefur saga Hringsins
verið samofin líknar-
málum og góðgerðar-
málum á Islandi. í upp-
hafi aldarinnar studdu
Hringskonur þá sem
uninna máttu sín i þjóð-
Télaginu. Þær færðu
m.a. fátækum sængur-
konum fatnað og mjólk
og studdu börn og
barnastarf í hvívetna.
Hringurinn reisti síðan
og rak Kópavogshælið,
sem á þeim tíma var
endurhæfingarheimili fyrir berkla-
sjúka. Til að standa undir þeim
rekstri ráku þær m.a. kúabú. Síðar
Líknarmál
A morgun, sunnudaginn
3. desember, segir Ás-
geir Haraldsson, fer
fram hið árlega
Jólakaffí Hringsins á
Hótel Islandi.
gaf Hringurinn íslenska ríkinu
Kópavogshælið.
A undanförnum áratugum hefur
stuðningur Kvenfélagsins Hringsins
við Barnaspítala Hringsins verið
iSr.etanlegur. Af óbilandi dugnaði og
< þrautseigju hafa Hringskonur unnið
að bættum aðbúnaði veikra bama.
‘ Þannig er umtalsverður hluti þeirra
tækja, sem notuð eru á Barnaspítala
' Hringsins, gjafir frá kvenfélaginu.
Það er líka í viðurkenningarskyni
við þetta starf sem spítalinn heitir
Barnaspítali Hringsins.
Barnaspítali Hringsins
Barnaspítali Hringsins tók til
starfa sem sérstök barnadeild árið
1957. Árið 1965 fluttist spítalinn í
núverandi byggingu. Ljóst varð þó
snemma að byggingin
væri of lítil, auk þess
sem hún var ekki hönn-
uð sérstaklega fyrir
börn. Það var því
draumur margra í
langan tíma, að hér risi
sérstakur barnaspítáli.
Af mikilli framsýni og
bjartsýni hafa Hrings-
konur stutt við þetta
verkefni í áraraðir. Nú
er svo komið að bygg-
ingarframkvæmdir við
nýjan Bamaspítala
Hringsins á Land-
spítalalóð eru yfir-
standandi. Fyrirhugað
er að taka spítalann í
notkun sumarið 2002. Það er ekki
síst starfi og stuðningi Hrings-
kvenna fyrir að þakka, að við horf-
um fram á þennan mikilvæga
áfanga.
Það er Barnaspítala Hringsins
ómetanlegt, að eiga slíkan bakhjarl
sem Kvenfélagið Hringurinn er. Ár-
angur starfsins tengist óneitanlega
þessum trausta stuðningi. Starfsfólk
Barnaspítalans er einnig stolt af því
að tengjast Kvenfélaginu Hringnum
og merkilegri sögu þess. Styrkur
Hringsins er starfsfólkinu stöðug
hvatning.
Hringskaffi
Næstkomandi sunnudag, 3. des-
ember, kl. 13.30, fer fram hið árlega
Jólakaffi Hringsins á Hótel íslandi.
Við það tækifæri bera Hringskonur
fram mikið lostæti og ágætis kaffi.
Jafnframt verða seld jólakort og
fram fer happdrætti með fjölmörg-
um vinningum. Allur ágóði Hrings-
kaffisins rennur til styrktar nýjum
Bamaspítala Hringsins. Hringskon-
ur hafa af óbilandi bjartsýni unnið
ötullega að bættum hag barna á ís-
landi. Þær eiga heiður skilinn fyrir
það mikla og fórnfúsa starf. Það er
von mín, að sem flestir sjái sér fært
að sýna Kvenfélaginu Hringnum
stuðning í verki í Hringskaffinu og
njóta um leið ágætra veitinga.
Höfundur er prófessor og forstöðu■
læknir Barnnspítala Hringsins.
ÞAÐ er ánægjulegt
til þess að vita að árs-
fundur Trygginga-
stofnunar ríkisins
(TR) skuli enn vera til
umfjöllunar í fjölmiðl-
um. Tilgangur fundar
sem þessa er m.a. að
vekja umræðu. TR
hefur haldið opinn árs-
fund síðan árið 1997 til
að vekja athygli á ýms-
um málefnum sem
snerta stofnunina og
almenning í landinu.
Stofnunin er í mjög
sérstakri stöðu þar
sem hún á að gæta
hagsmuna skjólstæð-
inga sinna um leið og hún verður að
vinna innan fjárhags- og laga-
ramma. Alþingi setur löggjöfina og
ráðherra reglugerðirnar sem stofn-
uninni er skylt að vinna eftir.
Á ársfundi TR fjallaði undirrituð
um lyfjakostnað í nokkuð víðu sam-
hengi. Þar var meðal annars varpað
fram þeirri spurningu, hvort sívax-
andi lyfjakostnaður væri vandamál.
Það er misskilningur hjá fram-
kvæmdastjóra Samtaka verslunar-
innar í grein hér í blaðinu sl. laugar-
dag, að lyfjafyrirtækjunum hafi
verið kennt um. Þvert á móti voru
færð rök fyrir því að hér væri að
mestu um eðlilega aukningu að
ræða.
Bent var á að lyfjakostnaður
myndi halda áfram að aukast m.a.
vegna nýrra lyfja og því væri full
ástæða til að huga vel að því hvernig
takmörkuðu fjármagni til lyfjamála
er varið. Aukinn lyfjakostnaður
stafar aðallega af nýjum lyfjum sem
annaðhvort taka við af eldri og oft-
ast ódýrari lyfjum eða sem eru við
áður ómeðhöndluðum sjúkdómum.
Ný lyf
Ný lyf við áður ómeðhöndluðum
sjúkdómum eru alltaf mjög kær-
komin viðbót. Það er nú samt svo að
sum af þeim nýju lyfjum sem komið
hafa á markað á undanförnum árum
hafa sýnt takmarkaða verkun nema
í afmörkuðum og vel skilgreindum
tilfellum. Því hefur verið brugðið á
það ráð að búa til leið-
beiningar um hvenær
TR tekur þátt í
greiðslu sumra lyfja.
Leiðbeiningar sem
þessar eru í fullu sam-
ræmi við það sem gert
er í löndunum í kring-
um okkur. Ný lyf sem
koma í stað eldri lyfja
eru vissulega stundum
betri, en þau eru nær
undantekningarlaust
dýrari. I mörgum til-
fellum skiptir munur-
inn á lyfjunum ekki
sköpum fyrir sjúkling-
inn og oft harla litlu,
þó að sýnt hafi verið
fram á einhvern mun í rannsóknum
lyfjafyrirtækjanna. Aðalatriðið fyr-
ir sjúklinginn er að honum gagnist
lyfið, hvort sem það er gamalt eða
nýtt. Það er hagur skattgreiðenda
og um leið lyfjafyrirtækjanna að
hámarka notagildi þeirra fjármuna
sem varið er til lyfjakaupa og þá um
leið að lyfin séu rétt notuð.
Heilsuhagfræði
Umræða um heilsuhagfræði eða
lyfjahagfræði er mikil í flestum
löndum sem við berum okkur sam-
an við. Lyfjakostnaður eykst alls
staðar og er ekki reiknað með að
það breytist, því sífellt koma ný og
dýrari lyf á markað. Þrátt fyrir
reglulega umræðu um aukinn lyfja-
kostnað er ekki víst að almenningur
geri sér grein fyrir að á markaði eru
lyf þar sem ársmeðferð kostar vel á
aðra milljón og jafnvel meira. Þegar
um er að ræða dýra meðferð er mik-
ilvægt að rannsóknir hafi sýnt fram
á ótvíræða verkun og eingöngu þeir
sem sannanlega þurfa á lyfinu að
halda fái þess notið.
Hagkvæm
lyfjanotkun
TR hefur lagt mikið til verkefnis-
ins Lyfjavals á síðustu árum. Lyfja-
val er leiðbeiningar um hagkvæma
lyfjanotkun fyrir lækna þar sem
ekki er mælt með lyfjameðferð
nema hún sé studd vísindalegum
rökum. TR hefur með þessu viljað
styðja lækna í því að velja meðferð á
sem faglegastan hátt. Á undanförn-
um árum hefur átt sér stað mikil til-
færsla í notkun frá gömlum lyfjum
til nýrra, án þess að nægileg fagleg
rök liggi þar að baki í öllum tilfell-
um. TR hefur viljað hægja á þeirri
þróun að fjöldinn byrji að nota nýju
lyfin um leið og þau koma á markað.
Það er áhyggjuefni að mörg dæmi
eru um það á síðustu árum að fyrir-
tæki hafi þurft að taka nýleg lyf af
markaði vegna alvarlegra auka-
verkana sem upp hafa komið.
Viðbrögð lyfjafyrirtækja
I áðurnefndri grein í blaðinu sl.
laugardag er látið að því liggja að á
ársfundi TR hafi undirrituð mælt
óvarlega gagnvart læknum þar sem
hún telji þá ekki hæfa til að meta
þær upplýsingar sem þeir fá. Flest-
ar þær upplýsingar sem læknar fá
um ný lyf eru mjög einsleitar og
koma aðallega frá framleiðendum,
sem eru að markaðssetja sitt lyf.
Læknar hafa staðfest, að auðvitað
leggja fyrirtækin mesta áherslu á
það sem selst best. Merkilegt er að
Lyf
Það er hagur skatt-
greiðenda og lyfjafyrir-
tækja, segir Inga J.
Arnardóttir, að há-
marka notagildi fjár-
muna til lyfjakaupa.
enginn læknir hefur tekið ummæli
undirritaðrar nærri sér, á meðan
lyfjafyrirtækin eða fulltrúar þeirra
verjast með hverri blaðagreininni á
fætur annarri. Læknar þurfa að
fræðast um ný lyf og ekkert er
óeðlilegt við að fyrirtækin kynni
sína vöru. Gagnrýni undirritaðrar
laut aðallega að heilbrigðisyfirvöld-
um sem þyrftu að leggja mun meiri
fjármuni í óháðar upplýsingar um
lyf til lækna, til þess að þeir geti
metið allar hliðar hins nýja lyfs. Á
ráðstefnu sem norræna lyfjanefnd-
in hélt hér á landi í september kom
fram að fyrir hverja krónu sem heil-
brigðisyfirvöld á Norðurlöndum
leggja í upplýsingar um lyf leggja
lyfjafyrirtækin 300 krónur.
Lyíjaverð
Lyfjaverð er hærra á íslandi en í
nágrannalöndum okkar og er skýr-
ingin sögð lítill markaður og hár
flutningskostnaður. Þó hefur lyfja-
verð lækkað hér á landi á undan-
förnum ánim. Á síðustu mánuðum
hefur verð margra lyfja þar sem
verðmunur var talinn vera óeðlilega
mikill verið lækkað og mun sú lækk-
un skila nokkrum sparnaði. Um
þessar mundir ræða dönsk yfirvöld
um óréttmæti þess að þeir greiða
meira fyrir lyfin en sem svarar til
evrópsks meðalverðs. Ekki er óeðli-
legt að gerð verði svipuð krafa hér á
landi í framtíðinni.
Vill fólk ný Iyf?
Markaðsstjóri Roche á íslandi
hélt því fram hér í blaðinu sl. sunnu-
dag að fólk vildi ný lyf! Þetta stang-
ast á við nýlega könnun sem Gallup
gerði fyrir lyfjafyrirtækin hér á
landi. Niðurstaðan kom á óvart, því
þar kom m.a. fram að 96% svarenda
vildu frekar nota óhefðbundnar að-
ferðir í lækninga- eða meðferðar-
skyni en að nota lyf. Varð niðurstað-
an til þess að fyrirtækin fóru í mikið
ímyndarátak í fjölmiðlum sem getur
ekki hafa farið framhjá neinum.
Lokaorð
Innan TR hefur á undanförnum
árum verið lögð mikil áhersla á að
nýta verði sem best þá fjármuni
sem ætlaðir eru til lyfjamála. Eins
og áður sagði er mikilvægt að al-
mannatryggingakerfi landsmanna
greiði eingöngu fyrir meðferð
þeirra sem sannanlega gagnast lyf-
ið. Mikill þrýstingur hefur stundum
verið, bæði frá læknum og lyfjafyr-
irtækjum, um að TR greiði fyrir
lyfjanotkun með nýjum lyfjum sem
ekki hafa sannað sig á ótvíræðan
hátt.
Höfundur er deildarstjóri sjúkra-
trygginga- oglyíjasviðs TR.
Verslaðu jólagjafir langt undir kostnaðarverði!
Gylfaflöt 5 Grafarvogi - yfir brúna og beint af augum
Urerutollfrjáls!
Hjá úrsmiönum
Ásgeir
Haraldsson
Inga J.
Amardóttir