Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 39
„Selhamurinn -
eitt lítið
ævintýri“
MYNDVERK sem 6 bekkur A í
Rimaskóla hefur unnið upp úr gam-
alli þjóðsögu verður hengt upp í
Gerðubergi i dag, laugardag, kl. 14.
Undanfamar vikur hefur 6.A í
Rimaskóla sökkt sér ofan í gömlu
þjóðsöguna um konuna sem átti sjö
böm á landi og sjö í sjó. Þau hafa
unnið myndverk, rúma 2,10 m á hæð
og 2 m á breidd, sem segir söguna og
minnir helst í uppbyggingu á mynda-
sögu frá miðöldum. Einnig hafa þau
unnið leikrit upp úr sögunni, þar sem
sögumenn, leikarar, fiðluleikari og
söngvarar koma fram.
Þessi vinna er hluti af samnor-
rænu verkefni sem fjallaði um ævin-
týrið sem samskiptaform og hvort
það eigi erindi til bama á 21. öld.
Fimmtudaginn 16. nóvember fór
6. bekkur A úr Rimaskóla til Óðins-
véa og tók þátt í ævintýraverkefni í
barnasafninu Fyrtejet en þar hitti
bekkurinn jafnaldra sína frá Óðins-
véum og frá Tampere í Finnlandi.
Danirnir sýndu Litlu hafmeyjuna
eftir H.C. Andersen og finnsku börn-
in gamla finnska þjóðsögu um fiski-
manninn og konuna hans.
Nú gefst íslenskum sagnaunnend-
um tækifæri til að sjá afrakstur
vinnu 6.A úr Rimaskóla og bömin
stíga á svið og leika í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi.
Ólöf Sverrisdóttir leikstýrði hópn-
um og Jónína Margrét Sævarsdóttir
leiðbeindi í myndsmiðjunni.
------*~+~*------
Fyrirlestrar í
Opna lista-
háskólanum
FYRIRLESTUR verður í Listahá-
skóla íslands á Laugamesvegi 91
mánudaginn 4. desember kl. 15 í
stofu021.
Norski myndlistarmaðurinn Rein-
ert Mithassel kynnir verk sín, sem
em gagnvirkar margmiðlunarinn-
setningar og vom sýndar í Noregi á
vegum Bergen - menningarborgar
Evrópu árið 2000. Hann mun einnig
ræða um önnur hugbúnaðartengd
viðfangsefni og aðdraganda þess að
verk hans verða til. Reinert Mithass-
el er norskur og lærði leikstjóm við
skólann East 15 í London. Hann hef-
ur á undanfómum ámm nær ein-
göngu helgað sig margmiðlunarleik-
húsi og er um þessar mundir að
skrifa handrit að nýju leikverki þar
sem notuð verður margmiðlunar-
tækni.
Fyrirlestur verður í LHÍ Skipholti
1, miðvikudaginn 6. desember kl.
12.45 ístofu 113.
Breski húsgagna- og iðnhönnuð-
urinn Amos Marchant kynnir eigin
verk og sýnir litskyggnur. Amos
Marchant er menntaður í Bretlandi
og prófessor við hönnunarskólann í
Ravensboume. Hann er staddur hér
á landi sem gestakennari við hönn-
unardeild LHÍ.
-------++-*-------
Myndlistarsýning
í Pakkhúsinu
ÞORGERÐUR Sigurðardóttir opn-
ar myndlistarsýningu í Pakkhúsinu
á Höfn í Hornafirði í dag, laugardag,
kl. 14.
Ólafur H. Torfason, eiginmaður
Þorgerðar, flytur fyrirlestur um ís-
landskrossa (kossmörk á íslandi)
sama dag kl. 16, einnig í Pakkhús-
inu.
Myndir Þorgerðar era einþrykk
af tréplötum og allar unnar á þessu
ári af tilefni 2000 ára kristni í heim-
inum. Myndirnar em leikur með
form og liti en byggðar með kross-
foirnið að grannhugmynd.
í tengslum við þessa myndröð
kom út ritið „Nokkrir íslandskross-
ar“ eftir Ólaf H. Torfason. í því er
fjallað um krossa kristninnar á ís-
landi á ýmsum stöðum og ólíkum
tímum.
Sýningunni lýkur 17. desember.
Norðurljós fá
góðar viðtökur
SKÁLDSAGA Einars Kárasonar,
Norðurljós, kom nýlega út hjá
norska forlaginu Aschebog í þýðingu
Gunnhild Eide.
Dómar um bókina
hafa birst í norsk;
um dagblöðum. f
Dagsavisen segir:
„Einar Kárason
er og verður einn
af mergjuðustu
sagnamönnum
Norðurlanda." í
Aftenposten
Morgen er bókin
sögð „spennandi og áhugaverð, Ein-
ar Kárason er góður sögumaður og
stíll hans leiftrandi - líka í norskri
þýðingu - og svo er sagan einnig
áhugaverð sem söguleg skáldsaga".
Gagnrýnandi Dagbladet segir „Ein-
ar Kárason ekki reyna að elta íyrir-
framgefnar formúlur. Hann hefur
mikla sögu að segja og segir hana
með braki og brestum."
Þá hefur skáldsaga Einars Þar
sem djöflaeyjan rís verið gefin út í
Bretlandi í þýðingu David MacDuff
og Magnúsar Magnússonar, með
formála hins síðarnefnda. Umsögn
um bókina birtist í bókmennta-
tímaritinu Times Literary Supple-
ment. Blaðið segir bókina greina frá
umbrotatímum í íslensku samfélagi
þar sem íslandi og íslendingum sé
kippt inn í nútímann. „Bókin er vitn-
isburður um breytingamar sem hafa
orðið á íslensku samfélagi, en á móti
þessari miklu framfarasögu vegur
öflugur harmleikur."
Eitt af verkum Lóu Sigurðardóttur á sýningunni í Emanúelshúsi.
Myndlistarsýning í
Emanúelshúsi
MYNDLISTARSÝNING Lóu Sig-
urðardóttur verður opnuð í vinnu-
stofu hennar á Bergstaðastræti
33b, Emanúelshúsi I dag, kl. 12.
Á sýningunni verða olíumyndir á
striga, að mestu unnar á þessu ári,
og einnig nokkur grafíkþrykk.
Lóa var búsett í Finnlandi í sex ár
við nám í myndlist og fjóra mánuði
við Edinburgh College of Art og út-
skrifaðist sem myndlistarmaður
1998.
Sýningin verður opin 2., 3. og 4.
desember frá 12-20.
Slóð fíðrildanna
í vetrarkynningu
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson rit-
höfundur hefur verið valinn einn
tuttugu höfunda í vetrarkynningu
bókaverslana-
keðjunnar Bam-
es & Noble í
Bandaríkjunum.
Kynning þessi er
vel þekkt þar
vestra og nefnist
Discover Great
New Writers
Program.
Bók Ólafs Jó-
hanns, Slóð fíðr-
ildanna, sem í enskri þýðingu nefnist
The Journey Home, verður haldið á
lofti í öllum bókaverslunum keðj-
unnar víðsvegar um Bandaríkin og
einnig verður ýtarleg kynning og
umfjöllun á bókinni í sérstökum
kynningarbæklingi sem gefinn er út
í tengslum við átakið.
Ólafur Jóhann Ólafsson segir í
viðtali á Yahoo-vefnum að það sé
mikill heiður að vera valinn í þennan
Ólafur Jóhann
Ólafsson
hóp. „Ég ber mikla virðingu fyrir
þessu kynningarátaki og það er
mjög spennandi að taka þátt í því.
Þetta er auðvitað stórkostlegt tæki-
færi til að ná til sem flestra lesenda."
Barnes & Noble hafa staðið að
þessu kynningarátaki árlega siðan
1990 og vora höfundamir 20 valdir
úr hópi 100 höfunda sem til greina
komu. Bames & Noble rekur 559
bókaverslanir undir sínu nafni í
Bandaríkjunum og 378 til viðbótar
undir nafni B. Dalton. Keðjan er ein
sú stærsta og þekktasta í Banda-
ríkjunum og er ein af stærstu net-
bókaverslunum í heimi. Þá rekur
keðjan stærstu myndbanda- og
tölvuleikjaverslanakeðju Bandaríkj-
anna undir heitinu Babbage’s Etc og
Funco Inc.
Ólafur Jóhann mun verða á ferð-
inni um Bandaríkin og árita bækur
sínar í verslunum Bames & Noble
og taka með ýmsum hætti þátt í
kynningunni sem Slóð fiðrildanna
fær þar vestra í vetur.
Jólasýningar á
Eyrarbakka
LJÓSMYNDASÝNING Lindu Ás-
dísardóttur, „í landi...“, hefst í
Sjóminjasafninu á Eyrarbakka í dag,
laugardag, kl. 14.
Ljósmyndimar á sýningunni era
af sjómönnum á Eyrarbakka sem
stunda sjóinn árið 2000.
Á sama tíma verður opnuð í Hús-
inu á Eyrarbakka „Jólasýning
Byggðasafns Ámesinga“. Þar era til
sýnis munir tengdir jólahaldi fyrri
tíma. Jólasýningar safnanna á Eyr-
arbakka era samstarfsverkefni
þeirra og opnar sem hér segir: kl.
14-17 dagana 2.-3., 9.-10., 16.-17. og
28. desember.
Á morgun má einnig búast við sér-
stökum viðburði í Húsinu en þá
bjóða Endurreisnarfélag Eyrar-
bakka og Byggðasafn Árnesinga upp
á bókmenntastund. Klukkan 16
koma í heimsókn rithöfundar sem
gefa út bama- og unglingabækur.
Þorgrímur Þráinsson les úr nýjustu
bók sinni, Hlæjandi refur, Valgeir
Magnússon les úr bók sinni Seinna
lúkkið og Jón Hjartarson les úr bók
sinni Eg stjóma ekki leiknum.
Morgunveröarfundur Reykjavíkur menningarborgar
og Verslunarráðs íslands
Miðvikudaginn 6. desember 2000, kl. 8:00 - 9:30, Sunnusal, Radisson SAS, Hótel Sögu
ÍSLENSK MENNING
- SAMKEPPNISTÆKI ATVINNULÍFSINS?
Ástþór Jóhannsson frkvstj., Auglýsingastofunni Gott fólk McCann-Erickson
Reykjavík - menningarborg 2000, reynsla og lærdómur
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar
Hlutverk fyrirtækja í menningarlífinu
Asgeir Bolli Kristinsson, kaupmaður
Menningarmiöstöð í miðbæ Reykjavíkur
Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 2.000,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100 eða
bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti mottaka@chamber.is.