Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 55

Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 55 MINNINGAR búin hinsta hvfla. Hann skrapp oft norður og hann keypti Feyki og Skagfírðingabók svo eitthvað sé nefnt. Hann tók þátt í starfi Skagfirð- ingafélagsins í Reykjavík og studdi Skagfirsku söngsveitina en hann hafði ánægju af söng enda maðurinn félagslyndur_ og drjúgur að sækja mannamót. A böllum var hann í ess- inu sínu og dansaði eins og herfor- ingi. Hnyttna stöku kunni hann vel að meta, var fremur hiifnæmur og all- margar ljóðabækm' átti hann í fórum sínum, einkum ljóð yngri skálda. Gaman hafði hann af broslegum at- vikum og kátlegum sögum og dró síst fjöður yfir þau tilvik þar sem grínið beindist að honum sjálfum. Öllum var þetta að meinalausu enda dáruskap- ur honum víðs fjarri. Gísli var góður starfsmaður, stundvís og reglusamur, og svo ábyrgur að jaðraði við smásmygli. Öll mistök í starfi tók hann sér ákaflega nærri hversu smávægileg sem þau voru og gat vart á heilum sér tekið ef kassauppgjöri í vínbúðinni skeikaði um fáeinar krónur. Ávallt var hann snyi’tilegur og sást hvorki á honum blettur né hrukka. Enginn var hann framkvæmdamaður og stóð ekki í stórræðum en bjó að sínu og var ekki upp á aðra kominn á nokkurn hátt. Engum manni hef ég kynnst sem þekkti fleira fólk en Gísli kannaðist við. Á tímabili mátti gera ráð fyrir því að úr hverjum þriggja manna hópi þekkti hann a.m.k. einn. Hann naut vinsælda og velvilja þessara kunn- ingja sinna og heilsaði á báðar hliðar þegar hann gekk götur Reykjavíkur. Hann var mesti gönguhrólfur, átti aldrei bfl og var raunar lítt ginn- keyptur fyrir hvers kyns tækniundr- um. Gísli rækti ávallt gott samband við eigin börn væru. Á sl. sumri var ég staddur í Hvítadal, þegar tvíbur- arnir hennar Boggu komu í heim- sókn Þá var mikil gleði, hlý bros og faðmlög þegai' þau kölluðu afi og hlupu beint í fangið á honum þar sem hann sat við eldhúsborðið. Saman eignuðust þau Sigurjón og Elísa tvö börn, stúlku, sem fæddist andvana, og soninn Sigurð Torfa, sem dvalið hefur heima við og að- stoðað við búskapinn eftir þörfum, og hafði hann nýlega að mestu tek- ið við búinu. Á fyrstu búskaparár- um sínum endurbyggði Sigurjón öll hús á jörðinni og lagfærði annað sem gera þurfti og sýndi þá best þann dugnað og hagsýni sem í hon- um bjó. Sigurjón undi sér best heima, var sívinnandi, vann aldrei hratt, en var alltaf að. í Hvítadal hafa gestakomur ávallt verið miklar og svo var einn- ig hjá Sigurjóni og Elsu enda gestrisni þeirra mikil, og aldrei hafði Sigurjón svo mikið að gera að ekki væri tími til að sitja með gest- um og naut hann þess að ræða við þá og segja sögur enda bjó hann yfir skemmtilegri frásagnargáfu. Sigurjón átti margar góðar bækur og las mikið og kom það gjarnan fram í frásögum hans. Eins og áður sagði voru tengsl okkar Sigurjóns alltaf náin og þó að ég flytti burt úr sveitinni rofn- uðu þau ekki, oft dvaldi ég heima í Hvítadal í fríum eða skrapp um helgar og í mörg ár töluðum við saman í síma einu sinni til tvisvar í viku. Sigurjón var mjög kær öllu sínu fólki og fylgdist vel með því og er ég viss um að ef systkina- börn hans ættu að nefna besta frændann kæmi hans nafn fyrst í huga, svo kær var hann þeim öll- um. Elsa, Torfi og aðrir aðstandend- ur, ég bið Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar, megi minningin um góðan mann, föður, afa, tengdaföð- ur og frænd'a verða ljós á vegi ykk- ar. Elsku bróðir, ég þakka þér fyrir allt sem þú varst mér og mínu fólki og kveð þig með orðum Stefáns frá Hvítadal. Ég hræðist engan banablund sem barn ég trúi á Edenslund. Ég á í vændum fagnafund, er flyst ég yfir kveldblá sund. Ég kveð í svip og þakka þér, systur sínar og fjölskyldur þeirra og átti með þeim margar notalegar stundir en fyrir tveimur til þremur árum tók heilsa hans að bila svo að hann gat lítið sem ekki notið sam- skipta við fólk. Upp á síðkastið dvaldist hann á vistheimilinu Grund og á starfsfólk þar þakkir skildar fyrir góða umönn- un. Fjölskyldan er Gísla þakklát fyrir samfylgdina og minnist hans með ánægju. Sveinn Heijólfsson. Gísli Pétur Ólafsson ólst upp á Læk og í Kýrholti í Viðvíkursveit í Skagafirði. A síðai-nefndum bæ var hann undir verndarvæng afa okkar, Gísla Péturssonar. Ungur hleypti hann heimdraganum, skólaganga vai’ð nokkur og víða bar hann niður í starfi, var þó lengst við afgreiðslu- störf hjá ÁTVR við Snorrabraut í Reykjavík. Gísli var maður með afbrigðum vel gefinn, öll störf vann hann af sam- viskusemi, lipurð og dæmafárri kurt- eisi. Vinahópurinn varð stór og oft fannst okkur ættmennum hans eins og að hann bæri kennsl á alla íslend- inga. Oft brá hann fyrir sig betra fæti og fór í skemmtiferðir með góðu fólki bæði innanlands og utan og hafði síð- an unun af að deila þeirri lífsreynslu með öðrum. Þó var hann öðrum þræði nokkur einfari. Við brottför hans er okkur sem næst honum stóð- um efst í huga óbilandi tryggð hans og vinátta, tillitssemi hans á ölium stundum, siðfágun hans og hófsemd í orði og á borði. Lífshlaupið þreytti hann af íþrótt sem ekki leyfði feilspor. Hans verður sárt saknað en víst er um það að sam- hvað þú varst hjartansgóður mér, en orð mín falla angurklökk: Ó elsku bróðir, hjartans þökk. Sighvatur F. Torfason. Það voru þungbærar fréttir sem mér bárust þar sem ég var við vinnu úti á landi - að hann Sigur- jón hefði veikst alvarlega og flutt- ur suður í skyndi. Hugurinn fór allur úr skorðum og allur kraftur var úr manni næstu daga meðan þú barðist við veikindin. Mig langar í nokkrum orðum að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig í gegn um tíðina. Ég var fimm ára þegar þið mamma fóruð að rugla saman reitum. Það er ein af mínum fyrstu minningum þegar ég komst að þessu og syst- kini mín hafa oft gantast með það hversu uppveðraður ég hafi verið þegar ég var að færa þeim fréttirn- ar sem þau auðvitað þegar vissu. Það var mikil Guðs gjöf að fá að alast upp í sveitinni hjá ykkur mömmu. Það er svo margt sem maður lærði um lífið og tilveruna og góða siði almennt. Mér verður oft hugsað til þín þegar ég er að leiðbeina mínum börnum því margt af því sem ég kenni þeim fékk ég í arf frá þér og þannig veit ég að andi þinn lifir frá einni kynslóð til annarrar. Ég er líka þakklátur fyr- ir að hafa snemma fengið að kynn- ast vinnu og að þú treystir mér fullkomlega til að gera allt það sem að höndum bar. Eg mun búa að þessu alla tíð. Seinna kom að því að næsta kyn- slóð, börnin mín, fóru að njóta sveitarinnar og verunnar með þér. Það er öllum minnisstætt hversu mikla þolinmæði þú hafðir við að leyfa þeim að sitja í dráttarvélinni hjá þér þegar þú varst að slá. Þau gátu unað sér með þér allan dag- inn og annað slagið kviknuðu stefnuljósin á vélinni úti á miðju túni. Þá var gjarnan haft á orði heima við að vafasamt væri hvor væri við stjórnvölinn, börnin eða afi. Þau sakna þín afskaplega mik- ið. Það verður skrítið að koma heim í Hvítadal og hitta þig ekki. Samt veit ég að við munum alltaf finna fyrir næveru þinni þar því milli þín og sveitarinnai’ eru órjúfanleg bönd. Blessuð sé minning þín. Góður Guð, ég bið þig að senda ferðafólki sínu' lætur hann einungis eftir góðar minningar. Frænda minn og fóstbróður kveð ég með virðingu. Haraldur Bessason. Og gott er því að vera ungur enn og eiga fyrir höndum mikil störf. En seinna erum við þeir vösku menn, sem vinna að okkar fósturjarðar þörf. (Flutt við skólaslit á Reykjum, 10. apríl 1944.) Haustið 1943 hófst skólanám ung- menna að nýju í Reykjaskóla í Hrúta- firði, eftir þriggja ára hlé. Skólabygg- ingarnar hýstu þennan tíma erlent herlið frá Bretlandi og Bandaríkjun- um. Mörgum var kærkomið, að skól- inn skyldi hefja störf að nýju. Opnað- ist þá menntaleið hjá þeim sem beðið höfðu þessi ár eftir því að opnað yrði að nýju. Enda var skólinn nær full- skipaður. Við, sem þetta haust sett- umst á skólabekk í Reykjaskóla við Hrútafjörð, vorum um sex tugir. Ekki vorum við jafnaldra og langt frá því. Þau yngstu rétt um fermingu en þau elstu komin nokkuð yfir tvítugt. Fyrii- þau elstu var það hrein himna- sending að fá allt í einu að sitja á skólabekk og teyga af menntalind- um. Ég var kominn fast að tvítugu, og vinur minn sem hér er minnst, búinn að fá kosningarétt. Einmitt vorið sem við lukum námi frá Reykj- um (1944), var kosið um afnám kon- ungssambands við Danmörku og stofnun lýðveldis. Það var auðleyst. Næstum hundrað prósent þátttaka og flestir sögðu já, eins og kunnugt er. Einn úr hópnum, sem útskrifaðist úr eldri deild, frá Reykjaskóla lýð- veldisvorið, var að kveðja jarðlífið. Margir hafa kvatt á undan honum, eins og að líkum lætur, á jafn löngum tíma og liðinn er frá þessari útskrift. Engin réttindi veitti hún, en skildi eftir nokkra þekkingu og gerði fólk víðsýnna og færara að takast á hend- ur félagsstörf. Margir, sem héraðs- skólana sátu, urðu á heimaslóðum fé- lagsmála- og framámenn. Sumir lögðu á enn lengri menntabraut og sóttu sérskóla og luku þaðan prófum. Þau sem lengst héldu í menntaleit urðu stúdentar og síðar kandidatar frá háskólanum hér eða erlendis. Þetta átti víst að vera minningar- grein. Jú, það er alveg rétt. Alda- mótaárið 2000, sunnudaginn 19. nóv- ember, lést á Elli- og hjúkrun- arheimilinu Grund hér í bæ, eftir nokkra dvöl þar, hann Gísli Pétur Ól- afsson, frá Læk í Viðvíkursveit, 78 ára að aldri. Hann var nokkur síðustu árin mjög þrotinn að heilsu og kröft- um. Að vísu hélt hann veglega upp á 75 ára afmæli sitt, 28. júní 1997. Kom þar margt manna og naut veglegra veislufanga, en Gísli var höfðingi mikill, þegar við átti. Æviatriði Gísla eru hér á undan. Hann var ekki við frekara skólanám en á Reykjum; tók próf upp í annan bekk, ásamt mér og fjórtán öðrum. Eru nú fjórir horfnir úr þeim hópi. Gísli vann lengi sem afgreiðslu- maður í Áfengisverslun ríkisins við Snorrabraut, en síðast í Mjóddinni. Áður vann Gísli hjá Símanum og Raf- magnsveitum ríkisins. Ég vann með Gísla sumarið 1955 hjá RARIK norð- ur í Fljótum, ásamt mörgum góðum félögum. Gísli var drjúgur og iðinn verkmaður, jafn veikbyggður og hann raunar var. Ég vann þá talsvert með Gísla, og er þess gott að minn- ast. Á Reykjaskóla vorum við herberg- isfélagar ásamt fimm öðrum. Er Gísli annar til að kveðja af þeim félögum. Við höfum hist, félagarnir frá 1944, og lét Gísli þar sjá sig. Einhvern tíma var það að ég lét svo mælt í ljóði að allir þeir sem mættu hefðu fremur þyngst en lést. Það var raunar ekki alveg rétt, því að Gísli hafði lést. Ann- ars er erindið þannig: Félagamir fjórtán héma mæta; flestir hafa þeir ei lengi sést Eitthvað mun það andann sjálfsagt kæta. Allir hafa fremur þyngst en lést Ekki gat hjá því farið að ég skrifaði eftir Gísla, entist mér aldur og þrek til þess. Þó að leiðir okkar lægju ekki saman nema á Reykjum og í Fljótun- um fyrir langa löngu, vissum við allt--* af hvor af öðrum. Gísli var hljóðlátur maður og lét lítið fara fyrir sér. Út úr honum komu við og við óvæntar at- hugasemdir, sem hittu í mark. Fyrir nokkrum árum var ég um vikutíma með Gísla á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Kvöld eitt geng- um við upp í hlíðina á móti. Var þá nokkur fönn og blinda. Við ræddum um liðna tíð. Talið barst að þeim tíma er Gísli var starfandi í Hveragerði um skeið við verslun, áður en hann fór á Reykjaskóla. Greindi hann mér þá frá kynnum nokkrum er ei varð framhald á, og harmaði hann það greinilega, en þóttist á þeim tíma ekld tilbúinn vegna ungs aldurs, að bindast hjúskaparböndum. Gísli var , einn á lífsgötunni til æviloka. Hefði vafalaust orðið góður heimilisfaðir ef í það hefði farið. Nú kveð ég ágætan vin og félaga og þakka kynnin öll. Vandamönnum sendi ég samúðarkveðjur við andlát hans. Auðunn Bragi Sveinsson. mömmu og Torfa bróður alla þína sterkustu strauma heim í Hvítadai. Guðmundur Björnsson. Mig langar að minnast hans Sig- urjóns með örfáum orðum þar sem ég veit að maðurinn minn heitinn, Sigurður Torfi, hefði ritað hlý orð til hans ef hann hefði ekki lát- ist á undan honum. Torfi, eins og maðurinn minn var alltaf kallaður, leit alltaf á Sig- urjón sem stóra bróður sinn enda meira og minna alinn upp hjá afa sínum og ömmu á Hvítadal í Döl- um alveg frá sex mánaða aldri og þess vegna fannst honum Sigurjón vera sem sinn bróðir. Hann hugs- aði mikið til Sigurjóns og Dalanna og var tíður gestur þar, þar til heilsa hans var þrotin en samt var svo skrítið að síðasta ferð hans út fyrir bæinn í ágúst 1999 með litlu stelpurnar sínar tvær var að fara á heimaslóðir og endaði með því að ekki var stoppað fyrr heldur en í Hvítadal hjá Sigurjóni og Elsu. Torfi var mjög stoltur af að sýna litlunum sínum allt þar í sveitinni. Þetta var síðasta skiptið sem þeir frændur hittust, þá báðir í raun sárlasnir en Torfi dó 1. október 1999. Ég veit að ef til er líf eftir dauðann þá eru þeir frændur búnir að hittast á hinum staðnum og von- andi báðir án líkamlegra þjáninga. Elsu, Torfa og öðrum aðstan- dendum vottum við okkar innileg- ustu samúð og segjum af eigin reynslu að tíminn minnkar sár- saukann og gefur okkur von aftur. Anna Amadóttir og dæturnar Guðbjörg, Eva Björg, Theodóra og Thelma. Þetta er napurt haust í fallegu sveitinni þar sem ég ólst upp. Sorgin hefur komið við á æsku- heimili mínu. Ég man fyrst eftir Sigurjóni þegar ég var átta ára stelpa. Hann átti heima á næsta bæ, Hvítadal II. Þar bjó hann með aldraðri móður sinni Guðrúnu. Það var svo stutt á milli bæja og ég stalst stundum heim til þeirra í mjólk og kringlur. Mamma var ekkja með fjögur af sex börnum sínum heima þegar þau kynntust. Þau hófu saman bú- skap 1974. Sambúð þeirra var alla tíð farsæl. Það hlýtur að þurfa dugmikinn mann til að taka að sér konu með mörg böm. Ég var 9 ára, Gummi 4 ára, Herdís 15 ára og Erling 17 ára. Hann gekk því mér og Gumma í föðurstað. Sigurjón hafði gaman af því að glettast við okkur og hafa okkur í kringum sig við bústörfin, skipti það engu hvort það voru tvö eða fimm börn. En það voru margir krakkar sem áttu sumardvöl í Hvítadal. Á sumrin var mjög gest- kvæmt í Hvítadal. Sigurjón hafði mjög gaman af því að hitta fólk og fá gesti. Árið 1976 áttu þau von á sínu fyrsta barni saman. Þeim fæddist andvana stúlka. Árið eftir eignaðist hann sinn einkason Sigurð Torfa. Hann var sannarlega sólargeisl- inn hans og langyngstur í systkina- hópnum mínum. Einnig tóku þau að sér frænda minn, Ragnar Jó- hannsson, sem hafði misst báða foreldra sína. Hann var þá 12 ára gamall. Sigurjón var alltaf fyrstur til að taka upp fyrir hann hansk- ann ef eitthvað bjátaði á. Þetta og margt fleira ber vott um að Sigíír- jón var barngóður maður. Alltaf þótti mér notalegt að geta rætt við hann um lífið og tilveruna, bæði sem barn og eftir að ég fór að heiman. Síðasta skipti sem ég átti langt spjall við þig var þegar þú og mamma komuð í heimsókn vestur til Súðavíkur í haust og ekki grun- aði mig að það væri síðasta ferða- lagið þitt. Barnabörnin Ragnar, Sindri, Þórir og Elísa munu sakna afa í sveitinni. Ég þakka þér fyrir ynd- islegu árin sem þú ólst mig upp og fyrir að hafa alla tíð stutt mig eftir að ég fór að heiman. Ég votta mömmu og Torfa bróð- ur mína dýpstu samúð og svo öð’r- um aðstandendum. Vilborg, Halldór og börn. ÁSTHILDUR JÓHANNESDÓTTIR + Ásthildur Jó- hannesdóttir fæddist í Hafnarfirði 16. febrúar 1942. Hún ióst á Landspft- alanum í Fossvogi 22. nóvember siðastlið- inn og fór útför henn- ar fram frá Víði- staðakirkju 30. nóv- ember. Við allt of ótímabært fráfall Ásthildar Jó- hannesdóttui’ koma minningar liðinna ára fram. Kynni okkar hóf- ust er dætur okkar urðu leiksystur og vinkonur er árin liðu. Svo varð dóttir Ásthildar, Rebekka, tengda- dóttir mín og þá urðu kynnin nán- ari enda stutt á milli því við bjugg- um í nágrenni hvor við aðra. Það var gott að koma á hennar fallega snyrtilega heimili, hún var smekkvís mjög, að ég tali nú ekki um gullmolana sem komu frá henni á góðum stundum, þá var mikið hlegið því hún var líka skemmtileg kona. Leiðir skildu um nokkur ár vegna veru erlendis og hefðu samveru- stundirnar mátt vera fleiri síðustu árin. Já, það er margs að minnast, mikil eftirsjá að góðri, vandaðri, konu. Ég bið dætrum hennar, bamabörnum og tengdasonum allrai’ Guðs blessunar í þeirra miklu sorg. Óðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Ég kveð frú Ást- hildi með virðingu og þökk, ég mun alltaf muna hana. Jakobína E. Björnsdóttir. Elsku Dilla, Þakka þér, fyrir ljúft viðmét, allan hláturinn, umburðarlyndið og viskuna. Harpa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.