Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 85

Morgunblaðið - 02.12.2000, Page 85
MORGUNBLAÐIÐ FÓLKí FRÉTTUM I Reykjanesbrautar- rómantík Tonlist Geislaplala REYKJANESBRAUTIN Reykjanesbrautin. Ný sólóplata frá Rúnari Júlíussyni. Lög og texta sömdu: Rúnar Júlíus- son, Þórir Baldursson, Þorsteinn Eggertsson, Bjartmar Guðlaugs- son, Jóhann Helgason, Kristján Hreinsson, Larry Otis, Jim Spauld- ing, Gunnar Þórðarsson, Margrét Jónsdóttir. Fram koma: Rúnar Júl- íusson, Júlíus Freyr Guðmundsson, Birgir Baldursson, Þórir Baldurs- son, Guðmundur Pétursson, Baldur Þórir Guðmundsson, Ásgeir Óskarsson, Rúnar Georgsson, Larry Otis, Jóhann Helgason, Gunnar Þórðarson, Hulda, Rúna og Kristján. Hljóðblöndun: Júlíus Freyr Guðmundsson og Gunnar Smári Helgason. Hönnun: Auglýs- ingastofan Einn, tveir, þrír. Utgefið af Geimsteini. Reylyanesbrautin höndum. Því, í fyrsta lagi, þá hafa næstum öll lög kappans í gegnum tíðina smogið inn í minni íslend- inga, með eða án vitundar þeirra, og hvort sem þeim líkar betur eða verr. Miðað við allan þann laga- fjölda sem hann hefur sungið og spilað má það teljast mjög góður árangur. í öðru lagi er erfitt að setja þann mann ekki í guðatölu sem var í eina tíð allt í senn, ís- landsmeistari í fótbolta, meðlimur í vinsælustu hljómsveit Islands, og kærasti ungfrúr ísland. Ég verð þó að viðurkenna að mér finnst eins og einhver fljótabragur sé á plöt- unni, sérstaklega hvað varðar laga- smíðarnar. Rétt eins og hefði mátt taka sum lögin bara ögn lengra, gera meira úr þeim. Mörg þeirra hafa þann ókost að þau hljóma vel þegar þau byrja en „mótívið“ úr byrjuninni er svo síendurtekið án mikillar tilbreytingar þannig að maður þreytist í miðju lagi. Heildarsvipurinn á plötunni er töluvert „kántrí-skotinn“, svona hugguleg misrokkuð sveifla. Þó bregður fyrir lögum sem algjör- lega brjóta upp þessa skilgrein- ingu. Til dæmis má þar nefna „Söngur sálarinnar“ (Rúnar Júlíus- son/Þórir Baldursson/Kristján), sem er dægurlag sem minnir helst á dreymið lag úr barnaleikriti eða atriði úr áramótaskaupinu. Lagið er það sísta á plötunni að mínu mati. Textinn er í fyrstu persónu og mjög angurvær. Hér kemur brot úr honum: „Nú syng ég fyrir sálina/ nú syng ég fyrir daginn/ og þegar ég hef sungið þá syng ég ennþá meira./ Þá syng ég fyrir hjartað mitt/ þá syng ég fyrir ást- ina./ Þá syng ég fyrir þá sem vilja heyra.“ Annað lag, miklu betra, sem brýtur upp kántrísveifluna er lagið „A réttu róli“ (Gunnar Þórð- arson/Rúnar Júlíusson). Þarna er á ferðinni fyrirtaks popplag í útsetn- ingu sem ber með sér mikinn keim af níunda áratugnum. „A réttu róli“ þykir mér vera langbesta lag plötunnar. Annars fyrir utan kántri-sveifluna sem einkennir plötuna má oft heyra óm af fyrr- verandi vinsælustu hljómsveit landsins, Hljómum, og rokki í anda GCD. Rúnar er ekki einn um textagerð á plötunni, en aðrir textahöfundar virðast halda uppi sama stíl og hann. Mér finnst, þegar á heildina er litið, ekki mikill broddur í texta- gerðinni. Virðist innihald textanna oft og tíðum víkja fyrir stuðlum eða rími, sem sjaldnast er dýrt, t.d. „Og út á braut ég bruna hress/ blá- svalur eins og súperfress" eða „En hvort rómantískt er það/ að lenda í klessu/ hæddur af homma/ laminn af lessu“ eða „Ég er afl sem eng- inn sér/ ég er ljós sem fylgir þér/ og þú ert lítill fugl sem flýgur burt með mér.“ Það má reyndar hafa gaman af þessum textum en þeir eru plötunni ekki til framdráttar. Flutningur á plötunni er góður, kannski full beint af augum, án út- úrdúra. En það gæti reyndar staf- að af litlum möguleikum til til- breytingar vegna fábreyttra lagasmíða. Þannig ná lögin ekki að rísa sem skyldi, heldur hafa þau gjarnan sömu hleðslu út í gegn. Rúnar syngur eins og maður hefur fengið að venjast, músíkalskur að vanda og bakraddirnar standa sig ágætlega í stykkinu. Ég myndi segja að Reykjanes- brautin sé mjög eðlilegt framhald hjá Rúnari. Það hefði varla getað verið öðruvísi. Ég trúi því að dygg- | NÚ HEFUR Rúnar Júlíusson látið frá sér enn eitt afkvæmið, sóló- plötuna Reykjanesbraut. Reykjan- esbrautin er Rúnari greinilega mjög hugleikin á þessari tvöföldu plötu, en hvorki meira né minna en þrjú númer fjalla um Reykjanes- braut. Það eru „Reykjanesbraut I“, „Reykjanesbraut 11“ (sem er Isama lag í mismundandi útsetning- um) og „Tvöfóldum Reykjanes- braut". Umslag plötunnar er mjög viðeigandi. Rúnar stendur veðrað- ur og horfir út í hraunið við Reykjanesbrautina með bassann sér við hlið eins og sinn tryggasta vin. Einnig er mjög flott inni i bæklingnum hvernig textarnir eru ofan á sprunginni mold og fléttum á steinklöpp og öðru slíku. Reynd- ur er ekki mjög gott að lesa á það Iþar sem letrið er mjög smátt. All- nokkurrar ónákvæmni gætir við gerð hulstursins, en þar á ég við stafsetningar- og innsláttarvillur og lasta ég það. Þegar kemur að því að dæma tónlist Rúnars Júlíus- sonar er manni nokkur vandi á 1 I ■ ■ vimr Hus án reykskynjara er ómogulegt mál Hvað þá fjöltengi? Þ>ú finnur ótal margt fyrir heimilið f Byggt og búið. byggtogbuió Kringlunni LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000 85 -----------------------------V:- Morgunblaðið/Kristinn Reylganesbrautin ætti ekki að svíkja dygga unnendur Rúnars. ir aðdáendur verði því ekki sviknir. Þessi tvöfaldi geisladiskur rennur sæmilega mjúklega í gegn, án þess að fanga mikla athygli. Hann ætti þó að geta haft á sér dansvænar hliðar, einkum þegar kemur að línudansi. Ég get ekki sagt að plat- an hafi heillað mig inn að hjarta- rótum, en þó er gaman að eiga hana, til nánari glöggvunar á lista- manninum. Vonandi er hún þó ekki svana- söngur Rúnars, því að ég veit að hann gæti örugglega „toppað“^ hana í næstu atrennu. Ólöf Helga Einarsdóttir Handunnar jólagjafir Veski, gsm-töskun treflan kragan armbönd, púðan dúkan sængurverasett o.m.fl. / / Drottninain msBr m vliwBHlalliilll lcomin fe, . IV ^ ■■ WI Wm wm Wtm m p i ijolaskap ■ FmII búð af , m nviui vorum t á 50% afslætti Við dekrum við þijg þvi þú ert lang flottust riSKWt>Ry\'f RSLUN LAUGAVtGi b? SÍMI Mt oóó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.