Morgunblaðið - 14.12.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 71V
KIRKJUSTARF
Jólasamvera
eldri borg-
ara í Laug-
arneskirkju
Safnaðarstarf
ELDRI boi-garar í Laugameskirkju
halda sína árlegu jólasamveru
fimmtudaginn 14. desember kl.
14:00. Af því tilefni mun Sigursveinn
í Tónskólanum koma með fylktu liði
og leyfa okkur að heyra brot af þeirri
list sem iðkuð er í skólanum. Sr.
Bjarni mun stýra samverunni og
flytja hugvekju, en gestur samver-
unnar verður að þessu sinni sagn-
fræðingurinn Eggert Þór Bern-
harðsson sem kynna mun
nýútkomna bók sína, „Undir báru-
járnsboga“.
Að dagskrá lokinni bjóða þjón-
ustuhópur kirkjunnar og kirkjuvörð-
ur til kaffisamsætis í safnaðarheim-
ilinu.
Mætum glöð.
Þjónustuhdpurinn.
Samvera fyrir
syrgjendur
FIMMTUDAGINN 14. desember
kl. 20 verður samvera fyrir syrgj-
endur í Grensáskirkju. Markmiðið
með henni er að styðja þá sem misst
hafa ástvini sína og hjálpa þeim að
halda jól þrátt fyrir missinn. Bæði
böm og fullorðnir era velkomin. Á
samverunni verður minningastund
þar sem hver og einn getur kveikt á
kerti og minnst ástvinar síns. Sr.
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir leiðir
samveruna og sr. Ólafur Jóhannsson
flytur hugvekju.
Hefðbundin jólalög syngja allir
saman en einnig verður flutt fjöl-
breytt tónlist. Þau sem fram koma
eru Árni Arinbjarnarson, organisti
og félagar úr kirkjukór Grensás-
kirkju, Ólöf Inger Kjartansdóttir,
flautuleikaramir Ingunn Bjarna-
dóttir og Hafdís Vigfúsdóttir. Þá les
Rósa Kristjánsdóttir, djákni jóla-
sögu eftir Iðunni Steinsdóttur.
Árbæjarkirlga. TTT-starf 10-12 ára
í Ártúnsskóla kl. 17-18.
Áskirkja Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14-17. Söngstund kl. 14-15.
Kaffispjall.
Breiðholtskirkja. Bach í Breiðholts-
kirkju. Níundu tónleikarnir í tón-
leikaröðinni verða í kvöld kl. 20.
Þýski organistinn Jörg Sondermann
leikur orgelverk eftir J.S. Bach.
Mömmumorgunn föstudag kl. 10-12.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-
12 ára drengi kl. 17-18.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgn-
ar kl. 10-12. Fræðandi og skemmti-
legar samverustundir, heyrum guðs
orð og syngjum með bömunum.
Kaffisopi og spjall, alltaf brauð og
djús fyrir börnin.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-11.30. Foreldramorgunn í um-
sjón Önnu Eyjólfsdóttur hjúkrunar-
fræðings og Péturs Björgvins,
fræðslufulltrúa Háteigssafnaðar.
Bros og bleiur kl. 16-17.30. Samvera
fyrir foreldra um og undir tvítugt í
safnaðarheimilinu. Gengið inn að
norðan (Viðeyjarmegin). Jesúsbæn
kl. 20. Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn
með handayfirlagningu og smum-
ing.
Langholtskirkja. Foreldra- og
bamamorgnar kl. 10-12. Nú bökum
við piparkökur og jólabrauð, síðan
borðum við baksturinn og drekkum
með heitt súkkulaði. Jólasöngvar
með Jóni Stefánssyni. Langholts-
kirkja er opin til bænagjörðar í há-
deginu.
Laugameskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.06. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12.00. Gunnar Gunnarsson leikur á
orgel fyrstu 10 mínútumar. Að lok-
inni samveru er léttur málsverður á
kostnaðarverði í safnaðarheimili.
Einfalt, fljótlegt og innihaldsríkt.
Samvera eldri borgara kl. 14. Jóla-
fundur. Nemendur frá Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar munu
leika og Eggert Þór Bemharðsson
sagnfræðingur kynnir nýútkomna
bók sína, Undir bárujámsboga.
Þjónustuhópur kirkjunnar annast
undirbúning og veitingar ásamt
sóknarpresti og kirkjuverði.
Neskirkja. Unglingaklúbbur Nes-
og Dómkirkju kl. 20 í safnaðarheim-
ili Neskirkju.
Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára
stráka kl. 17 í umsjá KFUM.
Selljamarneskirkja. Starf fyrir 9-
10 ára börn kl. 17.
Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl.
11. Foreldramorgnar kl. 10-12.
Helgistund kl. 11. Kvöldbænir kl. 18.
Safnaðarfélag Digraneskirkju.
Jólafundur verður haldinn í dag kl.
20.30. Meðal efnis verður Ijóðalestur,
en gestur fundarins er Marteinn
Steinar Jónsson sálfræðingur. Eftir
fundinn verður helgistund í kirkj-
unni. Henni stýrir sóknarpresturinn,
Gunnar Sigurjónsson. Formaður
safnaðarfélagsins er Kristjón Kol-
beins.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri
borgara í dag kl. 14.30-17 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 17. Fyrirbæn-
arefnum má koma til sóknarprests
eða kirkjuvarðar.
Fríkirkjan í Hafnarfírði. Opið hús
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12
í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið hús
fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9-12
ára krakka kl. 17-18.30.
Vfdalínskirkja. Æskulýðsfélag
Garðakirkju heldur fundi kl. 19.30-
20.30. Unglingar hvattir til þátttöku.
Umræðu- og leshópur, fræðslustarf
fyrir alla í Bræðrastofu kl. 21-22.
Bæna- og kyrrðarstund í kirkjunni
kl. 22. Koma má bænarefnum til
presta og starfsfólks safnaðarins.
Allir velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
10-11.30 foreldramorgunn í safnað-
arheimilinu. Ki. 14.30 helgistund á
Heilbrigðisstofnun, setustofu 3. hæð.
Allir velkomnir. Kl. 20 jólatónleikar
kórs Landakirkju. Einsöngvari
verður Sigrún Hjálmtýsdóttir.
Stjómandi Guðmundur H. Guðjóns-
son organisti.
Keflavíkurkirkja. Tónleikar Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar í Kirkju-
lundi kl. 19.30. Bjöilukór og
strengjasveit A&B flytja jólalög. All-
ir velkomnir.
ytri-Njarðvfkurkirkja. Fyrirbæna- ■
samvera ki. 18.30. Fyrirbænarefnum
er hægt að koma áleiðis fyrir hádegi
virka daga kl. 10-12 í síma 421-5013.
Síðasta skipti á þessu ári.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl.
18.30. Beðið fyrir sjúkum og sorg-
mæddum.
Stúlknaskór
2695,-
Láttu okkur aöstoða þig viö vai á réttum innleggjum
é lljcizkhm y
Háaleitisbraut 58 • Simi 553 2300
Kaffíunnendur!
■EVBRIM THEHMDS
Fæst í svörtu og stáli eða bláu og stáli.
Verð kr.
11.750.
Meiriháttar kaffivél sem sýður vatnið fyrir
uppáhellingu og fyllir á stálhitakönnu.
Kaffíð tilbúið
Einai*
Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 TS 562 2901 og 562 2900
www.ef.is
Rábstefnan
TETRA 2000
á Islandi:
TETRA fjarskiptatæknin
- til hagræbingar og skilvirkarí stjórnunar
Ráðstefna haldin:
14. desember á Hótel KEA Akureyri
15. desember á Hótel LoMei&um Reykjavík
Dagskrá
14.30 Skráning hefst
15.00 Ráistefnan sett
Stutt kynning á starfsemi Stildu (GuSmundur Gunnarsson, Stiklul
Eiginleikar TBTRA tækninnar (Stefán Jónasson, Stiklu)
Lars Nordstrand frá Nokia Networks, viiskiptastjórí fyrír
TETRA kynnír:
• Hagnýting IP og WAP fyrír gagnasamskipti i TETRA
• Af hvorju TETRA frekar en GSM og UMTS?
• TETRA-kerfin: Þau sem eru i notkun í dag og
væntanleg framþróun
16.00-16.10 Hlé
TETRA til gagnasöfnunar, fjarvöktunar og fjarstjórnunar
(Jón Amarsson)
Hugbúnabaríausnir til ferilvöktvnar (Símon Þorleifsson, Stefja)
TETRA til fíotastjórnunar hjá ferbaskrifstofunni Addis
(Amgrímur Hermannsson)
Hagnýting TETRA fyrír vibbragbsaiila, fyrirtæki og stofnanir
(Stefán Jónasson, Stiklu)
Pallborbsumrœbur
17.15 Ráistefnuslit
Lóttar veitingar í bobi Stiklu
Abgangur á rábstefnuna er ókeypis, en þar sem sætarými er
takmarkab þarf ab skrá þátttöku meb eftirfarandi leibum:
• Á heimasíðu Stiklu www.tetra.is
• Senda upplýsingar um ráSstefnustaS, nafn, simanúmer og nafn
fyrirtækis/stofnunar merkt TETRA 2OOO I famúmer 545 5709
• Istma 545 5700
STIKLA
Stikla ehf • Hlí&asmára 11 • 200 Kópavogi
Sími: 545 5700 • Fax: 545 5709 • stikla&tetra.is • www.tetra.is