Morgunblaðið - 14.12.2000, Page 54

Morgunblaðið - 14.12.2000, Page 54
0*54 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR JONINA BJORK VILHJÁLMSDÓTTIR + Jónina Björk Vil- hjálmsdóttir fæddist í Hafnarfírði 14. ágúst 1970. Hún lést á Grensásdeild Landspitalans í Foss- vogi 2. desember síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 12. desember. Nú ertu farin frá okkur, elsku Nína mín. Mér finnst ég vera svo tóm því ég skil engan veginn tilgang Guðs með að leggja allt þetta á eina fjöl- skyldu. Ég held að engin fjölskylda hafi þurft að fara eins oft í jarðarfar- ir og við. Því miður er nú komið að þér. Ég reyni að hugga mig við það að þú sért komin til móðiu- okkar og allra hinna. Það er stór hópur sem tekur á móti þér með opnum örmum því það eru fleiri farnir yfir móð- una miklu en eru á lífi. Helgina áður en þú lést eyddum við saman örugglega hamingju- samasta degi lífs þíns. Sjálfan brúðkaupsdag- inn þinn. Þú gekkst að eiga hann Steina þinn sem þú dáðir meira en allt. Eg vildi óska þess að þú hefðir fengið að njóta þess aðeins lengur. Elsku Nína, ég get ekki gleymt þeim örlagaríka degi í maí síðastliðn- um þegar þú hringdir í mig og vildir spjalla sem við gerðum reglulega. Þú varst bara hress. Það vildi svo til að þú hittir á matartíma hjá mér og ég spurði þig hvort ég mætti hringja aftur þegar ég væri búin að borða og svæfa krakkana. Þú sagðir ekkert mál. Ég hringdi stuttu seinna og við byrjuðum að spjalla. Allt í einu varstu eitthvað skrýtin og ég spurði þig hvort ekki væri allt í lagi. Þú byrjaðir að tala þannig að ég skildi ekki hvað þú varst að reyna að segja mér. Ég þekkti þennan talsmáta af reynslu. Þá rann sú hræðilega stað- reynd fyrir mér að þú varst ekki heilbrigð. Að ég væri að missa þig líka. Þetta var mikið áfall því ég bjóst alltaf við að þú værir heilbrigð eins og ég og Daði. Því miður fór það ekki þannig. Þú stóðst þig svo vel þrátt fyrir vitneskjuna um það að þú værir að deyja. Það væri bara spurn- ing um tíma. Þú náðir að rífa þig upp og varst farin að lifa nánast eðlilegu lífi aftur. Þá kom annað áfallið í haust og þú byrjaðir að gefast upp. Viljinn skilaði sér samt aftur og þú byxjaðir á fullum ki-afti að nýju. Þú náðir aftur mjög góðum árangri og þú ætlaðir þér að útskrifast af Grensásdeild tveimur vikum fyrir jól. En í staðinn sitjum við nú og horfum á eftir þér með söknuði yfir móðuna miklu. Föstudagsmorgun- inn 1. desember fékkstu blæðinguna sem dró þig loks til dauða að morgni 2. desember. Ég kom til þín þegar þú varst nýlátin. Þú varst svo falleg og það var svo mikill friður yfir þér. Hefði viljað vera hjá þér þegar þú kvaddir þennan heim. Én var of sein. Ég hafði setið hjá þór lengi deginum áður og ætlaði að koma aftur í há- deginu þegar ég hefði fengið pössun fyrir krakkana. Það var því miður of seint. Ég bið til Guðs að gæta þín og allra hinna. Ég veit að við munum hittast öll að nýju. Elsku Steini minn, hugur minn er líka hjá þér. Ég vil þakka þér fyrir að hafa gert systur mína svona ham- ingjusama. Þið áttuð saman 10 falleg og góð ár. Hún elskaði þig meira en allt. Þú stóðst þig eins og hetja við hlið hennar gegnum þennan erfiða tíma og ég er þér mjög þakklát fyrir það. Megi guð vera með þér líka og eins öðrum ástvinum. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoð- aðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Spámaðurinn Kahlil Gibran). Kveð þig nú að sinni, elsku Nína mín. Þín systir, Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir. Elsku Nína mín, þinni erfiðu sjúk- dómsgöngu er nú lokið og þú um- kringd mörgum ástvinum sem hafa farið úr sama hræðilega sjúkdómi. Þið skiljið eftir ykkur mikið skarð og tómarúm í hjarta okkar hinna sem eftir sitja og hef ég þá einu ósk að ykkur líður betur. Það er dapurlegt og nær ógerlegt að þurfa að sætta sig við að nánast allir fjölskyldumeð- limir þessarar áður stóru ættar séu ATVIIMIMU- AUGLÝSINGAR Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur annast heilbrigðis-, matvæia- og um- hverfiseftirlit í lögsagnarumdæmi Reykjavíkurborgar. Heilbrigðiseftir- litið býður upp á krefjandi og áhugaverð viðfangsefni. Starfsmenn eru 21 talsins með fjölbreytta menntun og reynslu að baki. v Auglýstar eru lausar til umsóknar tvær stöður heilbrigðisfulltrúa á heilbrigðissviði Starf og ábyrgðarsvið: • Eftirlit með húsnæði og hollustuháttum í ýmsum fyrirtækjum og stofnunum, sem veita almenningi þjónustu. • Eftirlit með efnavöru. • Skráning og skýrslugerð. • Sýnataka og mælingar. • Sinna kvörtunum og annast fræðslu á heilbrigðissviði • Geti verið staðgengill sviðstjóra eftir þvi sem sviðstjóri ákveður. • Sinna öðrum verkefnum, samkvæmt gild- andi starfslýsingu fyrir heilbrigðisfulltrúa á heilbrigðissviði. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf í heilbrigðis- og umhverfiseftir- liti, skyldum greinum eða önnur sambæriieg menntun. • Þekking á sviði efnafræði, örverufræði og byggingartækni æskileg. • Þekking á reglum um meðferð, flokkun, merkingu o.fl. varðandi eiturefni og hættu- leg efni og reynsla í eftirliti með þeim. • Stjórnunarreynsla ásamt reynslu af heilbrigðisefti rliti. • Vera sjálfstæður og skipulagður í starfi, hafa góða framkomu, eiga auðvelt með að starfa með öðrum og tjá sig í töluðu og rituðu máli. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í janúar nk. Nánari upplýsingar veitir Örn Sigurðsson eða Rósa Magnúsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur, Suðurlandsbraut 14, sími 588 3022. A Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknirtil Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, merktar: „Heilbrigðisfulltrúi á heilbrigðissviði", fyrir 28. desember nk. Athygli er vakin á því, að það er stefna borgar- yfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, * stofnana hennar og fyrirtækja. AUGLY5INGA Allianz (íli) ísland hf Söluumboö. Við leitum að sölumönnum! Allianz ísland hf. söluumboð, sem er sölu- umboð fyrir stærsta tryggingafélag f heimi, óskar eftir að ráða sölumenn vegna sölu á eftirfarandi fjármálatengdum trygg- ingum. Barnatryggingum. Söfnunarlíftryggingum með ævilífeyri. Slysatryggingum með endurgreiddu iðgjaldi. Hópslysatryggingum. Verkefni sölumannsins eru sala og kynning á vörum og lausnum til handa einstaklingum og fyrirtækjum, ásamt því að taka þátt í upp- byggingu og stefnumótun fyrirtækisins. Starfið krefst þess að sölumaðurinn hafi frum- kvæði og sé óhræddur við að sækja út á markaðinn. Hann þarf einnig að vera skipu- lagður og geta starfað að hluta til sjálfstætt. Krafa er gerð um að viðkomandi eigi mjög auð- velt með að umgangast annað fólk og sé já- kvæður og hress í bragði. Góð árangurstengd laun í boði fyrir réttan aðila. Umsóknum, ásamt mynd, sé skilað á Höfða- bakka 9, 6. hæð, 110 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað. Allianz ísland hf. söluumboð, Höfðabakka 9, 6. hæð, 110 Reykajavík. JRnptUnDib Blaðbera vantar • í Garðabæ Lundir. afleysingar Mosfellsbæ Upplýsingar fást í síma 569 1122 Hjá Morguntalaðinu starfa um 600 blaðberar á höfuðborgarsvæðinu Vélavörður óskast á 40 tonna netabát frá Suðurnesjum. Upplýsingar gefur Jóhann í síma 863 8310. TILKVIMIMIMQAR Fjármálaráðuneytið Auglýsing Frádráttur lífeyrisiðgjalds launamanna og mótframlags launagreiðenda á árinu 2000 í maí sl. voru með 5. gr. laga nr. 86/2000 gerðar þær breytingar á lögum nr. 75/1981, um tekju- og eignarskatt, að frádráttarbært iðgjald vegna viðbótarlífeyrissparnaðar, sbr. 5. og 6. tl. A-liðs 30 gr. laganna var hækkað úr 2% í 4% af ið- gjaldsstofni, skv. II. kafla laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Það er niðurstaða fjármálaráðuneytisins á grundvelli álits frá ríkisskattstjóra að rétturtil frádráttar samkvæmt tilvitnuðu ákvæði skuli miðast við 4% af öllum launatekjum ársins 2000, þó samningur hafi ekki verið gerður fyrir- fram um viðbótarlífeyrissparnað. Þessi réttur er þó háður þeim skilyrðum að þeir launa- menn, sem hyggja á aukinn lífeyrissparnað, hafi gert slíkan samning við lífeyrissjóð eða aðila sem um ræðir í 3. mgr. 8. gr. laga nr. 129/ 1997 og greitt iðgjald sitt til hans fyrir næstu áramót. Launagreiðandi sem ákveðurað greiða mót- framlag vegna viðbótarlífeyrisiðgjalds starfs- manns síns á árinu 2000, sbr. ofanritað, á rétt á því að draga það frá tryggingagjaldi. Frádrátt- urinn getur verið allt að 0,4% af trygginga- gjaldstofni alls ársins, sbr. 2. gr. laga nr. 113/ 1990 með áorðnum breytingum. Landbúnaðarráðuneytið Tollkvótar vegna innflutnings á blómum Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um fram- leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, er hér með auglýst eftir um- sóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi inn- flutning: Vara Tímabil Vörum. Verdtollur Magnt. Tollnr. 0602.9093 Aörar pottaplöntur 01.01.- kfl % kr/kg t.o.m. 1 m á hæð 30.06.01 3.400 30 0 0603.1009 Annars 01.01.- (afskorin blóm) 30.06.01 7.000 30 0 Skriflegar umsóknir skulu sendar bréfleiðis eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytis- ins, Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík, og skulu hafa boristfyrir kl. 15.00 þriðjudaginn 19. des- ember 2000. Landbúnaðarráðuneytinu, 13. desember 2000.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.