Morgunblaðið - 14.12.2000, Side 22

Morgunblaðið - 14.12.2000, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Framhaldsstofn- fundur Félags skíðaáhugafólks á Akureyri Félagið verður arftaki SRA FÉLAG skíðaáhugafólks á Ak- ureyri var stofnað þann 25. nóvember sl. Félagið er arftaki Skíðaráðs Akureyrar, SRA, sem er sérráð innan íþrótta- bandalags Akureyrar, en móð- urfélög þess eru Knattspyrnu- félag Akureyrar (KA) og íþróttafélagið Þór. Á stofnfundi félagsins var ákveðið að halda framhalds- stofnfund og verður hann hald- inn í kvöld, fimmtudaginn 14. desember, kl. 18.00 í kaffiteríu íþróttahallarinnar við Skóla- stíg. Markmiðið með því að breyta Skíðaráði Akureyrar í félag er einkum að auka félagsvitund skíðaáhugafólks og efla og styrkja félagskap þess. Félagið fær sín eigin lög, haldinn er aðalfundur þar sem stjóm félagsins og sérgreina- nefndir eru kjörnar, en með því fær félagið nýja og form- legri umgjörð en áður. Móð- urfélögin tiinefna ekki lengur menn í stjóm og keppnisfólk keppir nú undir merkjum hins nýja félags en ekki móður- félaganna. Full sátt er um þessa breyt- ingu hjá báðum móðurfélögun- um sem og Iþróttabandalagi Akureyrar enda hugmyndin að hluta til komin frá fulltrúum þeirra. Einnig hefur verið haft samráð við formann íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar og íþrótta- og tómstundafull- trúa vegna breytinganna. Nafn á félagið ákveðið í kvöld Á framhaldsstofhfundi fé- lagsins verður ákveðið endan- legt nafn á félagið en á stofn- fundinum var félögum geftnn kostur á því að leggja inn til- lögur um nafn á félagið. Jafn- framt því að ákveða nafn á félagið verður stutt kynning á félaginu, uppbyggingu þess, stjóm og nefndum og þeim einstaklingum sem tekið hafa að sér forystu þess. Skíða- áhugafólk er hvatt til þess að mæta á fundinn og kynna sér hið nýja félag. Slökun! heilsuhúsið Sk6lavöföustíg, Kringlunní, Smáratorgi Morgunblaðið/Kristján Starfsfólk Strax í Ólafsfirði á von á að fólk muni í auknum mæli sækja verslun til Akureyrar eftir að þar voru opnaðar nýjar verslanir nýlega. Gunnar Þórisson, verslunarstjóri Electro Co á Dalvík, sagði að sala hefði aukist nú siðari hluta árs. Aðalbjörg Ólafsdóttir rekur Tískuverslunina Marsibil í Ólafsfirði en með henni til vinstri á myndinni er Herdís Birgisdóttir. Starfsfólk verslana í utanverðum Eyjafírði vart við breytingar Aukinn straumur fólks í verslunar- ferðir til Akureyrar Mæðgumar í Ilex segja alltaf töluverðan straum vera til Akureyrar fyr- ir jólin en Dalvíkingar versli greni og annað tilheyrandi jólunum heima. STARFSFÓLK verslana á Dalvfk og Ólafsfirði verður vart við að íbú- ar á þessum svæðum sækja töluvert í verslanir á Akureyri, en margir eru á því að nýjabrumið skipti þar einhverju, þ.e. opnun nýrrar versl- unarmiðstöðvar á Glerártorgi og Bónus-verslunar. Menn vilji sem vonlegt er skoða hinar nýju versl- anir, en heimamenn sem standa í verslun gera ráð fyrir að menn noti þá þjónustu sem býðst í heima- byggð þegar forvitninni hefur ver- ið svalað. Helga Jónsdóttir, verslunarsljóri Strax í Ólafsfirði, sagðist hafa orð- ið vör við minni verslun nú fyrir jól- in en áður. „Við áttum von á þessu,“ sagði hún. „Það var ekki við öðru að búast en fólk myndi sækja versl- un til Akureyrar nú þegar búið er að opna þar nýjar búðir. Það hefur alltaf verið eitthvað um að fólki fari inneftir að versla, en það er meira um það núna.“ Þýðir ekkert að grenja Helga kvaðst eiga von á að þetta myndi jafna sig, „þegar hversdags- lifið hellist yfir fólk að nýju“, eins og hún orðaði það. Hún sagði að Ólafsfirðingum stæði til boða góð þjónusta, en matvöruverslanirnar tvær væru opnar alla daga, úrvalið væri gott og verðlagið einnig. „Það þýðir ekkert að grenja yfir þvíþótt fólkið versli mikið á Akureyri núna, það verslar líka heilmikið hérna,“ sagði Helga. Þorsteinn Þorvaldsson, sem rek- ur Valbúð, sagði að eðlilega vildi fólk skoða sig um í hinum nýju verslunum á Akureyri og myndi gera það á meðan tíðarfar héldist gott. „Við reynum að bera okkur vel, það þýðir ekkert annað,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði engan áróð- ur í gangi um þessar mundir þar sem fólk væri hvatt til að versla í heimabyggð líkt og stundum hefði verið. „Við vonum bara að fólk átti sig á að það er mikilvægt að hafa verslanir hér í bænum. Fólk getur varla átt von á að hér á staðnum bjóðist gott verð, þjónusta og úrval ef það verslar bara hér þegar það er veðurteppt," sagði Þorsteinn. Engin jólaverslun Gera má ráð fyrir að allt að 30 manns starfi við verslun í Ólafsfirði og þar eru auk tveggja mat- vöruverslana, tískuverslun, tvær blóma- og gjafvöruverslanir og handverkstæði svo dæmi séu tekin. Aðalbjörg Ólafsdóttir sem á Tísku- verslunina Marsibil sagði að Ólafs- firðingar leituðu mikið til Akureyr- ar hvað verslun varðar. „Það er bara eitt svar við því, hún er engin," sagði hún spurð um hvernig jólaverslunin færi af stað. Aðalbjörg hefur rekið verslun sína í rúmt ár, eða frá því í fyrrahaust. Hún sagði að fyrir síðustu jól hefði mikið atvinnuleysi verið í bænum, en þá hefði gjaldþrot Sæunnar Ax- els dunið yfir. „Það hafði áhrif á alla og kemur vitanlega niður á fataverslunum, en ég átti von á að þetta yrði skárra núna fyrir jólin. Það virðist hins vegar ekki ætla að vera, það er erfitt að eiga við þetta, grasið virðist grænna hinum meg- in,“ sagði Aðalbjörg, en hún verslar með föt fyrir allt frá unglingum upp í eldra fólk. Skiljanlegt að fólk vilji skoða nýju verslanirnar Mæðgurnar María Snorradóttir og Kristín Aðalheiður Símonar- dóttir í Ilex á Dalvík sögðu að tölu- verður straumur lægi inn til Ak- ureyrar fyrir jólin. Bex er blóma- og gjafavöruverslun og þar er einn- ig boðið upp á ljósmyndaþjónustu, þ.e. framköllun á filmum. Þær voru á því mæðgurnar að jólaverslun færi sífellt seinna af stað, en straumurinn yrði þéttari eftir því sem nær drægi jólum. „Það er skilj- anlegt að fólk vilji skoða þessar nýju verslanir og verslunarmið- stöðina og fólk fer í miklum mæli inneftir m.a. til að versla í mat- vörumörkuðunum og þá vill það auðvitað taka ýmislegt með sér í leiðinni. Dalvíkingar eru hins vegar duglegir að kaupa greni, skraut og annað því um líkt hér heima,“ sagði María. Þær bentu á að frá því á sama tíma í fyrra hefði fjórum verslunum í bænum verið lokað, bókabúð, sportvöruverslun, búð með tölvu- vörur og nú síðast tískuvöruversl- un. „Það þýðir samt ekkert annað en bera sig vel, það er enginn bættari með því að við leggjumst í þung- lyndi yfir þessu.“ Stöndum okkur í samkeppninni Gunnar Þórisson, verslunarsljóri Electro Co, sagði að frá því versl- unin hefði verið opnuð í nóvember í fyrra hefði sala verið að síga upp á við, hægt og bítandi og væru menn afar ánægðir með verslunina nú fyrir jólin. „Það hefur mikið verið talað um að fólk ætti að versla í heimabyggð, en við höfum passað okkur á því að beina ekki slíkum áróðri að fólki. Við viljum að fólk fari inneftir og geri verðsam- anburð, það er okkar að standa okkur í samkeppninni og það ger- um við. Aukin sala á seinni hluta þessa árs sannar það.“ sagði Gunn- ar. „Við vorum lengi að komast inn á kortið hjá Dalvíkingum, en þeir vita af okkur núna og við kvörtum ekki yfir viðtökunum, þær eru góð- ar.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.