Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 14
14
ALMENN TÍÐINDI.
mest af sláttuvjelnm og kornskeruvjelum, til þess að þurfa á
minna fólki aS balda Slíkar vjelar eru nú orBnar svo góðar, aS
ein vinnur á viS tíu menn. I annan sta8 leggur Joseph Arch
mikib kapp á, a8 útvega fjelögum sínum kosningarrjett á þing
Breta. Hann kom aS máli um þaS viS Gladstone í vetur, og
hafSi hann góS orS um aS bera undir næsta þing frumvarp í
þá átt. Sjálfsagt er mjög hæpiS aS þingiS fallist á þaS. Enn er
önnur rjettarbót sú, er enskum verkmönnum þykir mikiS undir
komiS, og hver maSur hlýtur aS kalla hróplegan ójöfnuS aS
synja þeim um. Fyrrum lá þung refsing viS, aS verkmenn
tækju sig saman um aS heimta hærri laun, eSa hvaS annaS er
þeir bundust í fjelag um. þetta er nú aS vísu löngu numiS
úr lögum, en þó standa enn nokkur fyrirmæli í enskum lögum,
þar sem verkafólk er látiS verSa harSara úti en aSrir menn
fyrir sömu brot. í fyrra urSu einu sinni sextán konur af verk-
mannafólki í einu lagi fyrir slíkum dómi, svo hörSum sem lög
framast leyfSu. þótti slikt ósvinna mikil, er þaS barst út, og
spannst útaf þvi mikiS blaSa- og fundaþjark. En Englendingar
eru manna seinlátastir, er breyta skal foynum lögum,-og má
vera aS enn standi um hríS ólög þau viS verkmenn, er nú
var getiS, þótt flestir menn kannist viS ójöfnuSinn. Verka-
fólk á Englandi hefir þaS fram yfir fjelaga sína annarstaSar
viSast hvar, aS þvi eru öll byltingaráS þvert um geS. AlþjóSa-
fjelaginu mikla sinna þeir varla neitt. Fyrir þær sakir verSur
þeim opt vel ágengt, og gott til liSs meSal samþegna sinna af
öSrum stjettum. En þeir eiga viS ramman reip aS draga, þar sem
er breiSfylking margra hundraSa lávarSa og margra þúsunda verk-
smiSjueigenda, er ekki vita aura sinna tal, og jafnmikiS eiga
undir sjer og á Englandi. Nú hefir fjöldi þeirra bundizt í fje-
lagskap fyrir skömmu, til þess aS eiga hægra meS aS standast
samtök verkmanna á móti. Má húast viS aS verkfóll
komi þeim aS litlu haldi úr þessu. Annars er svo um þau
hvort sem er, enda eru verkmenn víSa farnir aS hrekkjast
á þeira, og var þeim jafnminna beitt þetta ár en aS undanförnu.
Skrúfunni miklu í Wales, sem getiS var í fyrra, lauk svo, aS