Skírnir - 01.01.1874, Síða 22
22
ALMENN 1ÍÐINDI.
stó8 1414—1418 og þeir Jóhann Húss og Híerónýmus frá Prag
voru brenndir. Á Kölnarfundinn komu klerkar og fulltrúar frá
öllum fornkaþólskum söfnuðum á þýzkalandi, og kusu sjer þar
biskup, dr. Reinkens nokkurn, prófessor frá Breslau. Hann tók
síSan biskupsvígslu 11. ágústm. af biskupinum í Deventer, er
stýrir söfnuSi Jansensmanna á Hollandi. Jansensmenn eru ka-
þólskir, en óháSir páfa. Skömmu síSar staSfesti Prússastjórn
biskupskosning dr. Reinkens, og slíkt hiS sama stjórnin í Baden
og Hessen. Dr. Reinkens ritaSi prestum sínum umburSarbrjef
sama dag og hann var vígSur. Segir bann þar meSal annars,
aS meS því aS páfi hafi umhverft hinni postullegu kirkjnstjórn,
látiS flækjast í hættulegar villukenningar og sje því orSinn
óvinur kirkjunnar, verSi aS virSa svo, sem hann sje af stóli,
þótt ekki komi dómur til. Hann lastar mjög helgisiSu páfa-
kirkjunnar og fer þungum orSum um myndatilbeiSslu hennar.
Á fundinum í Konstanz voru settar reglur um prestakosn-
ingar og skipuS nefnd, er hafa skyldi á hendi yfirstjórn hinnar
fornkaþólsku kirkju. í nefnd þessari eru fjórir prestar og fimm
leikmenn, og biskup hinn tíundi; hann er formaSur nefndar-
innar. þaS var margítrekaS á þessum fundi sem optar, aS
hlýSni viS lög og iandstjórn væri heilög skylda hvers kristins
manns, og boSin í heilagri ritningu. þaS var sneiS til páfa-
manna, Á leiSinni á fundinn í Konstanz flutti dr. Reinkens
messu í Freiburg í Breisgau. Kirkjan var troSfull. „þar var
ekkert reykelsi, ekkert krossmark á prjedikunarstólnum, og dr.
Reinkens fór ekki eptir textanum í vulgata (biblíuþýSing Hie-
ronymusar, er páfamenn kalla eina gilda)“. Svona segir einn
af kirkjufólkinu frá. Konstanzfundurinn var allfjölsóttur. þar
var Hyacinthe og Pressensé, nafnkenndur reformertur prestur frá
París, tveir biskupar úr Vesturheimi og margir lærBir kenni-
menn úr Sviss og af þýzkalandi. Á fundinn komu og nær fjórum
þúsundnm leikmanna, og hlýddu á ræSur hinna lærSu manna.
Reinkens biskup baS þá lesa vel biblíuna, einkum nýja testamentiS;
bann páfa gegn biblíulestri væri sprottiS af því, aS hann óttaSist
aS leikmenn sæju misferlin á kirkjustjórn hans. Annar fundar-