Skírnir - 01.01.1874, Qupperneq 30
30
AL.MENN TÍÐINDI.
snjóhús á jakanum og búast þar um sem bezt þeir kunna. Er
þar stutt frá aS segja, aS þar voru þeir allan veturinn, e&a
hálfan sjöunda mánuS, og sakaÖi hvergi. þeir skutu birni og
seli sjer til raatar, því aÖ megniÖ af vistum þeirra hafÖi eptir
oröiö í skipinu. 30. april varö þeim loks bjargaÖ af hvalaskipi
frá Bandaríkjum, er Tigris hjet. Voru þeir þá komnir suöur
á móts viÖ Newfoundland, og hafÖi rekiÖ á jakanum nær 400
mílna, suöur allan Baffinsflóa, Davissund og suÖur með Labra-
dor, eöa ámóta vegalengd og frá Reykjavík til Lissabon. þóttu
þeir úr helju heimtir. Voru menn nú mjög hugsjúkir um hina,
er eptir höföu orðið á Polaris, og gerði stjórn Bandamanna
þegar út skip að leita þeirra. Komust leitarmenn slysalaust
norður í Smithssund og fundu þar á hólma einum, er Littletons-ey
heitir, skála þann, er þeir fjelagar höfðu í búiö um veturinn. Höfðu
þeir lagt þaðan á bátum suöur með landi snemma í júním. og
þóttust menn nú vita að þeim væri borgið. Rekald af Polaris
fundu leitarmenn skammt frá Littletons-ey. En það er af þeim
dr. Bessels aö segja, að þeir höföu komizt á bátum sínum suöur
í Baffinsflóa og þar var þeim bjargað af skozku hvalaskipi.
Höföu þeir hleypt Polaris til skipbrots undir Littletonsey og
komizt þar á land við illan leik. þar hittu þeir Skrælingja,
og Ijetu þar fyrirherast um veturinn. Og lýkur hjer sögunni af
þessari merkilegu noröurleit. Svo segir dr. Bessels, at nú sje
fullsannað, að Grænland sje sævi girt á alla vegu. Hann segir
og, að í Smithssundi mætist straumar sunnan og norðan að, úr
Atlantshafi og Kyrrahafi; þess vegna hafi þar veriö íslaust, og
er það allmerkilcgt. Hefir stórum aukizt áhugi manna á norður-
leitum við þessa ferð, einkum fyrir þá sök, að nú þykir einsætt,
að dr. Petermann hafi rjett að mæla, er hann telur áð komast
muni mega á skipum alla leið að beimskauti norður. Er nú
mælt að Bennett, útgefandi blaösins New York Herald, sá hinn
sami er gjörði Stanley út um áriö að leita að Livingstone, ætli
aö gjöra út skip í norðurleit sömu leið og Hall fór, og spá
margir vel fyrir þeirri för.
í fyrra gátum vjer þess, að Svíar væru enn í norðurleit