Skírnir - 01.01.1874, Page 33
SÝN1NGIN í VÍN.
33
norSan nr Finnmörk, Indíanakofar vestan úf Aineríku, 'fýnishorn
af kirkjum og klaustrum, glaumstofum og geptaskálum, kðtiunga-
hölluin og kotbaSstofum víSs vegar úr NorSurálfu. Milli húsanna
var allt fullt af eikum og jurtum úr ýmsum álfum heims, af
gosbrunnum, myndastöplum og margskonar prýSi annari, er hjer
yrÖi of langt upp aS telja. Og öllu hagaS og niður raSaö af
frábæru hugviti og fyrirhyggju, og meö svo furöulegri prýÖi,
aö ekki þóttust menn annaö sjá en kynjar og fádæmi ein, svo sem
væru þeir komnir í einhvern órannsakanlegan töfraheim, er ekkert
mannsauga heföi litiö. AÖsóknin til Vínar meöan sýningin stóö,
frá 1. mai til 2. nóv., var ákaflega mikil, og drógu þó banka-
hrunin, er bar upp á sama tíma og sýningin hófst, nokkuö úr
henni, auk þess aö gegndarlaus fjegræÖgi veitingamanna fældi
marga frá aö fara þangaö. Hægast og kostnaöarminnst varö
þeim, sem bjuggu upp meÖ Duná og þveránum í hana fyrir ofan
Vin, aÖ komast á sýninguna. J>eir gjörÖu sjer trjáfleka og Ijetu
rekast á þeim niöur árnar; höfÖu meö sjer tjöld og vistir og
lágu þar úti meöan þeir voru á sýningunni. Vjer tókum þaö
fram í fyrra, aÖ Vínarsýningin yröi mikilfenglegri og fjöl-
breyttari en nokkur sýuing áður. En Austurríkismenn voru ekki
ánægðir meö þaÖ, heldur ætluðust þeir til að hún hefði það
umfram aörar sýningar, að komumönnum yrði látin 1 sje vís-
indaleg fræðsla um alla þá hluti, er fyrir augun bæri; og það
var gjört- Annar höfuökostur Vínarsýningarinnar var, að hún
hafði að geyma mjög fullkomið gripasafn frá Austurheimi, og
hafa Evrópumenn aldrei átt jafngóöan kost á aö kynna sjer
hagi og þjóðmenning Austurheimsbúa og í þetta sinn. þaö er
í fyrsta skipti að þeir ganga fram á völlinn til að þreyta friðar-
íþróttir og fagrar listir við Vesturlandaþjóðir, er svo mjög
þykjast umfram þá í allskonar menntun,
Vjer munum nú fara fáeinum orðum um hvert land í sínu
lagi, þeirra er gripi áttu á sýningunni. Úr engu landi voru jafn-
margir sýnendur og Austurríki og Dngverjalandi, eins og líka
var eðlilegt. þeir voru frekar 15,000. Á Parísarsýningunni
SUírnir 1874.
3