Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 46
46
ENGLAND.
stjórn sama mannsins, Gladstones, haustiS 1870, er Rússar tættn
í sundur Svartahafssamninginn. Tildrög AbessiníuleiSangurs-
ins var ekki annaö en hirðuleysi úr utanríkisstjórninni, og jafn-
vel úr Gladstone sjálfum, því hann veröur ætíð að vera mc8 í
hverju ráðaneyti, hver sem fyrir því stendur.“ „Malaccasamn-
ingurinn er hvorki eptir mig nje Derby lávarð, og jeg er öld-
ungis hissa á, að annar eins maður og Gladstone skuli fara með slík
ósannindi. Gladstone er guðhræddnr maður. Hann hefir eflaust
rankað við þvi þegar hann las bænirnar sínar á miðvikudagskvöldið,
að þann dag hafði komið blettur á sæmd hans og samvizku“.
Að þessari ræðu gjörðu fundarmenn ákaflega mikinn róm; en
það þótti Times Ijótt og ósamboðið slíkum manni sem Disraeli,
að líkja stjórnarforseta landsins við þjóf, eða að vera að hafa
guðrækni Gladstones í skopi. Gladstone bar margt af þessu
af sjer á öðrum kjörfundi skömmu síðar og hafði þar meðal
annars yfir háðvísu, er hann hafði ort um kjósendurna í Ayles-
bury og Disraeli í Malaccasundi, og hlógu menn mjög að vís-
unni. Hann sagði að Torýmenn væru ósparir á loforðum, en
hitt væri lakast, að þeir væru optast vanir að lofa upp í ermina
á sjer. „þeir eru örir á fje og vilja heita rausnarmenn, svo
sem vel sami miklu landi og auðugu. En nú kemur maður og
fer fram á sparnað. »Vjer erum öldungis samdóma þjer,
vinur,“ segja Tórýmenn. Verzlunarfrelsi þykjast þeir aldrei
geta lofað nógsamlega. En nú kemur maður og kvartar undan
því. „þú hefir rjett að mæla,“ segja þeir, „frjáls verzlun er
mesta forsmán.“ Og svona eru þeir í öllum málum. En þeir
eru vel samtaka og vel tamdir, þess vegna er lið þeirra S70
harðsnúið. það sem oss framfaramenn vantar, er samheldi." Á
þessum fundi voru 15,000 inanna, og fagnaðarlætin svo mikil,
að hestarnir voru leystir frá vagninum, þar sem Gladstone sat
mcð konu sinni og dóttur og fóru menn til í staðinn og drógu
vagninn að ræðupallinum. Tórýmenn höfðu gjört út menn til að
gjöra fundarspell, en hinir fengu skjótt komið þeim burt með
saurkasti og barsmíðum. Af því, sem Disraeli sagði á hinum
fundunum, getum vjer aðeins lýsingar hans á meðferð Gladstones