Skírnir - 01.01.1874, Síða 49
SIGUR TÓRÝMANNA. GLADSTONK FRÁ VÖLDUM. 49
aS hætta skyldi bjórveitingum og brennivíns stundu fyrir miönætti.
því var þa8, aS sagt var í gamni um þessar kosningar, aí það
væri bjórinn og biflían, er or8iS heföi þeim Gladstone þar aS
bana; en um biflíuna stendur svo á, aS Gladstone vildi láta lesa
hana í barnaskólum, en því una óvinir bákirkjunnar (biskupa-
kirkjunnar) hiS versta og greiddu allir atkvæSi Gladstone í
óhag. þeir ætlast til, aS allur fræSalestur barna fari fram í heima-
húsum, því aS í hverjum skóla verSi eigi kennd nema ein trú,
en sitt barniS úr hverjum trúarflokk. Vjer nefnum enn eitt
dæmi þessu líkt. þaS hafSi veriB gamall siBur á Englandi, aS
ungir herramenn keyptu sjer liSsforingjaembætti, í staB þess
aS ávinna sjer þau meS námi og góBri framgöngu. þenna ósiS
tók Gladstone af meS lögum í hitt eS fyrra. Nú urBu allir,
sem fyrir halla þóttust verSa viB þessi lög, óvægnir mótgöngu-
menn Gladstones. þaS var helzt á Englandi sjálfu, einkum
um miBbikiB og sunnantil, aS Tórýmenn urSu ofaná, og þaS
eigi aS eins upp til sveita, þar sem lendir menn ráSa lögum
og lofum, heldur og víSa í kaupstöSum. City, kaupmanna-
setriS í Lundúnum, er jafnan hefir átt tóma framfaramenn á
þingi, kaus nú aS eins einn úr þeirra flokki, þótti þaS furSu
gegna, því aS kaupmenn og lendir menn hafa jafnan staSiS
andvígir á Englandi og barizt um völdin. I þeirra böndum er
mestallt auSsmegin landsins og því fylgjá öll völd og virSingar.
Tveim fulltrúum komu verkmenn inn á þing i þetta sinn, og
þóttust hafa vel unniB. „Litlu verSur Vöggur feginn.“ þetta
er i fyrsta skipti aS þeir eiga formælismenn úr sínum flokki á
löggjafarþingi landsins.
Jafnskjótt sem kosningum varlokiB, fór Gladstone á fund
drottningar og skilaSi af sjer völdum, og baS hana fá þau
Disraeli, úr því hann hefBi boriS efra skjöld viS kosningarnar.
Disraeli Ijet ekki á sjer standa og skipaSi nýtt ráSaneyti á
svipstundu. Eru hinir nýju ráSgjafar aS kalla tómir lávarSar,
svo sem vita mátti, og hinir mestu virSingamenn lendra manna
á Englandi. Nafnkenndastur þeirra er Derby, sonur gamla
Derbys, hins fræga stjórnspekings. Hanner fyrir erlendum málum.
Skírair 1874.
4