Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 55
HEKFÖR SUÐUR í AFRÍKU.
55
blámönnunum. þeir eru hraustir menn og hervanir, en landift
mjög illt yfirsóknar og loptslag banvænt útlendum mönnum;
kemur Evrópumönnum þar aS litlu haldi, a8 þeir hafa kunn-
áttu meiri og eiga vopn betri en hlámenn þeir, er þeir eiga
skipti vi8. ÁriB 1824 hafSi sá maður landgæzlu á Gullströnd-
inni af hendi Bretastjórnar, er John Mac-Carthy hjet. Hann
fór í móti Ashantee-konungi me8 her manna, og lauk svo me8
þeim, aÖ konungur tók Jón höndum og píndi líf úr honum;
ljet siðan taka hauskúpu Jóns og gullbúa, og er hún síðan
drykkjarker Ashantee-konunga. ÁriS 1863 var enn ráðin atför
a8 blámaunakonungi þessum, til þess a8 stöðva óspektir hans
og árásir á skjólstæðinga Breta, en þa8 tókst ekki betur en
svo, aÖ allt leiðangursliÖiS týndist, mest fyrir sakir vanheilinda
af loptslagi og veSráttufari; og fram undir miljón dala er
mælt a8 förin hafi kostað. Meðan Hollendingar áttu Elmina,
guldu þeir Ashantee-konungi 70,000 rd. á ári til friSar sjer og
griða kaupmönnum, en varning sóttu í lönd konungs. í kaup-
unum viö Englendinga var þessa gjalds ekki getiö og kaupin
ger8 a8 fornspurSum Ashantee-konungi; missti hann svo blynn-
inda þessara, og hugsar sjer a8 hefna þess á Bretum, er þeir
synjuöu skattsins. Milli landa Ashantee-konungs og Breta
býr blámannaþjóS sú, er Fanteemenn nefnist. þa8 eru vinir
Breta og skjólstæSingar. í þorrahyrjun í fyrra vetur tekur
Ashantee-konungur a8 herja á Fanteemenn og hrökklast þeir
þegar undan allt á strönd ofan, þar sem Bretar voru fyrir.
Fanteemenn eru langtum óhraustari en grannar þeirra í Ashantee
og manna huglausastir, og mundu þeir hlaupa úr hverjum har-
daga, ef þeir ættu eigi von á ósvikinni hirtingu hjá konum sín-
um, er heim kemur af flóttanum. þar er sá siSur í landi, a8
konur vinna alla stritvinnu, en körlum er ekki anna8 ætlaS
en a8 berjast, er ófriS ber a8 höndum; má þeim fyrir því
maklegt kalla konuríkiS. Landstjóri Breta haf8i fátt manna
fyrir og mátti fyrir því litla hjálp veita skjólstæSingum þeirra;
Ó8 her Ashantee-konungs yfir landiS og hafSi sigur, er fundum
bar saman vih menn landstjórans. En er þessi tíöindi spurÖust