Skírnir - 01.01.1874, Side 71
HINKIK FIMMTA.
71
veitti eigi af þessu, því ab keisaravinir höfðu sem vonlegt var
sagzt þegar úr liSi konungsmanna, jafnskjótt og upp komu ráS
þeirra aS koma til ríkis greifanum af Chambord. Keisaravinir
eiga 30 manna á þingi. Prinzarnir af Orleans eru vellauSugir;
í faSir þeirra og afi, LoSvík konungur Filipp^var mesti grdSa-
maSur og mjög naumurTl Napóleon þriSji hafSi reyndar látiS
gjöra upptækar eigur þeirra ættmauna á Frakklandi; en þaS
var eitthvert fyrsta verk Thiers, er hann var orSinn ríkisstjóri,
aS láta skila þeim aptur. J>a8 voru nær 40 miijónum franka.
Nú höfSu prinzarnir þetta fje til þess aS kaupa menn undan
Thiers; þaS voru þakkirnar. BannaS var oddvitum þjóSvalds-
sinna aS eiga stefnur viS menn út um land, og ekki mátti
fólkiS í hjeruSum þeim, er Jausninni áttu aS fagna undan setu-
liSinu # þýzka, balda Thiers veizlur, svo mjög sem þaS langaSi
til þess. þaS þótti mörgum mesta furSa, aS lýSurinn skyldi
standast slíkt harSræSi og ójöfnuS, og hefir Frökkum áSur orSiS
stundum laus hendin fyrir minna, En svo er sagt, aS Gambetta
hafi beSiS sína vini og sveitunga aS stilla sig fyrir alla muni; ella
mundi verra af hljótast. J>ví aS konungsmenn hefSu allan herinn
sjer hoilan, sökum vinsælda Mac Mahons, ,_pg yrSi þeim eigi
þægra verk unniS, en fá þeim færi á aS hleypa á lýSinn vopn-
uSum hermönnum. Thiers var og eigi aSgjörSalaus, og ljet eigi
letjast aS hvetja alla þjóSvaldsmenn til góSs fylgis og samtaka
gegn voSa þeim, er landinu væri búinn, hversu mikiS sem þeim
kynni aS bera á milli í stjórnarkenningum sínum. BlöSum
þjóSvaldsmanna, þeim er fengu aS lifa, gleymdist eigi aS minna
bændur á, á hverju þeir ættu von, ef Hinrik greifi yrSi kon-
ungur. þaS þurfti ekki annaS en rifja upp fyrir þeim meS
ferSina á þeim fyrrum, er forfeSur hans sátu aS völdum. {>á
fóru eSalmenn og klerkar meS þá eins og skepnur og kvikindi.
í stjórnarbyltingunni miklu voru bændur og aSrir alþýSumenn
gjörSir jafnsnjallir kúgurum sínum gömlu. Nú ætti aS afmá
allt, er sett þefSi veriS í lög í byltinguuni og síSan hana, og
hrinda öllu i gamla lagiS. Nærri má geta, aS slíkar fortölur
hati hrifiS. í miSjum oktbr. hafSi stjórnin orSiS aS leyfa auka-