Skírnir - 01.01.1874, Page 113
LÖOTEKIN ALMENN LANDVARNARSKYLDA.
113
Rússar honum aS þakka nýja dómaskipnn; á8ur var dómgæzlu
mjög ábótavant þar í landi. Loks hefir Alexander keisari tekií)
upp nýtt fyrirkomulag á sveitastjórn og hjeraSa: sett nefndir
manna í staS eins manns; auk ýmsra smærri rjettarbóta, sem
hjer yrSi of langt upp aS telja.
En þótt mest kapp hafi veriS lagt á endurbætur í lögum og
landstjórn, hefir hins vegar eigi veriS slegiS slöku viS herbúnaS
og landvarnir. í byrjun þessa árs (1874) gengu út frá keisaranum
lög um almenna landvarnarskyldu. Sú tilskipun er eflaust
merkast allra nýmæla í tíS Alexanders annars, sem af er, aS
frá skilinni bænda-lausninni. Annars er hún nátengd þeirri
rjettarbót, og raunar nokkurskonar framhald af henni. J>ví aS
hernaSarskyldan hefir hingaS til legiS öll á alþýSufólki einu saman,
eins og aSrar kvabir, hverju nafni sem nefnast; lendir menn
og klerkar veriS lausir viS hana meS öllu. Almenn landvarnar-
skylda er talin eigi takandi í mál, nema lýSurinn hafi hlotiS svo
mikla menntun, aS hver maSur hafi greinilega hugmynd um
skyldur sínar viS fósturjörS sína, og sje boSinn og búinn til aS
leggja á sig þrautir til aS rækja þær skyldur. Eigi því ný-
mæli þessi aS geta komið aS haldi, verSur endurbót á uppfræS-
ing alþýSu aS ganga á undan. Rússastjórn hefir og veitt athygli
þessu atriSi. Ný skipun á barnaskólum er í tiibúningí, og í
annan staS er hermannaefnum haldiS til bókalesturs og veitt tilsögn
í ýmsum nytsömum fróSleik, um leiS og veriS er aS kenna þeim
vopnaburS. þaS er auSsætt, aS mjög miklum erfiSleikum muni
þaS bundiS, aS koma slíkri landvarnarskipun á í öllum lönd-
um Rússakeisara; þar er margvíslegt þjóSerni og margskonar
siSir; mikill liSsafnaSur mjög óhægur sökum afarmikilla vega-
lengda, þótt mesti munur sje nú og áSur var, þar sem búiS er
aS koma upp járnbrautum fram og aptur um endilangt landiS,
Rússland sjálft, og alltaf er veriS aS auka þær; en czarinn er
ekki vanur aS snúa aptur meS þaS sem hann er búinn aS ráSa'
af, og svo mun verSa um þetta. En auSvitaS er, aS þaS muni
eiga langt í land aS upp komizt her eptir hinni nýju skipun;
en nóg mun vesturþjóSunum þykja um, þegar hann kemur.
Skírnir 1874.
8