Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 121
STJÓRNARVANHAGIR. OFSÓKNIR. MANNSLÁT. 121
í sumar er leib var heldur fátt meB stjórninni í Vín og
Tyrkjasoldáni. Hann kom ekki á sýninguna, svo sem hann
hafbi gjört ráb fyrir, og har fyrir sig kóleruna þar. En hitt
mun sannara, aS hann hafi firtzt viÖ Austurríkiskeisara útaf því,
aS hann hafbi tekiS viS jörlum hans, furstunum í Rúmeníu,
Serbíu og Montenegro, meS jafnmikilli viShöfn og virSingu, sem
væru jþeir óháSir ríkisvaldar. AnnaS misklíSarefni voru o f s ó k n i r
Tyrkja vib kristna menn í Bosníu. í bæ þeim, er Gardiska
heitir, og liggur á landamærum Tyrkja og Austurríkismanna,
urSu einusinni snemma í júlí róstur miklar meb kristnum mönn-
um og Tyrkjum, og fjell margt manna af hvorumtveggja. Hinir
kristnu menn kváSu Tyrki valdiS hafa upptökunum, og báru
sig upp vib jarlinn. Hann svaraSi þeim illu einu, og ljek Jiá
hart, og forSubu margir sjer viS l>aS burt og inn í landeign
Austurríkiskeisara. J>á versnaSi jarlinn um allan helming, og
vildi þröngva teim sem eptir voru til aS játa uppá bræSur
sína, þá er flúnir voru, aS Jpeir væru valdir aS óspektunum.
þeir synjubu jpess, sem nærri má geta, og studdi yfirkonsúll
Austurríkismanna þar í bænum mál þeirra. þá tók lýSurinn
tyrkneski til aptur, og Ó5 upp á kristna menn meb ránum og
manndrápum, báli og brandi, og ljet jarlinn þaS viS gangast, hirti
eigi aS refsa illvirkjunum, en fór aS bæta nýjum álögum á hina.
Nú bábu kristnir menn stjórnina í Yín aS skeirast í leikinn, og
ritaSi hún þá til MiklagarSs aSvörun svo jþjetta, aS söldán þorSi
eigi annaS en veita jarli sínum ádrepu. Meira var eigi aS
gjört, og lítib mun hann hafa bætt ráS sitt, eptir því sem sögur
hafa fariS úr Bosníu siSan.
í Rúmeníu og Serbíu hafa ekki orSiS nein sjerleg tíbíndi
þetta ár.
Mannslát. Alexander Jóhann Cusa, fursti í Rúmeníu
1859 — 1866. Hann var af lágum stigum, varS hermálaráSgjafi
i Moldau 1858, og síban áriS eptir kosinn til höfSingja á þingi
í báðum Dunárlöndum: Moldau og Wallachalandi. ViS þaS
urSu þau ab einu ríki, og hefir þaS heitiS Rúmenía síbau 1864.
Cusa var flestura höfSingjum ötulli og örvari til nýbrigSa í lög-