Skírnir - 01.01.1874, Qupperneq 126
126
ÍTALÍA.
A8 lokinni veizlunni leiddi Yilhjálmur gest sinn út meS gjöf-
um. Yiktor hafSi og fært honum og drottningunni dýrar gjafir,
og Bismarck fjekk æSsta kross, er ítalakonungur á í eigu sinni
(Annunciata-orSu), og þar meS dýrindis-tóbaksdósir meS mynd
konungs og letri svolátanda: „Til Bisraarcks fursta, frá alúSarvin
hans og bræhrung, Viktor Emanúel“; en „bræbrungar konungs"
er virSingarnafn jieirra, er bera kross þann, er áSur var nefndur.
þegar heim kom til Ítalíu aptur, tók lýðurinn hvervetna mjög
fagnaSarlega móti konungi og ráSgjöfum hans, og úr mörgum
stórborgum voru rituS þakkarbrjef hæjarmönnum í Vín og Berlín
fyrir viStökurnar, er konungur hafSi fengiS þar. En aS páfa-
vinum var hreytt ögrunaryrSum og skopi, fyrir þaS er þeir
höfSu látiS svo drjúglega um krossleiSangur frá Frakklandi á
hendur fjandmönnum hins heilaga föSur. 20. sept., afmælis-
dag höfuSborgarinnar, voru menn snemma á fótum i Róm og
sneru til hýbýla páfavina og kölluSu: „Frakkar eru komnir,“ og
klíndu brjefmyndum af frakkneskum hermönnum og varSmönn-
um páfa á dyrahurSir og glugga.
í sumar urSu ráSgjafaskipti í Róm: þeir Lanza og
Sella sögSu sig úr ráSasessi, sakir ágreinings viS þingiS útúr
nýjum álögum, er Sella taldi ómissandi til aS standast kostnaS
viS kastalagjörS og vopnakaup, er þingiS hafSi fariS fram á.
Heitir sá Minghetti, er forsæti hlaut í nýja ráSaneytinu; hann
hefir gegnt þeirri stöSu áSur. Visconti Venosta er utanríkisráS-
herra sem fyr.
þeim Lanza hafSi þó tekizt aS ríSa endahnút á klaustra-
lögin, áSur en. þeir fóru frá. MeS klaustralögum þessum eru
felld niSur öll klaustur í Róm og byggSarlaginu kringum borg-
ina; annarstabar um Ítalíu hafSi þaS veriS gjört áSur. þaS
gekk mikiS á, meSan veriS var aS ræSa þau. BorgarlýSurinn
vildi sem minnst láta vægja munkunum og átti róstumikla
fundi til aS herSa á þingmönnum; en páfavinir báru sig aum-
lega mjög, kváBu þaS mundi draga Píus til dauSa, ef slík fá-
dæmi væri framin, sem aS eySa öllum munklífum í sjálfri höfuS-
borg kristninnar. En þar dugSi engin bón. Nýmælin voru