Skírnir - 01.01.1874, Síða 127
RÁÐGJAFASKlPTl. KLAUSTRALÖG. LANDVARNIR. 127
samþykkt me8 miklum atkvæðamun. Tekjurnar af klaustrunum
í Kóm voru liálf önnur miljón ríkisdala um árið. J>ví fje á
nú að verja til styrktar fátækum mönnum, til skólastofnana
og þar fram eptir götunum, að frádregnu áður jjví, er fer til
framfærslu fólki því, er nú er í klaustrunum. Einn þingmaður
vildi láta hnýta aptan í klaustralögin brottrekstri Kristmunka, en
jþeirri tillögu var hrundið, j?ó, með eigi miklum atkvæðamun.
v Sá er enginn leppalúði, að eigi vili fá sjer brúði: sá er
enginn kotungi meðal Norðurálfuríkja, að eigi vili fá sjer vænan
her og traustarlandvarnir. Italir hlaða niður skuldum áreptir ár,
en þó bætti þingið í vetur 30 miijónum ríkisdala við 26 miijónir,
er hermálaráðgjafinn hafði beðið um til kastalagerðar; þingmenn
tróðu fjenu upp á hann, en höfðu skömmu áður hrundið frum-
varpi um kauplausa barnakennslu, sakir vanefna ríkisins, og sjá
þó bæði þeir og aðrir, að endurbót á barnafræðslu er eitthvert
mesta nauðsynjamál landsins. A herliðið eru ítalir að rembast
við að koma sömu skipan og Prússar. Stofnher þeirra verður
500,000 manna, en 900,000 vígra manna ætla þeir að hafa á
að skipa alls, ef ófrið ber að höndum. ítalir hafa sera aðrar
þjóðir lagt mikinnfkostnað í herskipasmíðar, og eigi haldið sjer
annað duga, en eiga tóma brynjubarða. En nú eru bæði þeir
og aðrir farnir að verða hræddir um, að brynjubarðar muni
reynast ónýt eign, því að óðara en nýtt lag er fundið á skipa-
gerð og kallað óbilugt, eru líka hugsuð upp ný skot-tól, er
vinna á hinum nýju skipum, hvað traust sem þau eru. Strand-
varnir ítala eru mjög ónýtar, og eru þeir nú ráðnir í að verja
heldur fje til að bæta þær. f>á langar til að verða svo miklir
menn, að geta ráðið lögum og lofum um allan Miðjarðarsjó,
sem Rómverjar fornu; en það mun heldur hátt hugsað uip sinn.
I vetur efndi Viktor Emanúel til dýrlegrar veizlu í minn-
ingu þess, að þá hafði hann konungur verið í 25 ár.
þaÖ gjörði og landsfólk allt sjer að fagnaðarefni, enda er Viktor
allra konunga vinsælastur af þjóð sinni. Frá flestum erlendum
höfðingjum bárust konungi og alúðlegustu fagnaðarkveðjur.