Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 145
ÓFRIÐUR KARLENGA.
145
eptir götunura. Oss þykir eigi ómaksvert, aS vera að tina til
alla atburSi, er or2i5 hafa í viSskiptum Karlunga og stjórnar-
liösins síSan í fyrra, en nóg a8 geta þess, að aldrei liefir skriðiS
til skarar. þa8 var helzt í haust, meSan Castelar stóö fyrir
stjórn, aö Madrídarhernum vannst dálítiö á. En eptir jólin
fóvu Karluugar aö sækja sig aptur, og hugöust aö láta skríöa
til skarar áÖur umsátarherinn við Cartagena, 10,000 manna,
losnaÖi þaban. J>að tókst eigi; en náö gátu þeir Portugalete,
hafnarborg fyrir neöan Bilbao, og komu síðan þeim bæ í herkví,
J>að er mesta borg í Biscaya, og um hana var lengst barizt
forðum, er afi Karls „sjöunda“ var að berjast til ríkis. Fátt
manna var til varnar í bænum, en íbúar allflestir dyggir Ma-
dridarstjórninni, og mátti eigi nærri því koma, að þeir gæfist
upp. Sama máli er að gegna um allar hinar meiri borgir norður
þar, og það vill Madridarstjórninni til bjargar. Bændalýðurinn
stendur Karlunga megin, svo og bófar og illvirkjar allir. Karl
„konungur" heitir bændum. skattfrelsi og ýmsum fríðindum, lofar
að halda við þá forn lög og landsrjett, frábrugðinn lögum þeim,
er ganga um allar aðrar álfur landsins, og kveðst muni færa í
lög aptir hinn „heilaga rannsóknarrjett.“ J>eir sem Biscaya og
Navarra byggja, eru flestir af öðru kyni en aðrir Spánverjar,
og tala aðra tungu; kjósa því belzt að vera þeim óháðir, eða
áskilja sjer að hafa ýms hlynnindi um fram þá. 21. febr. taka
Karlungar að skjóta á Bilbao. Heldur Moriones, yfirhöfðingi
Madrídarhersins norður þar, til liðs við bæjarmenn og hefir
margt manna; en Karlungar snúast í móti honum og vinna hann
í bardaga hjá Sommorostro, skammt frá Portugalete, 28. febr.
Eptir þann ósigur bregður Serrano við og fer sjálfur norður til
hersins, og með honum Topete aðmíráll og margt stórmenni
annað; tekur nú sjálfur við herstjórn. Hefir hann nú barizt
við umsátarherinn þrjá daga samfleytt, 25 — 27. marz, og unnið
nokkuð á, en eigi mikið. Karlungar hafa lið meira, en hinir
betri vopn. Beri stjórnarherinn þar iægra hlut, er hættvvið að
Karlungum verði lítið viðnám veitt upp frá því. En reyndar
hefir Castelar látið sjer um munn fara, að fyr mundi fold in
Skírnir 1874.
10